Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 12
FÉLAGSBRÉF
,^'ví'Vv;
Júlí-bók A. B.
Islandsviaurinn Hariy Mart-
insón, einn mesti núlifandi
ritsnillingur Svia, er mörg-
um hér að' góðu kunnur síð-
an hann heímsótti oss á síð-
ast liðnu hausti. En vér
þekkjum þó verk hans furðu-
lega lítið, þó að mörg þeirra
séu í tölu hins bezta í sam-
tiðarbókmenntum Norður-
landa. Netlurnar blómgast er
íyrsta bókin, sem út kem^r
eftir hann á íslenzku.
\\XX
.xN
Netlurnar blómgast
er það verkið, sem íyrst aflaði Harry Martinson þess orðstírs
og vinsælda, sem hann hefur notið æ síðan að verðleikum. Sag-
an fjallar mn fyrstu 12 árin í lifi drengsins Marteins Ólafssonar,
sem er enginn annar en Harry Martinson sjálfur. Þegar hann er
sex ára, deyr faðir hans, og skömmu síðar strýkur móðirin frá
heimili og börnum til Ameríku. Eftir það er Marteimi litli munað-
arleysingi á hrakningum og hrakhólum, sem svarar því til, ef hami
er spurður um hagi sina, að faðir sinn sé dáinn, en móðir sín sé i
Kaliforníu.
Nctlumar blómgast er svo frábær sálarlífslýsing barns, að sagan á
að því leyti fáa sína líka í heimsbókmenntunum. Og þó að þessar
minningar hljóti að vera höfundinum sárar, gætir hvergi beiskju,
en frá öllu sagt með slíkri kimni, að furðu sætir. Still höfundarins
er sérstæður og gæddur töfrum.
Karl ísfeld rithöfundur hefur þýtt bókina á íslenzku.
Stærð um 350 bls. Verð til félagsmanna 84.00 ib. — 62.00 heft.