Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Side 39
DV Helgarblað föstudagur 17. ágúst 2007 39 HVAÐA LAG VILDIR ÞÚ HAFA SAMIÐ? DV spurði fimm valinkunna tónlistarmenn og lagahöfunda að því hvaða lag þeir vildu helst hafa samið ef þeir mættu velja hvaða lag sem er. Meiri- hluti þessara listamanna sagði spurningunni vandsvarað, einkum vegna þess hve mörg góð lög hefðu verið samin og gefin út í gegnum aldirnar. Ekkert virtist fólk hafa á móti því að hafa samið góðan slagara sem haldið hefur vinsældum árum saman. Ragnhildur Gísladóttir benti einmitt á það að sennilega væri einfaldleikinn erfiðastur við- fangs þegar kæmi að lagasmíðum. Valgeir Guðjónsson TÓNLIST SEM BYRJAR Á B „Þetta er stór spurning. Sennilega væri best að þarna færu saman listrænn metnað- ur og stórbætt afkoma,“ segir Valgeir Guð- jónsson tónlistarmaður. Hann bendir á að mikið af góðri tónlist á sjöunda áratugnum hafi átt það sameiginlegt að nöfn höfunda og flytjenda byrjuðu á bókstafnum b. Þessi tón- list hafi haft mikil áhrif á hann. Það sama má segja um eldri meistara og verk þeirra, Bach og Beethoven til að mynda. „Þarna er ég að tala um The Beach Boys, Bítlana, Bob Dylan, Bowie og svona mætti lengi telja. Ég myndi til dæmis ekki slá hend- inni á móti því að hafa samið lagið Good Vibrations með Beach Boys eða Life on Mars með Bowie” segir Valgeir. „Nú eða Blackbird Bítlanna.“ Hann getur þess einnig að hann myndi ekki skammast sín sérlega ef hann hefði samið H-moll messuna eftir Bach. „Þarna er eitt b í viðbót því h heitir raunar b í hljómfræðinni en b heitir bes. Sá sem efast um þetta er stundum sagður vera haldinn svokölluðum bes-efa. Þetta val mitt er engin b-músík, hún er öll í hæsta gæðaflokki.“ Einar Tönsberg ANOTHER BETTER FRIEND MEÐ HEFNER „Ég vildi gjarnan hafa samið lag- ið Another better friend sem breska hljómsveitin Hefner samdi og flutti fyrir nokkrum árum,“ segir Einar Tönsberg, lagahöfundur og tónlist- armaður. Einar hefur gefið út tónlist undir listamannsnafninu Eberg. Einar segir þetta lag vera einstakt fyrir margra hluta sakir. „Ef ég hefði samið þetta lag sjálfur væri ég að minnsta kosti jafnblankur í dag og ef ég hefði ekki samið það,“ segir Einar. Í laginu er fjallað um mann sem hefur það vægast sagt slæmt og hef- ur gengið í gegnum miklar hremm- ingar, einkum í ástalífinu. „Þetta lag nær að vera einstaklega aumkunar- vert á fallegan og skondinn hátt. Það á líka þann samhljóm með lífi mínu að þegar ég held að eitthvað hafi farið úrskeiðis er nóg fyrir mig að hlusta á þetta lag og þá átta ég mig á því að hlutirnir gætu verið verri.“ Sigríður Beinteinsdóttir VILL KRAFTMIKIL LÖG „Ég vildi hafa samið tvö lög, það eru Bridge Over Troubled Water og Yesterday,“ segir söngdívan Sigríður Beinteinsdóttir hiklaust og vill meina að þessi tvö lög séu einhver bestu lög sem samin hafa verið. Lögin eru ann- ars vegar eftir tónlistarmennina Sim- on & Garfunkel og svo eiga Bítlarnir Yesterday. Sigga segir bæði lögin hafa haft mikil áhrif á hana sem söng- konu en sjálf söng hún Yesterday í íslenskri þýðingu Ómars Ragnars- sonar og setti það á plötu sína. „Melódían og textinn eiga svo vel við í þessum lögum,“ segir Sigga og áréttar að það skipti miklu máli hvernig þau eru sungin. Hún segir Yesterday vera kraftmikið og fjöl- breytt lag sem skemmtilegt er að syngja. Það þurfi mikil og sterk raddbönd til þess að koma því frá sér auk tilfinninga. Því sé slíkt ekki á færi hvaða söngvara sem er. „Þetta er ekki lag sem verður spilað á kassagítar í Þórsmörk,“ segir Sigga og bætir við að henni þyki skemmtilegra að syngja lög sem krefjast mikils af henni sem söngkonu. „Þegar ég var lít- ill langaði mig alltaf til þess að hafa samið lagið Take My Breath Away,“ segir Ragnar Kjartansson, söngvari Trabants, en lagið varð vinsælt í kvikmyndinni Top Gun á níunda áratugnum. Lagið var í miklu uppáhaldi hjá Ragnari á þessum tíma og segir hann það hafa verið fyrsta góða lagið sem hann vildi semja. „Það er einhver himnesk stemning í laginu,“ segir hann en lagið er þekkt fyr- ir djúpu bassalínuna. Að sögn Ragn- ars hafði kvikmyndin engin áhrif á dá- læti hans á laginu en í henni má sjá Tom Crusie á mótorhjólinu sínu keyra inn í sólsetrið ásamt aðalleikkonunni. „Ég man reyndar eftir því að hafa logið að mömmu að ég hefði samið lagið,“ segir Ragnar hlæjandi en það var hljómsveitin Berlin sem samdi það upprunalega. Aðspurður hvort mamma hans hefði trúað því segir hann hana sennilega ekki hafa áttað sig á því þar sem hann raul- aði lagið heldur illa fyrir hana: „Kannski þóttist hún bara trúa mér,“ segir hann um saklausan lagastuldinn á æskuárunum. Ragnar segir lagið hafa haft nokk- ur áhrif á sig sem lagasmið og bendir á að lagið Arms á plötu Trabants sé furðu líkt slagaranum góða. Hann segir það kannski hafa orðið til vegna ómeðvitaðr- ar togstreitu við lagið. „Ég held allavega að ég hafi gert þetta óvart,“ segir hann hlæjandi að lokum. Ragnar Kjartansson SAGÐIST HAFA SAMIÐ SLAGARA Ragnhildur Gísladóttir SVARTFUGL MEÐ BÍTLUM „Ég náttúrulega næstum þ ví dó þegar ég heyrði Sgt. P eppers Lonely Hearts Club Band með Bítlunum. Ég hefði alveg viljað vera einh vers staðar í grenndinni þ egar sú plata var gerð,“ seg ir Ragnhildur Gísladóttir t ón- listarkona. Hún leggur nú stund á tónsmíðanám í Li staháskóla Íslands. „Ef ég ætti að velja eitthver t eitt lag með Bítlunum yrð i hins vegar Blackbird áre iðanlega fyrir valinu. Síð- an finnst mér lagið Karma Coma með Massive Attack alveg ofboðslega flott lag,“ segir Ragnhildur. Hún bendir á að enda þótt margir hafi samið góð lög , séu þeir listamenn til sem standa upp úr með svo afgerandi hætti að varla sé hægt að gera upp á milli l aga þeirra. „Þarna er ég að tala um listamenn eins og Prince og The Doors. Þarn a eru eiginlega listamenni rnir sjálft listaverkið. Frá þ essu fólki hefur komið tón list sem maður kunni kannsk i ekki að meta í fyrstu en s vo kom annað á daginn.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.