Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Blaðsíða 31
DV Sport Föstudagur 12. október 2007 31
Ísland mætir Lettum á laugardag. Eyjólfur Sverrisson segir andrúmsloftið gott á meðal
leikmanna og að þeir þekki hlutverk sín vel:
Íslenska landsliðið í knattspyrnu
spilar tvo leiki í undankeppni Evr-
ópumótsins við Letta og Liecht-
ensteina á næstu dögum. Leikur-
inn við Letta fer fram á laugardag
á Laugardalsvelli en hann verður
síðasti heimaleikur liðsins í undan-
keppninni. Íslenska liðið er vel und-
irbúið að mati Eyjólfs Sverrisson-
ar landsliðsþjálfara og Eiður Smári
Guðjohnsen telur tíma til kominn
að liðið standi undir væntingum
sem til þess eru gerðar.
Okkar að finna glufur á vörn
Letta
Gera má ráð fyrir því að íslenska
landsliðið sæki til sigurs en Eyjólf-
ur Sverrisson landsliðsþjálfari tel-
ur mikilvægt að vara sig á Lettum.
„Það er létt yfir mannskapnum og
við höfum reynt að vinna að und-
anförnu í því að láta hvern mann
þekkja sitt hlutverk í liðinu. Okk-
ar markmið er að ná árangri með
sterkri liðsheild og það er lykilinn
að árangri að okkar mati. Við erum
ekki búnir að ákveða leikskipulagið
en við vitum að Lettar munu spila
aftarlega og sækja hratt. Þannig
spiluðu þeir á móti Írum þegar þeir
unnu þá 1-0 í síðasta heimaleik. Það
er því okkar hlutverk að finna glufur
á vörninni en engu að síður verðum
við að passa okkur á skyndisóknun-
um.
Ég á von á því að þetta verði jafn
leikur og þeir eru með svipað lið og
spilaði í Evrópukeppninni síðast.
Við þurfum því góðan leik og gott
hugarfar hér í síðasta heimaleikinn.
Við hugsum ekkert um fyrri leikinn
gegn þeim og við munum einbeita
okkur að þeim sigurvilja sem hef-
ur einkennt íslenska liðið í undan-
förnum leikjum og reyna að byggja
Viðar GuðjónssOn
blaðamaður skrifar: vidar@dv.is
Tilbúnir í slaginn
gott andrúmsloft er meðal strákanna, að
sögn eyjólfs sverrissonar landsliðsþjálfara.
Til taks á ný eiður smári guðjohnsen segir íslenska
liðið stefna á sigur gegn Lettum. Hér er hann að kenna
arnari Þór Viðarssyni að sparka út í loftið en arnar var
fljótur að ná því enda atvinnumaður fram í fingurgóma.
á því.“
Indriði Sigurðsson var kallaður
inn í hópinn en Hermann Hreiðars-
son er í leikbanni í leiknum á móti
Lettum. Eyjólfur segir þá ráðstöfun
hins vegar ekki endilega vera hrein
skipti maður fyrir mann. „Indriði
er búinn að standa sig gríðarlega
vel með Lyn í Noregi og hann hefur
unnið sér inn sæti með góðri spila-
mennsku. Hermann verður í kring-
um hópinn og spilar síðan gegn Li-
echtenstein. Hann er náttúrlega einn
af fyrirliðum þessa liðs og drifkraftur
mikill enda mikilvægur fyrir okkur í
þessari baráttu,“ segir Eyjólfur Sverr-
isson landsliðsþjálfari.
Mikilvægt að halda áfram á
sömu braut
„Standið á mér er ágætt og hnéð
er bara nokkuð gott þótt það angri
mig smávegis. Ég bíð bara eftir því
að fá tækifæri hjá Barcelona og er ró-
legur yfir því. Það kemur bara þegar
það kemur en á meðan ég er hér ein-
beiti ég mér bara að þessum leikjum
sem eru fram undan. Þessir leikir við
Letta og Liechtenstein leggjast bara
vel í mig en þeir eru ólíkir mörgum
öðrum að því leyti að nú búast allir
við okkar sigri. Það hefur hins veg-
ar stundum orðið okkur að falli en
það er alveg kominn tími til þess að
við stöndum undir væntingum. Það
er mikilvægt að halda áfram á sömu
braut en síðast náðum við fjórum
stigum úr tveimur leikjum og það var
nálægt því að vera eins gott og hægt
var. Við ætlum að byggja á þeirri
stemningu sem myndaðist þar og
halda okkur á þessari braut áfram,“
segir Eiður Smári Guðjohnsen, fyr-
irliði íslenska landsliðsins. Líklegt
þykir að hann byrji inn á í þessum
leikjum sem eru fram undan en Eið-
ur lék lítið í síðustu landsleikjatörn
þar sem hann var við það að koma til
baka úr hnémeiðslum sem hafa ver-
ið að angra kappann.
laugardag?
lettar lagðir á
Í daG
18:00 BOLTOn - CheLsea
19:40 newCasTLe - eVerTOn
21:20 PreMier LeaGue wOrLd
Heimur úrvalsdeildarinnar
21:50 PL CLassiC MaTChes
bestu leikir úrvalsdeildarinnar
Hápunktarnir úr bestu og
eftirminnilegustu leikjum
úrvalsdeildarinnar.
22:20 PL CLassiC MaTChes
bestu leikir úrvalsdeildarinnar
22:50 GOaLs Of The seasOn
öll glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar
Úrvalsdeildarinnar frá upphafi til
dagsins í dag.
23:50 BOLTOn - CheLsea
LauGardaGur
13:55 MasTers fOOTBaLL
Coventry Masters
gömlu brýnin leika listir sínar, stjörnur á
borð við Matt Le tissier, glen Hoddle,
Ian Wright, Paul gascoigne, Lee sharpe,
Jan Mölby og Peter beardsley.
16:10 PreMier LeaGue wOrLd
Heimur úrvalsdeildarinnar
16:40 PL CLassiC MaTChes
bestu leikir úrvalsdeildarinnar
17:10 PL CLassiC MaTChes
bestu leikir úrvalsdeildarinnar
17:40 GOaLs Of The seasOn
öll glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar
Úrvalsdeildarinnar frá upphafi til
dagsins í dag.
18:40 Man. uTd - wiGan
20:20 arsenaL - sunderLand
22:00 MasTers fOOTBaLL
Coventry Masters
gömlu brýnin leika listir sínar, stjörnur á
borð við Matt Le tissier, glen Hoddle,
Ian Wright, Paul gascoigne, Lee sharpe,
Jan Mölby og Peter beardsley.
sunnudaGur
13:50 MasTers fOOTBaLL
Midland Masters
gömlu brýnin leika listir sínar, stjörnur á
borð við Matt Le tissier, glen Hoddle,
Ian Wright, Paul gascoigne, Lee sharpe,
Jan Mölby og Peter beardsley.
16:10 PreMier LeaGue wOrLd
Heimur úrvalsdeildarinnar
16:40 PL CLassiC MaTChes
bestu leikir úrvalsdeildarinnar
17:10 PL CLassiC MaTChes
bestu leikir úrvalsdeildarinnar
17:40 GOaLs Of The seasOn
öll glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar
Úrvalsdeildarinnar frá upphafi til
dagsins í dag.
18:40 LiVerPOOL - TOTTenhaM
20:20 BOLTOn - CheLsea
22:00 MasTers fOOTBaLL
Midland Masters
gömlu brýnin leika listir sínar, stjörnur á
borð við Matt Le tissier, glen Hoddle,
Ian Wright, Paul gascoigne, Lee sharpe,
Jan Mölby og Peter beardsley.
ÍÞrÓttaMOlar
Tennis TiL sTyrkTar
kraBBaMeinsféLGs ÍsLands
Á laugardaginn fer fram kvennamót í
tennis til styrktar krabbameinsfélagi
Íslands. Mótið hefst klukkan 16:30 en
skráning hefst klukkan 15:30. um er að
ræða tvíliðaleiks skemmtimót. Verðlaun
verða veitt fyrir flestar lotur unnar og
ýmis önnur skemmtileg verðlaun verða
í boði. Þátttökugjald er fimm þúsund
krónum og allur ágóðinn rennur til
krabbameinsfélags Íslands. Innifalið í
verðinu er matur, bolur, leðurveski og
fleira. öll vinna í kringum mótið er
sjálfboðavinna.