Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 57

Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 57
PÉLAGSBRÉP 45 Sannleikann, Draum heimsins, Leitir o. fl. Haust endar þannig: Leitar skjóllaus maður að skjóli, myrkur grúfir yfir hverri vörðu Titrar þó í brjósti strengur vona sprottinna undan fingrum sumarsins, hrópa raddir á raddir, tónn á tóna. Þýtur vindur um upsir. í einstaka kvæði virðist skáldið dá- lítið miður sín, og er slíkt varla til- tökumál. Þannigværi Frelsi mjöggott kvæði, ef það tapaði ekki festu sinni í síðustu fjórum línunum. Illa finnst mér farið með áhrifamikið kvæði, Borgarljós, að láta það enda á mátt- lausu já-i. Sömuleiðis er fyrri hluti ljóðsins Laufin, trén, vindamir, sem ort er í minningu Magnúsar Ásgeirs- sonar, sérlega skáldlegur, en síðari hlutinn sýnu risminni. Og sviplítil eru upphafsorð ljóðsins Konan — borin saman við Hávamál, sem þau minna þó á: Löndin eru mikil og hugsanir mannanna litlar Hávamál: Lítilla sanda, lítilla sæva lítil eru geð guma. Ég get ekki látið hjá líða að nefna, að mér finnast tengsli skáldsins við þjóð sína og íslenzka náttúru eigi sem skyldi og varla í samræmi við innlifun hans í suðræna ljóðagerð. Fátt eitt er hér um náttúrumyndir, sem eigi gætu átt við önnur lönd jafnt sem ísland. Leitir og Haust eru undantekningar. Jafnvel tungl- skinið hjá J. Ó. fær yfir sig annar- legan blæ. Fjarlægast finnst mér skáldið þjóð sinni í ljóðinu Leit að fegurð, sem í sjálfu sér er einkar liaglega gert, en yfir því og myndum þess hvílir ókunnur svipur. Frágangur bókarinnar er all-sér- stæður. Geysistórt brot, svartar myndskreytingar, og hefur hinum fjöihæfa höfundi þeirra oft tekizt betur upp. Pappírinn er slæmur, svo að myndirnar sjást í gegnum hann, ietur feitt og svart. Er það allt í nokkru ósamræmi við hófsemi 1 jóð- anna. E. H. F. * Matthías Jóhannessen: BORGIN HLÓ. Helgafell 1958. Matthías Jóhannessen er nýr í ís- lenzkum skáldahópi, nýliði, sem fagna ber og gerðar verða kröfur til, því að hann fer vel af stað. Bók hans er full af skáldlegum sýnum, þungri alvöru, en eitthvað skortir stundum á, að sterkur heildarsvipur náist. Matthías Jóhannessen og Jón Ósk- ar eru ólík skáld, en báðir góðir full- trúar frá yngri skáldakynslóð. Við samanburð kemur í Ijós, að M.J. er fjöllyndari, J.Ó. fágaðri listamaður, enda eldra og reyndara skáld. Báðir eru alvörumenn gagnvart sjálfum sér og umhverfi sínu. J.Ó. er draum- lyndur áhorfandi, M.J. virkur þátt- takandi. En lífsnautn M.J. er eigi sterk. Hann yrkir nokkur ljóð um ástina, en aðeins í einu þeirra, Ást, virðist mér hún ein ráða heildar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.