Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Side 28
föstudagur 12. OKtÓBEr 200728 Helgarblað DV É g var mjög leiðinlegur krakki,“ segir Auðunn Blöndal, eða Auddi eins og fleiri þekkja hann. „Væri ég á sama aldri í dag væri ég bryðjandi rítalín allan dag- inn. Ég var ofvirkur.“ Auddi ólst upp á Sauðárkróki. Hann á tvær systur sem hann stendur á milli í aldri. „Ég var svo fyrirferðarmik- ill að systir mín eldri lamdi mig reglulega. En ég skil hana vel, ég átti þetta full- komlega skilið,“ segir hann hlæjandi. „Einhvern daginn þegar ég var búinn að fá nóg af barsmíð- um hennar sagðist ég mundu hefna mín þegar ég yrði stærri og sterkari en hún. Þessi yfirlýs- ing mín rifjaðist svo upp fyrir mér á aðfanga- dag þegar ég var átján ára. Ég hjólaði í hana og málningin fór út um allt. Hún var ekki hress.“ Auddi segist hafa róast í kringum fermingu. „Ég þroskaðist og fann þá að eldra fólki fannst ég óþolandi. Þetta var hætt að vera fyndið. Ég laun- aði mömmu svo þolinmæðina með því að vera fínn unglingur. Ég byrjaði ekki að drekka fyrr en ég var átján ára.“ Þrátt fyrir ofvirknina segist hann hafa verið fínn nemandi. „Svona þegar ég nennti að læra gekk það mjög vel. Ég hef alltaf átt mjög auðvelt með að læra,“ segir Auddi sem segist þó hafa verið iðnari í íþróttum en við lest- ur námsbóka. Kann ekki að skipta um dekk á bíl Átján ára fluttist Auddi frá Sauðárkróki til Reykjavíkur. Mamma hans og systir unnu þá hjá Íslandsflugi en þar fékk Auðunn sína fyrstu vinnu í höfuðborginni. „Það var í rauninni bara verið að kasta til mín beini. Þetta var bara svona svo ég fengi eitthvað að gera. Það var engin þörf fyrir mig þarna. Ég var ráðinn þarna sem aðstoðarmaður flugvirkja. Ég bara ráfaði um vinnusvæðið sparkandi í dósir og beið þess að vinnudeginum lyki. Ég entist þó í tvo mánuði en ég held að ég hafi ekki gert handtak. Ég kann ekkert svona. Ég kann ekki einu sinni að skipta um dekk á bíl.“ Eftir aðgerðaleysið í flugskýlinu hóf Auðunn störf á lager. „Mér hundleiddist það en þar var mjög góður mórall og ég kynntist fullt af fínum strákum.“ Á þessum tíma var Auddi far- inn að hugleiða að leggja skemmtanabransann fyrir sig. „Ég hafði leikið í leikritum og komið fram á ófáum skemmtunum á Sauðárkróki. Ég fann það alveg að þetta var það sem ég vildi gera þó að fram að þessu hefði ég stefnt að íþrótta- frama.“ Angraði Simma á djamminu Á meðan Auddi lét sér leiðast á lagernum streymdu vinir hans frá Króknum til að hefja háskólanám. „Alltaf þegar ég hitti gamla fé- laga frá Króknum var spurt: Hvað ert þú að gera? Hvað ert þú að gera? Ég hálfskammaðist mín fyrir að segja að ég væri bara að vinna á lager, með fullri virðingu fyrir þeim sem vinna þá vinnu, og svaraði því: Ég byrja bráðum í 70 mínútum.“ Auddi hafði þá þegar sóst eftir að koma að þættinum 70 mínútur með einhverj- um hætti. „Ég fór oft niður á sjónvarpsstöðina PoppTíví og talaði við dagskrárstjórann, Bússa, sem lofaði að gefa mér séns.“ Á þrautseigjunni sótti Auddi í eitt og hálft ár um að taka þátt í þættinum. „Ég var líka alltaf að angra Simma á djamminu og spurði hann: Jæja, hvenær fæ ég að leika í falinni myndavél hjá ykkur? Það styttist í það, maður, sagði þá Simmi. Ég gafst bara ekkert upp á að ganga á eftir þessu. Þeir héldu að ég væri annað hvort þroskaheftur eða bara ótrúlega áhugasamur. Sem betur fer létu þeir reyna á þetta og ég byrjaði að leika í falinni myndavél.“ Auðunn segist hafa fljótt fallið inn í hópinn. „Sveppi er nú einn af mínum bestu vinum í dag. Við hittumst líka allir reglulega. Höldum úti svona matarklúbbi. Þetta eru allt miklir snillingar,“ segir Auddi. Frægðin spennandi í byrjun Auddi hefur nú unnið við sjónvarp í sjö ár; í 70 mínútum, Strákunum, Svínasúpunni og nú síðast Tekinn. Hann er þjóðþekktur maður og sérlega vinsæll hjá yngri kynslóðinni. Auddi seg- ist þó ekki kvarta yfir frægðinni. „Þetta gengur í bylgjum. Mér fannst þetta geðveikt spennandi fyrst. Svo kom tímabil sem ég var voða spaði og fannst þetta þreytandi. En það þroskaðist sem betur fer af mér. Þetta er bara gaman og ég er mjög þakklátur, því ef fólk hefði ekki gaman af þáttunum sem ég hef komið fram í væri ég ekki í þessari vinnu sem mér þykir svo skemmtileg. En auðvitað dettur alltaf inn einn og einn leið- inlegur, það er ekki það. Ég var sjálfur að væla í Simma í jogginggalla á Sportkaffi. Ég var þessi leiðinlegi sjálfur.“ Myndarlegur maður í sambúð Þegar um svo myndarlega menn er að ræða er eðlilegt að vera forvitinn um fjölskylduhagi. „Ég er í sambúð.“ En svo er auðséð að Auddi vill ekki fara nánar út í þá sálma. Ég gantast og spyr hvort hann sé eins og ekta Hollywood-stjarna. „Nei, oj,“ segir hann þá. „Ég hef bara aldrei haft áhuga á því að ræða svona hluti opinberlega og ég veit að kærastan mín hefur ekki áhuga á því. Ég virði það við hana.“ Þrátt fyrir mikinn vilja til „Ég var mjög leiðinlegur krakki. Væri ég á sama aldri í dag væri ég bryðjandi rítalín allan daginn. Ég var ofvirkur.“ Auðunn Blöndal auddi hefur átt miklum vinsældum að fagna sem sjónvarpsmaður í þáttum á borð við 70 mínútur, strákana, svínasúpuna og nú síðast tekinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.