Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Page 30
Föstudagur 12. október 200730 Sport DV
Lyfjaliðið samanstendur af knattspyrnumönnum sem hafa f
allið á lyfjaprófi:
Knattspyrna á enn eftir að fá á sig slæm
t orðspor vegna lyfjamisnotkunar leikm
anna.
Þó hafa komið upp nokkur dæmi þar
sem leikmenn hafa verið fundnir seki
r um að
neyta ólöglegra lyfja, annað hvort til a
ð auka getuna á vellinum eða til þess
að bæta
frammistöðuna í skemmtanalífinu. Hé
r er lyfjaliðið samankomið, viljugir le
ikmenn
sem eru tilbúnir í slaginn og jafnvel ræ
ða frá Glenn Roeder er nóg til þess að
peppa
þetta lið upp.
Mark Bosnich
Féll á lyfjaprófi þegar hann var hjá Chelsea árið 2003. kókaín fannst í blóði
kappans og var hann rekinn frá félaginu. Hann viðurkenndi síðar að vera
kókaínfíkill en að hann hefði ekki snert eiturlyf fyrr en eftir að hann féll á
lyfjaprófinu. Hvernig sem á því stendur…
rio Ferdinand
Frægt er orðið þegar rio gleymdi að
mæta í lyfjapróf árið 2004. Fyrir vikið
fékk hann átta mánaða keppnisbann
og varð af evrópukeppninni 2004 í
kjölfarið. athyglisvert er að skoða
það að bann Ferdinands var lengra
en sumra þeirra sem féllu á
lyfjaprófi.
Fernando couto
Var annar tveggja
varnarmanna Lazio
sem féll á lyfjaprófi á
sama tíma. öllum að
óvörum var það
sama efni og varð
Jaap stam að falli,
nandrolon. Þessi
fyrrverandi fyrirliði
portúgalska landsliðs-
ins fékk fjögurra
mánaða keppnisbann.
Jaap staM
Hollendingurinn öflugi
var á mála hjá Lazio
árið 2002 þegar leifar
af nandroloni fundust í
blóði hans. Hann fékk
fimm mánaða
keppnisbann.
aBel Xavier
Fyrrverandi
leikmaður everton
og benfica féll á
lyfjaprófi árið
2005 þegar
hann var á
mála hjá
Middlesbrough.
kappinn er naut að
afli en ástæðan er
kannski sú að hann
tók anabólíska
nautastera til þess
að bæta frammi-
stöðuna. Hann fékk
átján mánaða bann
og bar það fyrir sig
að eina ástæðan
fyrir því að hann féll
á prófinu væri sú að
það væri tengt efni
úr lyfi sem hann tók
vegna vírussýking-
ar.
edgar davids
er hluti af nandrolon-
genginu. Árið 2001 var
hann sendur í fjögurra
mánaða keppnisbann
þegar hann spilaði með
Juventus. athyglisvert er
hve nandrolon finnst helst
í leikmönnum sem hafa
spilað í a-deildinni á Ítalíu.
lee Bowyer
Villingurinn sjálfur,
hann hefur verið iðinn
við kolann að koma sér
í vandræði innan vallar
sem utan. Hann féll á
lyfjaprófi árið 1994
þegar hann var
leikmaður Charlton
athletics en efnið sem
um var að ræða í það
skiptið var kannabis.
Hann fékk keppnis-
bann en var að auki
sendur í meðferð.
shaun newton
Fékk sjö mánaða bann
eftir að leifar af kókaíni
fundust í þvagsýni
sem tekið var af
honum eftir kappleik.
„Þetta var einangrað
atvik og ég verð að
takast á við afleiðing-
arnar. Á engan hátt líð
ég notkun eiturlyfja og
ég vona að mín reynsla
verði öðrum víti til
varnaðar,“ sagði
Newton sem ólíkt flest-
um öðrum á þessum
lista viðurkenndi
mistök sín fúslega.
diego Maradona
er stjarnan á listanum. Hann fékk 15
mánaða bann árið 1992 fyrir kókaínneyslu
eins og frægt er orðið. Hann átti erfitt með
að hætta neyslu efnisins og var aftur
sendur í bann árið 1994 eftir að efedrin
fannst í sýni sem tekið var hjá kappanum á
HM árið 1994. Hann spilaði einn leik á
mótinu og var frábær í 4-0 sigurleik
argentínu á grikklandi. en sigurvíman var
skammgóð í þetta skiptið.
adrian Mutu
kom sem hetja til Chelsea en fór þaðan skúrkur eftir að hann varð uppvís
að neyslu kókaíns. Hann fékk sjö mánaða keppnisbann og fór frá Chelsea
til Juventus. Í dag spilar hann fyrir Fiorentina.
christophe dugarry
Var fyrsti knattspyrnumaðurinn til þess að falla á lyfjaprófi þar sem
nandrolon kom við sögu. Frakkinn spilaði þá með Marseille árið 1999.