Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 35

Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 35
FÉLAGSBRÉP 23 sem koma hér fram. Það sem ég hef sagt gefur enganveginn rétta mynd af hverju skáldi. Ég hef dregið fram þessi dæmi til að sýna eina hlið á skáldskap yngri mannanna, en þau eru hvorki tæmandi um mynd- sköpun þeirra né heldur leiða þau í ljós ýmsar aðrar hliðar á skáldskap þeirra sem vert væri að ræða nánar, t. d. máltilfinningu þeirra (að öðru leyti en fram kemur í dæmunum), lirynjandi og formsköpun. Þetta síðasta, arkítektúrinn í nútímaljóðagerð, er svo veigamikið atriði að um það mætti tala langt mál. Það er atliyglisvert í ljóðum yngri skálda yfirleitt að bæði í hrynj- andi og orðfæri eru þau miklu nær eðlilegu mæltu máli en flestir fvrir- rennarar þeirra, og það er útaf fyrir sig stórt skref frá ónákvæmu og fölsku skrúðmáli margra eldri skálda sem svínbeygðu eðlilegt tungu- lak undir kröfur stuðla og ríms og misþyrmdu í raiui réttri málinu. Það er líka vert íhugunar að myndir og frumlegt táknmál er mun al- gengara og skýrara í þeim ljóðum imgu skáldanna sem eru óhefð- bundin. Ég hygg að öll yngri skáldin séu sér meðvitandi um samhengi íslenzkr- ar menningar og séu í lífssambandi við fortíðina. Þau eru að leggja nýja vegi, en þeim er fullljóst að nýir vegaspottar koma að litlu haldi, séu þeir ekki tengdir vegunum sem fyrir voru. Allar listir eiga sér bemskuskeið, blómatíma og hrörnunarskeið. Þeg- ar ákveðið listform fer að liröma verður að veita nýju hlóði í líffæri þess, endurnýja það. Það er þetta sem ungu skáldin liafa verið að gera — og með merkilega góðum árangri. Þau hafa neitað að láta fyrirber- ast í þeim hægindum sem sigrar forfeðranna liöfðu búið þeim, vitandi að í slíkum liægindum veslast menn upp. Það er sannleikur sem aldrei verður of oft ítrekaður að þegar menn hætta að þreifa fvrir sér hefur dauðinn setzt að. Ég held að við lifum nú hernskuskeið skáldskapar sem á eftir að verða menningu okkar lyftistöng. Bemskunni fylgja jafnan einhver afglöp og árekstrar, en það er hollt hverjum manni að reka sig á. Það hefur ævinlega þótt merki manndóms þegar börn eru mikil fyrir sér. Ungu skáldin eru að vinna menningunni þjónustu sem seint verður fullþökkuð. Ráðamenn þjóðarinnar eru einsog endranær glámskyggnir á þetta; skáldin lifa flest við sultarkjör og em hornrekur þeirrar menn- ingar sem þau gefa hjartablóð sitt. En það er gömul saga og heldur eflaust áfram að vera grimmilega sönn. Nú kynni einhver lilustenda minna að vilja spyrja: Er ljóðið þá ekki annað en þessar sundurlausu myndir sem þú liefur tínt úr ljóða-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.