Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Blaðsíða 10
föstudagur 12. október 200710 Fréttir DV „Þetta er stór dagur í Reykjavík,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, nýskip- aður formaður sameinaðs borgar- stjórnarflokks F-lista, Framsókn- arflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna. Svandís verður jafnframt staðgengill borgarstjóra. Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknarmanna í borgarstjórn, sleit meirihlutasamstarfi borgar- stjórnar í gær. Hann tilkynnti Vil- hjálmi Þ. Vilhjálmssyni niðurstöð- una á hádegisfundi um leið og hann sagði samkomulag hafa náðst um myndun meirihluta Framókn- ar og allra minnihlutaflokkanna, F-lista, Samfylkingar og Vinstri grænna. Samkomulagið var hand- salað klukkan 2 í gær og Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar- innar, verður nýr borgarstjóri. Nýja meirihlutann mynda sömu flokk- ar og mynduðu Reykjavíkurlistann að viðbættum fulltrúa F-lista, hefur heitið REI-listinn þegar heyrst um nýja stjórnarsamstarfið. Mikil reiði greip um sig í sam- félaginu vegna fyrirhugaðrar sam- einingar dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur, Reykjavík Energy In- vest, REI, við Geysi Green Energy. Óánægju var að greina meðal al- mennings og flestra borgarfullrúa. Efast var um lögmæti sameining- arinnar, lögmæti eigendafundar- ins sem samþykkti sameininguna, kaupréttarsamninga lykilstarfs- manna og vinnubrögð borgar- starfsmanna og kjörinna fulltrúa í aðdraganda sameiningarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem borg- arstjórnarmeirihluti fellur í Reykja- vík og því um sögulegan atburð að ræða. Átakamikil saga Saga Reykjavik Energy Invest er stutt en afar átakamikil. Mikl- ar deilur spruttu upp innan borg- arstjórnar vegna ákvörðunar um sameininguna og reiðin kraumaði ekki síst innan raða borgarstjórn- arflokks Sjálfstæðismanna. Borg- arfulltrúarnir voru sárir út í Vil- hjálm borgarstjóra og fengu hann til þess að bakka með allar áætl- anir sínar. Svar Sjálfstæðismanna í borgarstjórn var að selja hlut Orkuveitunnar í REI. Fulltrúar minnihlutans svöruðu að bragði og kölluðu þetta katt- arþvott, sögðu innanflokksdeil- ur fórna hagsmunum borgarbúa og kröfðust afsagnar borgarstjóra. Vilhjálmur var í öllu moldviðrinu sakaður um lygar og ósamræmi í frásögnum. Sigrún Elsa Smára- dóttir, borgarfulltrúi Samfylking- arinnar, og Svandís Svavarsdótt- ir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, leiddu andstöðuna við vinnubrögð meirihlutans. Björn Ingi, forseti borgarráðs, var ekki hrifinn heldur. Hann var ósammála niðurstöðu borgar- stjórnarflokks Sjálfstæðismanna og ákvað á endanum að best væri að slíta meirihlutasamstarfinu vegna ágreiningsins. Um tíma voru bæði Björn Ingi og Vilhjálm- ur í nauðvörn vegna málsins en nú stendur hinn fyrrnefndi eftir með pálmann í höndunum. Takast í hendur Nýju samstarfsflokkarn- ir í meirihlutanum héldu blaða- mannafund í gær þar sem nið- urstaðan var kynnt. Dagur borgarstjóri segir aðdragand- ann að samstarfinu stuttan og að flokkarnir ætli að taki sér tíma í að setja saman málefnaáherslur sín- ar. Hann segir áherslu meirihlut- ans vera á fagleg, fumlaus og lýð- ræðisleg vinnubrögð. Aðspurður um þátt Björns Inga í deilumálum undanfarið sagði Dagur hann vera búinn að gera hreint fyrir sínum dyrum. „Björn Ingi hefur gert grein fyrir sínum þætti og var eini mað- urinn innan borgarstjórnar sem boðist hefur afsökunar á ákveðn- um hlutum. Hann hefur lýst því yfir að hann sé tilbúinn í að vinna að almannahagsmunum með okk- ur, segir Dagur. Svandís tekur í sama streng og segist þess fullviss að Björn Ingi eigi heima í nýja meirihlutasam- starfinu. Hún vonast til þess að margt jákvætt eigi eftir að koma út úr samstarfinu til hagbótar fyrir borgarbúa. „Við þolum að takast á en við þolum líka að takast í hend- ur,“ sagði Svandís. Baðst afsökunar Björn Ingi segir talsvert hafa gengið á síðustu daga sem hafi leitt til þess að hann hafi ekki lengur séð grundvöll fyrir áframhaldandi samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir eitthvað mikið að á þeim bænum. „Undanfarið hefur komið í ljós áherslumunur milli þeirra flokka sem mynduðu meiri- hlutasamstarfið. Margt af því sem kom fram tók ég mjög nærri mér en eftir að allt hafði komið í ljós fór ég vel fyrir málið. Ég tel óein- inguna innan borgastjórnaflokks Sjálfstæðisflokksins slíka að erfitt yrði að starfa með honum áfram, segir Björn Ingi. „Samstarf mitt við Vilhjálm var gott og sömuleiðis við flesta borg- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Ólgan innan þeirra raða á sér lík- lega djúpar rætur sem þeir þurfa að kryfja til mergjar. Ég hef lýst ná- kvæmlega aðdraganda málsins og sjálfur tel ég að fleiri hefðu mátt taka sér það til fyrirmyndar að segja staðreyndir málsins. Tiltekn- ir þættir hafa sætt mikilli gagn- rýnni og ég hef beðist afsökunar á þátttöku minni þar á. Mér er sagt að það gerist ekki oft í íslenskum stjórnmálum og er ánægður að brjóta þar blað.“ Ekki sannfærandi Gunnar Helgi Kristinsson, próf- essor í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands, segir Björn Inga hafa verið í lykilstöðu síðustu daga eftir að ljóst var að borgarstjóri nyti ekki trausts sinna eigin borgarfulltrúa. „Á endanum var það í höndum Björns Inga hvert framhaldið yrði og á hvað hann væri til í að sættast. Málið var í höndum Björns Inga og spurning hvort hann væri tilbúinn í að éta ofan í sig eða ekki,“ segir Gunnar Helgi. Stefanía Óskarsdóttir stjórn- málafræðingur segir ljóst að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæð- isflokks stóð frammi fyrir veruleg- um vanda. Hún segir málið ekki hafa verið eins mikið smámál og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins reyndu að halda fram. „Það var ljóst að Björn Ingi ætlaði ekki sömu leið og þeir. Enda hefði hann þá þurft að lúffa gjörsamlega og slíkt er væntanlega óásættanlegt í hans huga þó að borgarstjóri hafi þurft að gera slíkt hið sama. Það segir meira um stöðu borgarstjóra innan síns hóps. Fullyrðingar Sjálf- stæðismanna í borgarstjórn að allt hafi verið í góðu lagi virkuðu alls ekki sannfærandi,“ segir Stefanía. Valdarán Margrétar Frjálslyndir eru æfir út í Mar- gréti Sverrisdóttur, en hún stofnaði síðasta vetur Íslandshreyfinguna ásamt Ómari Ragnarssyni og situr því ekki lengur í borgarstjórn fyrir Frjálslynda flokkinn. „Margrét hef- ur stolið sæti sínu í borgarstjórn og sækir vald sitt ekki til neins, hvorki til kjósenda né yfirstjórnar flokks- ins. Aðgerðir Margrétar eru ekkert annað en valdarán um hábjartan dag,“ segir Eiríkur Stefánsson mið- stjórnarmaður í Frjálslynda flokkn- um. „Margrét Sverrissdóttir var ein þeirra sem gagnrýndi Gunnar Örn Örlygsson hvað harkalegast þegar hann yfirgaf Frjálslynda flokkinn og talaði um siðleysi. Nú gerir hún sjálf það nákvæmlega sama og staða hennar er þess vegna ótrú- lega veik. Þetta meirihlutasamstarf er ekki í okkar nafni,“ segir hann. Aspurður telur Gunnar Helgi það hafa verið klókt útspil hjá Birni Inga að ná meirihlutasam- starfi með fyrrum minnihluta- flokkum. Jafnframt telur hann það klókt að hann hafi ekki tekið að sér borgarstjóraembættið. „Komandi úr litlum flokki myndi það virka ankanalega á kjósendur og því má ekki gleyma að reiði manna beind- ist að hluta til líka að honum sem þátttakanda í ferlinu. Ég held að það hefði ekki gert sig að lyfta Birni Inga upp í borgarstjórastólinn. Á hinn bóginn er það klókt hjá Sam- fylkingu að setjast ekki í meirihluta með Sjálfstæðisflokki því flokkur- inn hefur spilað sig sem mótvægi við flokkinn,“ segir Gunnar Helgi. dagur VErÐur BOrgarSTJÓrI Nýr meirihluti tók við völdum í Reykjavík eftir að meirihlutasamstarfi Fram- sóknarflokks og Sjálfstæð- isflokks var slitið. Síðustu daga voru tennurnar dregnar úr borgarstjóra og hatrammar deilur innan Sjálfstæðisflokksins urðu til þess að flokkurinn situr nú einn eftir í minnihluta borgarstjórnar. Dagur B. Eggertsson, oddiviti Sam- fylkingarinnar, verður borgarstjóri í samstarfi Framsóknar og fyrrum minnihlutaflokkanna í borgarstjórn. „Á endanum var það í höndum Björns Inga hvert framhaldið yrði og á hvað hann væri til í að sættast. Málið var í höndum Björns Inga og spurning hvort hann væri tilbú- inn í að éta ofan í sig eða ekki.“ Oddvitarnir mæta oddvitar listanna sem mynda nýja meirihlutann gengu að Iðnó í gær til að kynna nýja samstarfið. Margrét sverrisdóttir, sem skipar sæti frjálslyndra og óháðra, svandís svavarsdóttir vinstri-grænum, dagur b. eggertsson samfylkingu og björn Ingi Hrafnsson framsóknarflokki. Sjálfstæðismenn þöglir borgarfull- trúar sjálfstæðisflokksins vildu ekkert tjá sig þegar þeir gengu út úr Höfða. Þá var ljóst að þátttöku þeirra í meirihlutasamstarfi í reykjavík væri lokið. dV-myndir sigtryggur ari Jóhannsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.