Félagsbréf - 01.04.1958, Síða 17

Félagsbréf - 01.04.1958, Síða 17
PÉLAGSBRÉP 5 Árangurinn verður sá, að ýmsir, sem enginn veit til, að sýnt hafi minnstu hæfileika til listrænnar sköpunar, eru á háum lista- mannalaunum, en annarra, sem margt hafa gott gert, að engu getið á lista úthlutunarnefndar. Ungir menn, sem taldir voru vero- ugir listamannalauna í fyrra, eru óverðugir í ár, þó að þeir hafi margt birt síðan og séu í stöðugri framför. Þannig mætti lengi telja. Þórbergur Þórðarson er tckinn upp í heiðurslaunaflokk. Ekkert er út á það að setja. Þ. Þ. er stílsnillingur og hefur liaft mikil áhrif. En þeir em fleiri, sem þennan flokk ættu að fylla og verður alltaf gert rangt til, meðan látið er danka sem er. Hér þarf gerbreytingar við: í fyrsta lagi á úthlutunarnefnd listamannafjár að vera ópólitisk. f öðru lagi á ekki að veita nein- um af þessu fé, nema hann hafi gert eitthvað, er standist stranga gagnrýni. Ef þess yrði gætt, fækkaði þeim svo, er listamannalaun hlytu, að hægt yrði að miðla þeim einhverju, er þá munaði um. En til þess eru listamannalaun, að þau komi að gagn i þannig, að handhafar þeirra fái rýmri tíma en ella til að helga sig list sinni. IVýir útgáfuhættir Almenna bókafélagsins. I þessum mánuði sendir Almenna bókafélagið frá sér fyrstu mánaðarbók sína, og er gert ráð fyrir, að framvegis komi út á vegum félagsins ein bók á mánuði hverjum, a. m. k. tíu niánuði ársins. Þessir nýju útgáfuhættir eru fyrst og fremst teknir upp vegna galla hinna gömlu, er tíðkazt hafa meðal hérlendra bókafélaga, að félagsmönnum séu skammtaðar vissar bækur árlega, án þess að þeir ráði þar nokkru um. Með hinni nýju aðferð fá þeir nokk- urt valfrelsi, velja minnst f jórar bækur úr ákveðnum fjölda bóka. Annað athyglisvert við þessa nýbreytni er viðleitnin í þá átt að dreifa bókaútgáfunni jafnt á allt árið. Af ýmsum ástæðum er óhentugt, að margar bækur komi út í senn, hvað þá meiri hluti bóka ársins í einum mánuði, eins og orðin er venja á landi hér, til hins mesta óhagræðis fyrir lesendur og skaðræðis fyrir bókar- mennt þjóðarinnar.

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.