Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 53

Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 53
BÆKUR Ólafía Jóhannsdóttir: RIT I—II. Hlaðbúð 1957. IT Ólafíu Jóhannsdóttur eru ekki mikil að vöxtum. Hún samdi tvær bækur, hvoruga stóra, og eru bær hér gefnar út í prýðilegasta bún- ingi. Sjálfsævisagan „Frá myrkri til ljóss“ er, svo langt sem hún nær, merkileg heimild um andlega sögu stórrar sálar, auk þess sem hún geym- ir margar verðmætar myndir af per- sónum og úr þjóðlífi liðinnar tíðar. Og bókin „ Aumastar allra" er einstæð í íslenzkum bókmenntum. Sviðið er útlent en veruleikinn alþjóðlegur, myndirnar dregnar af miklu listfengi og að segja má með hjartablóði höf- undar. Þessi bók er meðal þeirra verka, sem munu standa, þegar veður tímanna hafa sorfið í salla margan hnarreistan tind. Inngangur Bjarna Benediktssonar að þessari útgáfu er í ýmsu tilliti mjög mikils verður. Þar er drepið á ýmis atriði, sem varða sögu og gerð Ólafíu og geymzt hafa í minni ná- kunnugs fólks, og um persónu og innri sögu hennar er fjallað af nærfærnum skilningi og samúð. Eftirsjá er að því, að Ólafíu skyldi ekki endast ævi til þess að rita fram- hald sögu sinnar, eins og hún hafði áformað. Nafn þess framhalds var ráðið. Það átti að heita „T skóla trú- arinnar", og svo heitir mmningarrit- ið um hana, sem vinur hennar og samstarfsmaður hér heima, séra Sig- urbjörn Á. Gíslason, gaf út árið 1927. Má gera ráð fyrir því, að Ólafía hefði skýrt nánar frá ýmsum atrið- um trúarsögu sinnar, ef henni hefði auðnazt að segja sögu sína lengra. Nú tjósr ekki um þetta að sakast, en hitt má segja, að þessi stórvandaða útgáfa hefði enn vaxið að gildi, ef með hefði fylgt úrval blaðagreina eftir hana og bréfa. Hún var barn þeirrar aldar, þegar menn lögðu nokkuð af sál sinni í bréf sín og bæði einkabréf hennar og pistlar, sem birt- ust í blöðum, bera henni skýrt vitni, árvekni hennar, hugðum og hjarta- hita. Saga Ólafíu Jóhannsdóttur er saga stórgáfaðrar konu, sem vex upp í ís- lenzku menningarumhverfi, eins og það var traustlegast og frjóast á of- anverðri síðustu öld. Hún er fóstruð á grónu höfðingjasetri við sérstakt ástríki fágætrar úrvalskonu. Síðan er hún í skjóli móðursystur sinnar, hins einstaka skörungs, á heimili, sem flestum fremur var í brennidepli at- burða og áhugamála samtímans. Hún dvelst á fyrii-myndarheimili útvegs- bænda. Hún mótast af djarfhuga trú á framtíð þjóðarinnar og til þeirrar afstöðu, að henni sé skylt að þjóna lífinu, landinu, þjóðinni, mönnunum, án tillits til annars en þess, að sem mest gott megi af leiða og án þess að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.