Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1958, Page 55

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1958, Page 55
Barabudúr, mustcri d Java. ScO úr lofti. ar er hafa lifað af, og lifi þar með. Egypzki myndhöggvarinn hélt hann frelsaði fyrir- myncl sína frá tímanum. Vermeer vill frelsa mdlverk sitt. Ef til vill málar hann Ung sttílka með vefjahött til þess að mála dóttur sína; og sérhvert illusionfskt málverk kemst undan tímanum á sinn hátt, þó ekki sé nema vegna þess að andlitsdrættir lifandi veru hafa verið festir á léreft. Samt er Unga stúlkan honum óháð á sama hátt og egypzku tvífar- arnir, vegna þess þau tilheyra ótímabundn- um heimi, eins og þorpsgatan — ekki á sama hátt og mannsmynd niáluð af lítilsigld- um, kláruin Hollendingi án snilligáfu. En Vermeer snýr ekki baki við illusion- ismanum, hinu blekkjandi ytraborði, sem réttmætir málverk hans. Það er ekki fyrr en uppgötvun alheimslistarinnar greinir þau frá fyrirmyndunum, eins og hún greinir Djoser frá fyrirmynd sem hann líkir lauslega eftir, að öll þessi verk verða í okkar augtim túlk- un sama máttar. En frá því Olympia kom fram — um það leyti er Delacroix lézt ... — hafa mikilhæfir listamenn uppgötvað hana óljóst og hyggjast beita henni, um leið og þeir varpa fyrir borð bæði illusionismanum og réttmætingum fyrirrennara sinna. Þá fæð- ist okkar list og okkar listheimur: nútíma- dagskrá meistararnir og Safn ímyndunarinnar munu lcggja undir sig heiminn ... Þegar þessi list kemur fram á sjónarsviðið, verða Vitarnir, Louvre — Iistin — að mál- aralist hins óraunverulega, sem fæddist f Flórens, dó í París með Delacroix og þurrk- aði út hinar miklu líkneskjur trúarinnar; þann ættlegg, sem höfðaði til ódauðleikans. Réttmæting Chardins („tilfinningarnar") var hlægileg; ekki Michelangelos, Titians, Ru- bens, Poussins, Watteaus, Goya, eða Dela- croix. En Chardin réttmætti aðeins efnisval sitt, Cézanne aðeins list sína: á sama hátt og Venus frá Urbain er mynd af nakinni konu, en skírskotar til óraunverulegra álfheima, er Sainte-Victoire mynd af fjalli, en skírskotar til þess sem Cézanne kallar „málaralist": til listheims sem Titian þekkti ekki, og ef til vill er arftaki listheims Vermeers, en aðskil- inn, óháður honum — frá því Olyrapia kom fram — vegna þess að illusionisminn hefur verið beygður undir myndmálið; heimur sem einungis kemur fram f Safni ímyndunar mál- arans og málverk hans á að komast i, eins og Rcnefer í hcim Horusar, Aþena Fidíasar í heim guðanna, Konunglega hurðin i heim Guðs. Ef hann væri ekki annað en „litir raðað niður á ákveðinn máta", hvers vegna hefði 53

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.