Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Blaðsíða 6
föstudagur 12. október 20076 Fréttir DV
Sandkorn
n Ógöngur Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar sem náðu hámarki
í gær voru aðeins toppurinn á
ísjakanum á litríkum ferli hans
í borgarstjórastóli. Eitt af fyrstu
verkum Vil-
hjálms sem
borgarstjóri
var að úthýsa
fyrirtækinu
Háspennu úr
Mjóddinni
en það rekur
spilakassa.
Borgin keypti
húsnæðið fyrir 92 milljónir króna
en Háspennu var úthlutað lóð
við Starhaga í staðinn. Vilhjálm-
ur sagði að lóðin væri 30 milljóna
króna virði en Háspenna græddi
20 milljónir þegar fyrirtækið seldi
lóðina fyrir 50 milljónir króna.
n Söngstjarnan Ruth Reginalds
er í klandri ef marka má Séð og
Heyrt sem lýsir nágrannaerjum
hennar í blokk á Kleppsvegin-
um. Tveir
nágrannar
stjörnunn-
ar segja ekki
stundlegan
frið í stiga-
ganginum
þar sem Ruth
sé daglangt
með óhljóð-
um og hendandi til húsgögnum
þegar hún deilir við barnsföður
sinn Joseph Leo Moore. Stjarnan
er síður en svo ánægð með um-
fjöllunina og mun hafa hug á að
kanna réttarstöðu sína.
n Fótspor skókonungsins Óskars
Axels liggja víða en hann hefur
stýrt stórveldi í framleiðslu
á tískuskóm sem sleg-
ið hafa víða í gegn
þótt reksturinn hafi
garið á hliðina. Séð
og Heyrt segir frá því að
Óskar hafi nú haslað sér
völl á nýjum vettvangi en hann
er orðinn verslunarstjóri hjá
Domino‘s þar sem hann afgreiðir
pitsur af sömu elju og hann áður
seldi skó.
GLÆSIBÆ S: 553 7060
MJÓDDINNI S: 557 1291
www.xena.is
Stærðir yfir kálfa: S-M-L-XL-XXL
N
ý
s
e
n
d
in
g
a
f
sk
ó
m
&
t
ö
sk
u
m
Mjóddinni & Glæsibæ
Sérverslun með
Guðfinnur Halldórsson bílasali hefur áratuga reynslu af bílasölu. Hann segir ekki sjálf-
gefið að góðir andar séu í bílum en minnist þess að hafa eitt sinn selt líkbíl sem greinilegt
var að góðir andar voru í. Sala mikið notaðra bíla hefur tekið kipp eftir að útlendingar
komu hingað til vinnu í meiri mæli svo Guðfinnur hefur alveg gefið upp á bátinn áform
um að flytja notaðar druslur til Afríku líkt og hann gerði fyrir nokrum árum.
Þú ert aldrei
einn í líkbílnum
Guðfinnur Halldórsson bílasali og
eigandi Bílasölu Guðfinns segir til-
komu erlends verkafólks hafa breytt
miklu fyrir markað notaðra bíla hér
á landi. Fyrir fáum árum tók Guð-
finnur á það ráð að senda um tíu
notaða og verðlitla bíla með flutn-
ingaskipi til Vestur-Afríku og seldi
þá þar. En með tilkomu erlenda
verkafólksins er vandamálið við að
selja gamla bíla algjörlega úr sög-
unni. „Íslendingar eru ekkert að
pæla í þessum gömlu bílum, svo við
fórum eina ferð, en þetta var erfitt
og flutningskostnaðurinn var mik-
ill, þannig að þetta borgaði sig ekki
alveg,“ segir hann og bætir við: „Bíl-
ar sem hafa verið á Íslandi hafa það
fram yfir marga bíla að þeir eru lítið
keyrðir og lítið slitnir. Tíu ára gamlir
bílar hér á landi eru oft ekki keyrðir
nema um 70 þúsund kílómetra. Það
er rétt búið að keyra þá til.“
Strákar á Range Rover
Guðfinnur segir mikla breyt-
ingu hafa orðið á bílavali Íslend-
inga á síðustu árum. „Ég sé að það
eru margir af þessum ofboðslega
dýru og flottu bílum á háum lán-
um að seljast. Þá er ég að tala um
bíla á fimm til átta milljónir króna
og það sem ég undrast mest er að
þetta eru mikið ungir strákar sem
búa heima hjá mömmu sem eru að
kaupa svona bíla. Íslendingar eiga
fleiri Range Rover-jeppa miðað við
höfðatölu en Sádi-Arabar.“ Þegar
mjög há bílalán eru tekin geta þau
valdið kaupendum vandræðum
því afskriftir nýrra bíla eru oft mjög
miklar. Guðfinnur segir það hins
vegar mjög sjaldgæft að fólk lendi
í því að missa bíla vegna ógreiddra
skulda. „Margir þessir strákar eru
mjög duglegir og eru í góðri vinnu
þannig að þeir greiða alltaf á réttum
tíma. Þetta eru einfaldlega hörku-
gæjar.“
Og Guðfinnur heldur áfram að
ræða um erlenda vinnuaflið. „Við
finnum það að Pólverjar og Portú-
galar eru að verða nokkuð fyrir-
ferðarmiklir á markaðnum, en þeir
eru upp til hópa mjög skynsamir
og kaupa frekar bíla sem þeir hafa
efni á. Þeir staðgreiða frekar bíl-
ana heldur en að taka há lán.“ Til að
mæta þessari eftirspurn hefur hann
nú ráðið til sín pólska stúlku sem
aðstoðar við sölu þegar samlandar
hennar eru annars vegar. Guðfinn-
ur segist viss um að þessi viðbót
hafi hjálpað mikið. „Ég held að þeir
komi jafnvel frekar til mín af því að
hjá mér er pólskur starfsmaður.“
Ert þú ennþá á lífi?
Eftir áratuga starf í bílasölu hefur
Guðfinnur upplifað margt misjafnt.
Hann minnist þess með hlátur í
huga þegar hann svaraði eitt sinn
í síma á bílasölunni með þessum
orðum: „Bílasala Guðfinns, góð-
an dag!“ Í símanum var kona sem
hljómaði eins og hún væri nokkuð
hissa á að vera að tala við Guðfinn
sjálfan. „Nú, er Guðfinnur ennþá
lifandi?“ spurði hún þá í símann.
Hann segir hana hafa fljótt áttað
sig á því að hún væri jafnvel að tala
af sér. Hún hafi því reynt hvað hún
gat til að bjarga sér fyrir horn. „Jæja,
vinur, ert þú kannski sonur hans?“
rifjar hann upp að konan hafi sagt
og hlær.
Önnur saga sem Guðfinnur hef-
ur gaman af að segja er um mann
sem hafði mikinn áhuga á að kaupa
forláta svartan skutbíl sem Guð-
finnur hafði til sölu. Það sem mað-
urinn vissi ekki strax var að bíllinn
var líkbíll frá Kirkjugörðum Reykja-
víkur. Guðfinnur seldi honum bíl-
inn og þakkaði honum viðskipt-
in með þessum orðum: „Þú verður
aldrei einn í þessum bíl.“ Hann tek-
ur þó fram að mjög góðir andar hafa
verið í líkbílnum góða. „Þessi bíll
reyndist alltaf mjög vel og það var
greinilega gott í honum. En það er
ekki sjálfgefið því stundum eru ein-
hverjir slæmir andar í bílum,“ seg-
ir hann hálfhikandi og snarþagnar.
„Æ, þetta er eiginlega of viðkvæmt
mál til að ræða í blöðum. En það
sem mestu máli skiptir er að lífið er
yndislegt og það eru forréttindi að
hafa fæðst í þessu landi.“
ValGEiR ÖRn RaGnaRSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
„Margir þessir strákar
eru mjög duglegir og
eru í góðri vinnu þannig
að þeir greiða alltaf á
réttum tíma. Þetta eru
einfaldlega hörkugæj-
ar.“
Guðfinnur Halldórsson „Með tilkomu
erlenda verkafólksins er vandamálið að
selja gamla bíla algjörlega úr sögunni.“