Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1958, Page 66
rækt við — án þess að glata hinum
tveimur. Hér þarf margs við. En lilut-
ur skólanna hlýtur að verða mikill.
Þeir verða að eiga meiri þátt en hingað
Lil í því að byggja upp verkmenningu
þjóðarinnar og glæða samfélagslegan
skilning hins uppvaxandi fólks. Leggja
þarf niður nokkuð af hinu einhliða
bóknámsstagli á unglinga- og gagn-
fræðastiginu, en taka upp fjölþætt
verknám í samræmi við nútíma at-
vinnuþróun. Trésmíðastofa er of ein-
hliða og fábreytt. Sýna á fleiri og betri
kvikmyndir úr atvinnulífi okkar og
festa á tjaldi atburði liðinnar sögu.
Eðlisfræði og önnur náttúruvísindi
þarf að kenna við stórbætt skilyrði
bæði í tilraunastofum og vinnuskál-
um skólanna. Kenna verður meira í
námskeiðum og mcð fyrirlcstrum, þar
sem lögð er áherzla á samhengi ís-
lenzkrar sögu og lifandi bókmenntir.
Tcngja verður námið baráttu cinstakl-
ingsins fyrir betra lífi og gera honum
ljóst hlutverk sitt við nýtt landnám
á íslandi.
í upphafi máls míns sagði frá
sveitadreng, sem dreymdi um að
greiða ríkisskuldir íslands. Þá var
vaknaður baráttuvilji og lifandi til-
finning fyrir eflingu nýs menningar-
ríkis á fslandi. Efnin voru smá og
lítt miðaði. En því næmari var til-
finningin fyrir hverjum sigri. —
Sementsverksmiðja er nýtekin til
starfa og mun fullnægja þörfum lands-
manna. Þetta er merkilegur viðburð-
ur í landi, þar sem aldrei hcfur úr
innlendu efni verið unnt að reisa var-
anlcgar byggingar. En sú spurning
hefur sótt á mig, hversu margir ung-
lingar í dag skynji þetta sem per-
sónulegan sigur sinn og þjóðarinnar.
Ég held þeir séu of fáir. A sama hátt
mun sennilega flestum finnast þessi
grein leiðinlegt og óþarft nudd og
nagg. Hálfvegis í þeirri von, að þetta
sé þrátt fyrir allt rétt, hefur mér þótt
við eiga að gefa henni nafnið: Nöklur.
64
DAGSKRÁ