Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Blaðsíða 41
Starfsferill
Kjartan fæddist í Reykjavík 5.12.
1967 og ólst þar upp í Vesturbænum.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1988
og stundaði nám í sagnfræði við HÍ
1990-93.
Kjartan var blaðamaður við Morg-
unblaðið 1991-99, hefur verið borg-
arfulltrúi frá 1999 en auk þess stund-
að blaðamennsku og ráðgjafarstörf.
Hann var stjórnarformaður Intel-
Scan örbylgjutækni 2000-2004.
Kjartan sat í stjórn Heimdall-
ar 1989-93, var formaður félagsins
1991-93, sat í stjórn Fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík 1991-
93, var varaborgarfulltrúi í Reykja-
vík 1994-99, sat í stjórn Strætisvagna
Reykjavíkur 1994-2000, í húsnæð-
isnefnd Reykjavíkur 1995-98, í heil-
brigðisnefnd Reykjavíkur 1996-98,
í jafnréttisnefnd Reykjavíkur 1994-
2002, í stjórn Vinnuskóla Reykjavík-
ur 1998-2002, í samstarfsnefnd um
löggæslumálefni í Reykjavík 1998-
2002, í ÍTR 1998-2005, í þjóðhátíðar-
nefnd Reykjavíkur 2000-2006, í sam-
göngunefnd Reykjavíkur 2000-2005,
í stjórn Alþjóðahússins ehf. 2001-
2003, í hverfisráði Vesturbæjar 2002-
2006, í umhverfisráði 2005-2006, í
framkvæmdaráði Reykjavíkurborg-
ar 2005-2006, og í skipulagsnefnd
2005-2006.
Kjartan situr nú í borgarráði, er
formaður menningar- og ferðamála-
ráðs, er varaformaður stjórnar Faxa-
flóahafna sf., er formaður nefndar
um gerð umferðaröryggisáætlunar
fyrir Reykjavík 2002-2007 og er vara-
maður í stjórn Orkuveitu Reykjavík-
ur. Þá er hann formaður Umferðar-
ráðs.
Fjölskylda
Kona Kjartans er Guðbjörg Sigur-
geirsdóttir, f. 19.5. 1968, hjúkrunar-
fræðingur. Hún er dóttir Sigurgeirs
Mons Olsen bifreiðarstjóra og Fjólu
Oddnýjar Sigurðardóttur húsmóður.
Börn Kjartans og Guðbjargar eru
Snæfríður, f. 13.7. 1999; Magnús Geir,
f. 30.12. 2001.
Bróðir Kjartans er Andrés Magn-
ússon, f. 28.4. 1965, blaðamaður við
Viðskiptablaðið, en kona hans er
Auðna Hödd Jónatansdóttir.
Hálfsystir Kjartans er Guðrún
Magnúsdóttir, f. 11.2. 1956, húsmóð-
ir í Reykjavík, gift Jóhanni Hilmars-
syni.
Foreldrar Kjartans: Magnús Þórð-
arson, f. 6.9. 1932, d. 12.10. 1992,
framkvæmdastjóri Upplýsingaskrif-
stofu Atlantshafsbandalagsins á Ís-
landi, og Áslaug Ragnars, f. 23.4.
1943, rithöfundur.
Ætt
Magnús var sonur dr. Þórðar,
hæstaréttardómara, bróður Andr-
ésar, alþm. í Síðumúla í Hvítársíðu.
Þórður var sonur Eyjólfs, b. á Kirkju-
bóli í Hvítársíðu, bróður Katrínar,
ömmu Guðmundar Í. Guðmunds-
sonar ráðherra. Eyjólfur var einnig
bróðir Magnúsar, prófasts og alþm.
á Gilsbakka, föður Péturs ráðherra,
föður Ásgeirs, fyrrverandi alþm. og
bæjarfógeta. Þá var Eyjólfur bróð-
ir Páls, langafa Andrésar Valdimars-
sonar sýslumanns, og Geirs Gunn-
arssonar, fyrrv. alþm., föður Lúðvíks,
bæjarstjóra í Hafnarfirði. Eyjólfur var
sonur Andrésar, hreppstjóra í Syðra-
Langholti, bróður Helga í Birtinga-
holti, föður Ágústs, alþm., afa Helga
heitins leikara og Ólafs biskups
Skúlasona. Andrés var sonur Magn-
úsar, alþm. í Syðra-Langholti Andr-
éssonar. Móðir Andrésar í Syðra-
Langholti var Katrín Eiríksdóttir,
ættföður Reykjaættar Vigfússonar, og
Ingunnar Eiríksdóttur, ættföður Bol-
holtsættar Jónssonar. Móðir Eyjólfs
var Katrín Eyjólfsdóttir frá Snorra-
stöðum. Móðir Þórðar var Guðrún
Brynjólfsdóttir frá Eystri-Kirkjubæ á
Rangárvöllum.
Móðir Magnúsar Þórðarsonar
var Halldóra Magnúsdóttir, útgerð-
armanns í Reykjavík Magnússonar,
formanns á Nesi við Seltjörn Guð-
mundssonar. Móðir Halldóru var
Ragnheiður Guðmundsdóttir, í Of-
anleiti í Þingholtunum í Reykjavík
Sigurðarsonar, og Ragnheiðar Árna-
dóttur, b. í Narfakoti Hallgrímssonar,
pr. í Görðum á Akranesi Jónssonar,
stiftprófasts á Staðastað Magnússon-
ar, bróður Skúla fógeta. Móðir Árna
var Guðrún Egilsdóttir, systir Svein-
björns rektors, föður Benedikts
Gröndal skálds og Sigríðar Böndal,
langömmu Sveinbjargar Kjaran,
ömmu Birgis Ármannssonar alþm.
Áslaug er dóttir Kjartans Ragn-
ars, sendifulltrúa í Reykjavík, bróð-
ur Ólafs Ragnars, föður Gunnars,
fyrrv. framkvæmdastjóra Útgerðarfé-
lags Akureyringa en systir Kjartans er
Guðrún Ragnars, móðir Sunnu Borg
leikkonu. Kjartan er sonur Ragnars
Friðriks, stórkaupmanns á Akureyri
Ólafssonar, gestgjafa á Skagaströnd
Jónssonar. Móðir Ragnars var Val-
gerður Narfadóttir, hreppstjóra á
Kóngsbakka í Helgafellssveit Þorleifs-
sonar. Móðir Kjartans var Guðrún,
dóttir Jóns Á. Johnsen, sýslumanns
á Eskifirði, bróður Þóru, móður Ás-
mundar Guðmundssonar biskups.
Jón var sonur Ásmundar, prófasts í
Odda Jónssonar og Guðrúnar Þor-
grímsdóttur, systur Gríms Thoms-
en. Móðir Guðrúnar Jónsdóttur var
Þuríður, systir Guðnýjar, langömmu
Jónasar Haralz, fyrrv. bankastjóra.
Þuríður var dóttir Hallgríms, prófasts
á Hólmum við Reyðarfjörð, bróð-
ur Benedikts, föður Hallgríms, stór-
kaupmanns og alþm., föður Geirs
forsætisráðherra. Systir Hallgríms
var Sólveig, móðir Kristjáns ráð-
herra, Péturs ráðherra og Steingríms
alþm. og bæjarfógeta Jónssona auk
þess sem Sólveig var amma Haraldar
Guðmundssonar ráðherra og lang-
amma Jóns Sigurðssonar, fyrrv. iðn-
aðarráðherra. Hallgrímur var son-
ur Jóns, ættföður Reykjahlíðarættar
Þorsteinssonar.
Móðir Áslaugar Ragnars er Ólafía
Þorgrímsdóttir skipstjóra Sigurðs-
sonar. Móðir Ólafíu var Guðrún Jóns-
dóttir, Jónssonar, á Fossi Einarsson-
ar. Móðir Jóns var Guðný Jónsdóttir,
á Heiði í Mýrdal Jónssonar, skálds og
pr. á Bægisá Þorlákssonar.
DV Ættfræði Föstudagur 12. október 2007 41
Kjartan Magnússon
borgarfulltrúi
Ingvar Jónasson
fyrrv. aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar áhugafólks
Ingvar fæddist á Ísa-
firði og ólst þar upp.
Hann lauk gagnfræða-
prófi á Ísafirði, prófi frá
Samvinnuskólanum
1947, lauk sveinsprófi í
prentun á Ísafirði 1947,
stundaði nám við Tón-
listarskólann í Reykja-
vík, lauk burtfararprófi í
fiðluleik 1950 en kennari
hans var Björn Ólafsson
konsertmeistari. Ingvar
stundaði nám í fiðluleik í
London hjá Henry Holst,
1950-53, spilaði með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands 1953-55
er hann hélt til Vínarborgar þar
sem hann stundaði fiðlunám hjá
Ernst Morawic Hann kom aftur
heim 1957, hóf þá aftur að leika
með Sinfóníuhljómsveit Íslands
og stundaði auk þess kennslu
við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Fjölskyldan flutti síðan til Malmö
í Svíþjóð 1972 þar sem Ingvar var
fyrsti víóluleikari Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Malmö í níu ár, en
lék síðan með Óperuhljómsveit-
inni í Stokkhólmi í átta ár.
Ingvar flutti aftur heim 1989
og lék þá með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands til 1996. Auk þess
kenndi hann við Tónlistarskól-
ann til sama tíma.
Ingvar, Páll Einarsson jarðeðl-
isfræðingur og ýmsir fleiri stofn-
uðu Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna árið 1990 og var
Ingvar aðalstjórnandi
hljómsveitarinnar til
2005 er Oliver Kentish
tók við aðalstjórn henn-
ar.
Ingvar hefur verið
einleikari með ýmsum
hljómsveitum, einkum á
Norðurlöndunum. Þess
má geta að Ingvar hefur
lagt sig eftir því að koma
íslenskri nútímatónlist á
framfæri, á Noðurlönd-
unum og víðar í Evrópu.
Hann var var sæmdur
riddarakrossi fálkaorðunnar fyr-
ir framlag sitt til tónlistarlífs hér
á landi.
Eiginkona Ingvars er Stella
Margrét Sigurjónsdóttir, f. á
Siglufirði 1935, húsmóðir og
tannfræðingur. Börn þeirra eru
Sigurjón Ragnar, f. 1957, prent-
ari í Reykjavík; Vigfús, f. 1958 yf-
irmaður hljóðtækni hjá SkjáEin-
um; Anna, f. 1964, fiðluleikari í
Stokkhólmi. Barnabörnin eru nú
sjö talsins.
Foreldrar Ingvars voru Jónas
Tómasson, f. 1881, d. 1967, bók-
sali, organisti og tónskáld á Ísa-
firði sem stofnaði Sunnukórinn,
elsta blandaða kór á Íslandi, og
k.h., Anna Ingvarsdóttir, f. 1900,
d. 1943, húsmóðir.
Ingvar heldur uppá afmælið í
faðmi fjöldskyldunnar.
Gísli fæddist við
Hverfisgötuna í Reykja-
vík en ólst upp við Grett-
isgötuna. Hann stundaði
nám við Iðnskólann, lauk
meistaraprófi í skósmíði
1950 og lauk einleiks-
prófi í flautuleik við Tón-
listarskólann í Reykjavík
sama ár, fyrstur manna
á tréblásturshljóðfæri.
Gísli hefur stundað skó-
smíði allan sinn starfs-
feril, lengst af í Lækjar-
götu 6. Gísli spilaði með
lúðrasveitinni Svanur í
fimmtíu og þrjú ár og með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands í þrjú ár.
Eiginkona Gísla var Sólrún
Þorbjörnsdóttir, f. 1928, d. 2006,
húsmóðir. Börn þeirra er Guð-
ríður, f. 1954, kennari og flautu-
leikari í Noregi; Kolbeinn, f. 1955,
skósmiður og stoðtækja-
fræðingur í Reykja-
vík; Ólafur Haukur, f.
1957, verslunarmaður í
Reykjavík; Magnea Auð-
ur, f. 1959, ferðaþjón-
ustufræðingur í Reykja-
vík; Þorbjörn Reynir,
f. 1960, framkvæmda-
stjóri hjá Eimskipi í
Bandaríkjunum; Gísli, f.
1963, blómakaupmað-
ur í Reykjavík; Matthías
Rúnar, f. 1969, bæklun-
arskósmiður.
Foreldrar Gísla voru
Ferdinand Róbert Eiríksson, f.
1891, d. 1978, skósmíðameist-
ari, lengst af á Hverfisgötu 43, og
k.h., Magnea Guðný Ólafsdóttir,
f. 1895, d. 1981, húsmóðir.
Gísli verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Margrét Pála er höf-
undur Hjallastefnunn-
ar, nýrrar leiðar í skóla-
starfi. Hún útskrifaðist
frá Fósturskóla Íslands
1981, lauk diplóma í
stjórnun frá sama skóla
1996 og lauk masters-
gráðu í uppeldis- og
kennslufræðum frá KHÍ
2000. Margrét Pála er
höfundur bóka og fjölda
greina um Hjallastefn-
una og uppeldismál.
Hún hefur haldið fyrir-
lestra og námskeið um
málefni kynjanna, hér á landi
og erlendis, og staðið að þró-
un tölvukerfa fyrir leikskóla en
rekstrarkerfið Stjórnandinn og
vefumsjónarkerfið leikskolinn.is
sem Hjallastefnan ehf rekur, eru
afurð samvinnu þeirra Matthías-
ar Matthíassonar.
Margrét Pála hef-
ur verið skólastjóri leik-
skólans Steinahlíðar,
leikskólans Hjalla, leik-
skólans Reykjakots og
Barnaskóla Hjallastefn-
unnar. Þá hefur hún verið
formaður Samtaka sjálf-
stæðra skóla frá stofnun
2005. Hún hlaut íslensku
Jafnréttisverðlaunin árið
1997 fyrir Hjallastefnuna
og riddarakross hinnar
íslensku fálkaorðu árið
2006 fyrir frumkvæði í
menntamálum.
Maki Margrétar Pálu er Lilja S.
Sigurðardóttir, fræðslufulltrúi hjá
Hjallastefnunni. Dóttir Margrétar
Pálu er Brynja Jónsdóttir. Margrét
Pála á þrjú barnabörn.
Margrét Pála heldur upp á af-
mælið með fjölskyldu sinni er-
lendis.
50 ára á laugardag
Margrét Pála Ólafsdóttir
60
ára á
laugardag
Gísli Ferdinandsson
skósmíðameistari
80
ára á
laugardag
80
ára á
laugardag
MAÐUR VIKUNNAR
Kjartan Magnússon borgarfull-
trúi er formaður menningar-
og ferðamálaráðs sem hefur
haft veg og vanda af gerð frið-
arsúlunnar í Viðey og undirbú-
ið athöfnina sem þar fór fram
er friðarljósið var tendrað á
fæðingardegi Johns Lennon á
þriðjudaginn.