Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 26

Félagsbréf - 01.04.1958, Blaðsíða 26
14 FELAGSBREF „Enginn í salnum lieyrði orð þín Ég elska er hurfu í hringiðu lagsins umkomulausari en nývaxin hlöð sem næðingar Iesa lokuðum augum af óþekktum trjám handa fljótunum“. Mvndirnar í „Con Amore“ í síðustu bók Einars Braga eru með því bezta sem frá lionum hefur komið, en ljóðið er of langt til að fara með það hér. Þá bef ég heyrt brot úr óprentuðum Ijóðaflokki eftir bann, og virðist mér bann þar hafa fundið sinn rétta tón. Hannes Sigfússon er einna myndríkastur yngri skáldanna, þótt stund- um tefli hann raunar á tæpasta vaðið í myndsköpun sinni. Tákn hans verða ósjaldan svo persónuleg, að þau líkjast einna helzt dulmáli eða öllu lieldur tætlum úr gamalli bók, þarsem sambengi einstakra setn- inga og mynda hefur glatazt. En myndir lians eru liver fyrir sig frum- legar og undarlega magnaðar. Hér eru nokkur dæmi tir seinni ljóðabók bans „Imbrudögum“: „Eins og gulnað lauf svífa dapurleg orð og leita athvarfs í lindinni sem fleytir þeim og vaggar þeim í svefn ...“ Og „Hægt og liægt opnaðisl röntgcnaugað. Handan við holdið er heinagrindin. Hægar og hægar snerist jörðin unz hún stóð kyrr í kirkjugarðinum“. og þetta: „Dagarnir flökta við gluggana líkt og kveikurinn sé þurr“. í prósaljóðunum aftast í bókinni standa m. a. þessar línur: „... og vindurinn sleit ópið af vörum mínum og grýtti því í apalurðina og vafði því að eyrum mín sjálfs“. Og „Og ég sá mennina fljóta út líkt og korklappa úr opnuðum flöskuskeytum“. „þá byrjaði líkin að reka á fjörurnar líkt og rifrildi úr gulnuöum sálmi, hlað eftir blað. Við tindum þau upp en reyndum ekki að hefta þau saman á ný“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.