Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Page 18
Lögreglan á Íslandi er um margt einstök. Í miðborginni er tek-ið á hvers kyns subbuskap og siðvæðing er á fullu. Stefán Eiríks- son, lögreglustjóri höfuðborgar- svæðisins, er ein af uppáhaldslögg- um Svarthöfða. Hann er góði gæinn með handjárnin sem fer út á meðal fólksins, fótgangandi, og ræðir jöfn- um höndum við glæpamenn og góðborgara. Svona eiga löggur að vera. En það er önnur yfirlögga sem minna fer fyrir. Sá heitir Haraldur Johannessen og er ríkislögreglu- stjóri. Hann fer helst ekkert fótgang- andi en er meira að sinna stórum málum á alþjóðavísu. Haraldi hefur því miður mistekist illa við að góma hvítflibba og embætti hans hefur sett nokkur hundruð milljónir í mál sem hafa tapast. Nú þorir Svarthöfði varla að nefna Baug á nafni því þar með verður hann strax Baugsmið- ill. En það ætti að vera óhætt að nefna málverkafölsunarmálið sem reyndist vera innantómt hjóm eft- ir að rannsókn hafði staðið árum saman. Haraldur var þó auðvit- að að gera skyldu sína með því að rannsaka málið til hlítar og það er þá komið á daginn að flestir voru saklausir. Sama gildir þá væntanlega um Baugs- málið. Ítarleg rannsókn hefur leitt í ljós að flestir voru saklausir. Það vottorð er aldrei of dýru verði keypt og ósanngjarnt að halda því fram að Haraldur sitji einungis í embætti af því að hann hafi skjól af dómsmálaráðherra og sé af réttum ættum. Það var líka mjög ósmekklegt að upplýsa að Haraldi varð það á að hóta manni lífláti á Vínbarnum. Þar voru teknar skýrslur en að sjálfsögðu séð til þess að þær týndust í kerfi lögreglunnar. Þetta var smámál og fjöldi manns hefur lent í því af grandaleysi að hóta öðrum lífláti án þess að ætla sér annað en orðin tóm. Svarthöfði hefur sjálfur lent í þessu í reiðikasti á rétt- ardansleik þegar hann sagði við rogginn fjárbónda: „Ég drep þig, helvítið þitt.“ Þetta hefur nagað samvisku Svarthöfða síðan og sem betur fer gerðist þetta fyrir tíma Stef- áns Eiríkssonar sem tekur á smæstu málum. Nýjasta herferð lögreglunn-ar snýr að ritstjórum og ábyrgðarmönnum tímarita og blaða sem grunaðir eru um að hafa auglýst áfengi eða bjór. Mik- ill mannafli hefur verið settur í að rannsaka þá ósvinnu að fólk skuli vekja athygli á vímugjöfum sem íslenska ríkið selur. Það skiptir auð- vitað engu máli þótt erlend tímarit séu uppfull af auglýsingum um áfengi eða tóbak. Svona gerum við ekki á Íslandi og Svarthöfði hefur af því sára reynslu að áfengisauglýs- ing sem hann sá í tímaritinu Nýtt líf varð til þess að hann fór í ríkið og endaði á réttardansleik þar sem hann hótaði fjárbóndanum lífláti. Ekki er ótrúlegt að ríkislögreglu- stjóri hafi rekist á ginauglýsingu í Vikunni og orðið svo uppnæmur að hann fór á Vínbarinn og missti út úr sér líflátshótun. Og það er eðlilegt að hvorki Svarthöfði né Harald- ur lögga verði lögsóttir. Það þarf að leita að rót vandans. Sérsveit- in þarf að gera samhæfða innrás á helstu fjölmiðla landsins og hand- taka ritstjóra sem auka á ógæfu mektarmanna með því að hvetja til drykkju. Það er af nógu að taka þar og vonandi að takist að sanna sakleysi ritstjóranna rétt eins og gerðist í málverkafölsunarmálinu og Baugsmálum. föstudagur 12. október 200718 Umræða DV Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm. fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010, Áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40. handtökur ritstjóra svarthöfði Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttastjóri skrifar. Stundum er spurt hvað þurfi til að menn segi af sér. Svarið er einfalt: Siðferðisvitund. Ljósgeisli umboðsmanns Leiðari Kannski var við hæfi að kveikt væri á friðar-geisla Johns og Yoko um það leyti sem svart- nættið eitt grúfði yfir borgar- stjórn, Orkuveitunni og Reykja- vik Energy Invest. Að ljósgeisli stigi upp í myrkan himininn án þess þó að ná að lýsa hann upp. Við skulum samt vona að ljós- ið sem Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, beinir nú að gjörningunum í kringum Reykjavik Energy Invest dugi til að lýsa þetta upp. Hverjir ákváðu þetta og með hvaða umboði? Hvaða lagalega rétt höfðu þeir til ákvarðana sinna? Var Bjarna, Jóni og Gunnu út í bæ mismunað þegar fulltrúar kjósenda ákváðu að hleypa nokkrum útvöldum mönnum í veisluna en öðrum ekki? Og var verið að selja eign- ir út úr Orkuveitunni? Síðasta spurningin hérna er athyglisverð. Er einkavæðing Orkuveitunnar hafin þrátt fyrir afneitanir þeirra sem að þessu stóðu? Eru þeir að selja verðmæti úr félaginu? Og það jafnvel án þess að byggja það á áreiðanlegu verðmati. Við verðum oft vitni að pólit- ískum fárviðrum út af smámun- um. REI-ævintýrið er ekki eitt slíkt. Þetta er dæmigert mál þar sem stjórnmálamenn og fulltrú- ar þeirra fara of geyst í hlutina. Kannski blindaðir af samskipt- um sínum við viðskiptaforkólfa í þessu tilfelli. Allavega er ljóst að þeir gerðu mistök, gengu of langt, sama hvernig þeir reyna að klóra yfir það og beina sökinni að öll- um öðrum en sjálfum sér. Einhvern veginn á ég erfitt með að taka mark á mönnum sem hafa orðið margsaga í málinu eða gortað sig af því að þetta væri frá- bær díll ef þeir væru bara í viðskiptum en ekki pólitík. Kannski vísbending um að þeir eigi að snúa sér að öðru. Það er mikil synd og skömm að íslenskir stjórnmálamenn sitja alltaf sem fastast í embættum sínum – sama hvað gengur á. Stundum er spurt hvað þurfi til að menn segi af sér. Svarið er einfalt: Siðferðisvitund. DómstóLL götunnar hvaða stjórnmálamanni hefurðu minnstar mætur á? „fyrrverandi borgarstjóranum í reykjavík. Ég ætla ekkert að nafngreina hann. Þess þarf ekki. mér finnst hann vera að skrökva í tengslum við orkumálin. Leikskólamálin í borginni standa líka illa.“ Guðmundur Karl Stefánsson, 59 ára, öryrki „borgarstjóranum fyrrverandi. mér finnst að hann hafi ekki staðið sig í málum orkuveitunnar. Hann hefði átt haga kynningu á þessu öðruvísi, að mínu mati.“ Hrólfur Bragason, 43 ára pípari „bush, því hann hóf stríðið í írak sem allir í bandaríkjunum eru á móti. Ég held að hann sé óvinsælasti bandaríski forsetinn.“ Valgerður Árnadóttir, 45 ára, húsmóðir í Bandaríkjunum „Þeir eru allir mjög góðir. mér fannst íraksmálið vera mikið klúður. annaðhvort hefðumi við átt að styðja þetta eða ekki. Það var kjánalegt að draga þetta til baka.“ Sigurður Örn Einarsson, 42 ára, sölumaður sanDkorn n Björn Bjarnason dóms- málaráðherra fer mikinn í umræðum um Orkuveituna og REI. Björn er einn af síð- ustu valda- mönnunum sem kennd- ir eru við arm Davíðs Oddsson- ar seðla- bankastjóra. Í skjóli Björns er Gísli Mart- einn Baldursson sem er álíka seinheppinn í prófkjörum og valdaklifri og ráðherrann. Báðum er það mikið hjartans mál að koma höggi á Guðlaug Þór Þórðarson sem staðið hef- ur af hörku í vegi fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn hendi Birni Inga Hrafnssyni út í ystu myrkur og stofni til samstarfs með vinstri grænum eða öðr- um samstarfshæfum flokki. Niðurstaðan var því sú að flokkurinn var í úlfa- kreppu. n Meðal þeirra sem kenndir eru við Dav- íðsarminn í borgarstjórnarflokki Sjálf- stæðisflokksins eru Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir sem talin er efni í framtíðarleiðtoga. Björn Bjarnason er hæst- ánægður með Þorbjörgu og segir á heimasíðu sinni: „Þor- björg Helga Vigfúsdótt- ir, borg- arfulltrúi sjálfstæð- ismanna, stóð sig vel í Kastljós- inu í kvöld, þegar hún ræddi OR/REI málið við þá Sigmar Guðmundsson og Dag B. Eggertsson, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar. Þorbjörg Helga fipaðist aldrei, af því að hún talaði af einlægni og sagði satt.” Óljóst er hvort meðmæli Björns hjálpa Þorbjörgu til metorða. n Í öllu fárinu í kringum Reykjavík Energy Invest hefur skotið upp kollinum skemmtileg kenning. Fyrirtæk- inu er ætlað að verða stórveldi á alþjóðleg- um vett- vangi og og verður ekkert til sparað. Því er fleygt að hugmynd- ir séu uppi um að Ólaf- ur Ragn- ar Grímsson, forseti Íslands, verði forstjóri eða stjórnarfor- maður fyrirtækisins og þannig fáist alþjóðleg ímynd á borð við þá sem Al Gore gefur. Þeir sem halda þessu á lofti segja að tilvalið væri fyrir forset- ann að tilkynna í áramóta- ávarpi að hann gæfi ekki kost á sér áfram. Þetta er auðvitað skemmtileg pæling en var- hugavert að trúa henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.