Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Síða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Síða 56
Útgáfunni flýtt Útgáfu á væntanlegri plötu söngkonunnar Britney Spears hef- ur verið flýtt um tvær vikur. Platan, sem heitir Blackout og átti upp- runalega að koma út 13. nóvember, mun koma út 30. október. Þetta tilkynnti plötufyrirtækið Jive í gær. Ástæðan fyrir þessum breytingum er sögð vera sú að sporna við frek- ari ólöglegri dreifingu á plötunni á netinu. Lagið Gimme More sem er það fyrsta af plötunni hefur farið úr 68. sæti Billboard-listans í það þriðja á rétt rúmri viku. Föstudagur 12. október 200756 Helgarblað DV TónlisT „Þetta verður besta serían. Í þetta skiptið ætlum við að reyna að hafa svo- lítið opnara. Upphaflega var þetta bara rokk en núna verður líka boðið upp á pönk, elektró og fleira,“ segir Doddi litli, forsvarsmaður Jack Live-tónleika- seríunnar sem fer aftur af stað á Cafe Amsterdam í kvöld. Serían hefur tvisv- ar verið haldin áður en svo hafa verið haldin einstaka gigg undir nafni Jack Live. „Okkur langaði bara að brydda upp á einhverjum nýjungum,“ svar- ar Doddi þegar hann er spurður af hverju ákveðið var að bjóða upp á fleiri tónlistarstefnur. Fyrsta kvöldið verð- ur eyrnamerkt gamla góða pönkinu og hljómsveitirnar sem troða upp eru Reykjavík!, Æla og Morðingjarnir. „Við ákváðum að fara bara í skítinn í upp- hafi: pönk, sviti og fólk baðar sig í Jack Daniels. Fyrirkomulagið var þannig að við vorum með eina frekar „no name“ hljómsveit, eina svona semí sem var að breika það og loks eina stóra. Við erum pínulítið að fara í þá áttina núna nema við bætum einni við sem spari, PP, sem koverar Purrk Pillnikk. Ég hef aldrei heyrt í Ælu en hef heyrt mikið af henni, Morðingjarnir eru „up and coming“ og Reykjavík! er stóra bandið.“ Fyrri seríur hafa verið á einum og sama staðnum. Núna verður hins veg- ar spilað á fleiri stöðum. „Tónleikarn- ir verða á stað sem passar kannski við hverja stefnu fyrir sig,“ segir Doddi. „Amsterdam er svolítið sveittur og þar má pönka eins og brjálæðing- ur, í elektróinu myndi ég kannski vilja vera á Organ og svo myndi ég vilja sprengja NASA með risarokkböndum sem stefnt er að því að hafa í desem- ber,“ segir Doddi og nefnir í því sam- hengi dr. Spock, Brain Police og Mínus. Tónleikarnir verða annars einu sinni í mánuði. Húsið er opnað klukkan 22 í kvöld og kostar 500 krónur inn. Gerir lag með Jackson Rapparinn Kanye West hefur staðfest að hann sé að gera lag með poppgoðsögninni Michael Jack- son. Fregnirnar þykja ýta undir þær sögusagn- ir að Jackson sé að vinna að nýrri plötu. West sagði í viðtali nýlega: „Ég er að vinna að efni með Mi- chael Jackson. Ef mér líkar við ein- hverja persónu og hvað hún hefur fram að færa er ég tilbúinn að vinna með henni eða skoða það.“ Komi plata Jacksons út verður það fyrsta efnið sem hann gefur frá sér frá því að platan Invinsible kom út árið 2001. Tónlistarakademía DV segir: Hlustaðu á þessa! tímarnir okkar - sprengjuhöllin kiss Your Chora - ask the slave Fuður - gummi Jóns Fancy Footwork - Chromeo Friend opportunity - deerhoof Vill vinna með Winehouse Tónlistarmaðurinn Prince seg- ist ólmur vilja vinna með bresku vandræðapíunni Amy Winehouse. Prince var yfir sig hrifinn af atriði Wine- house í Lond- on í síðasta mánuði og vill gera með henni lag og bjóða henni í mat á setrinu sínu í Minnesota. Þá vonast Prince til að söngkonan vinni með honum í upptökuveri hans en það er mjög líklegt að svo verði. „Ég er upp með mér. Ég er mikill aðdáandi. Ég vil endilega vinna með honum,“ sagði Winehouse um málið. Jack Live-tónleikaserían fer aftur af stað í kvöld. Pönk, sViti oG Viskí krummi í mínusVonir standa til að Mínus spili á Jack Live-tónleikaröðinni í haust. hröð leið á toppinn sprengjuhöllin Heldur útgáfutónleika í austurbæ í kvöld og aðra á akureyri á laugardag. Hljómsveitin sprengjuhöllin gaf út sína fyrstu plötu á mið- vikudaginn og heldur útgáfu- tónleika í Austurbæ í kvöld. Sprengjuhöllin hefur á ótrú- lega skömmum tíma náð að festa sig í sessi meðal vinsæl- ustu hljómsveita landsins. „Platan kom út á miðviku- daginn,“ segir Snorri Helgason, annar söngvari og gítarleikari Sprengjuhallarinnar. Sveitin var að gefa út sína fyrstu breiðskífu og heitir hún Tímarnir okkar, eftir titillagi plötunnar. Tímarnir okk- ar er viðeigandi titill á plötunni en það er einmitt lagið sem kom sveitinni hratt fram á sjónarsvið- ið og náði miklum vinsældum á útvarpsstöðvum landsins. Þrjú lög á toppnum „Ég hef heyrt að platan fari vel af stað,“ segir Snorri en þegar eru komin um 3000 eintök í dreif- ingu. „Það er búið að panta ann- að upplag og þetta gengur bara vel,“ en þrátt fyrir að Sprengju- höllin sé aðeins að gefa út sína fyrstu plötu núna hefur sveitin átt þrjú gríðarlega vinsæl lög síð- asta árið. „Við byrjuðum að stinga sam- an nefjum heima í stofu sumarið 2005,“ segir Snorri en sveitin lék ekki á sínum fyrstu tónleikum fyrr en í apríl. „Þetta byrjaði svo fyrir alvöru í kringum Airwaves í fyrra en þá tókum við upp lag- ið Tímarnir okkar,“ en lagið vakti mikla athygli og fór á topp vin- sældalista á nokkrum útvarps- stöðvum. „Í apríl tókum við svo upp lagið Verum í sambandi og fengum í kjölfarið á því plötu- samning,“ en lagið var það vin- sælasta á landinu um nokkurt skeið. „Við sendum svo frá okk- ur lagið Glúmur núna í ágúst og það hefur líka gengið nokkuð vel,“ segir Snorri hógvær en lag- ið hefur einnig verið eitt það vin- sælasta á landinu líkt og þau tvö sem á undan komu. Það verður því að teljast nokkuð merkur ár- angur fyrir svo unga hljómsveit að ná slíkum vinsældum. Tónleikar fram undan Snorri segir að það næsta á dagskrá hjá sveitinni sé að koma nýju plötunni almennilega frá sér og kynna hana næstu mánuði. „Við ætlum að vera duglegir við að spila og kynna plötuna. Við erum meðal annars með útgáfu- tónleika í Austurbæ í kvöld,“ segir Snorri en hægt er að nálgast miða á tónleikana á midi.is, Skífunni og við innganginn. „Við verðum svo með aðra tónleika á Akur- eyri á morgun,“ og en þeir verða að Snorra sögn töluvert villtari en þeir sem eru í Austurbæ. „Tón- leikarnir á Akureyri verða meira partí heldur en í Austurbæ. Við bjóðum samt tónleikagestum í kvöld í eftirpartí á Barnum þar sem verða fríar veigar og húllum hæ,“ segir Snorri kátur. upptökur í vor Snorri segir að þegar mestu lætin verði yfirstaðin í kringum plötuna ætli sveitin að einbeita sér að þeirri næstu. „Við stefn- um á að hefja upptökur á næstu plötu í vor en í dag einbeitum við okkur bara að nánustu framtíð,“ segir Snorri um framtíðaráætlan- ir sveitarinnar. Spurður um sköpunarferli Sprengjuhallarinnar segist hann ásamt Bergi Ebba, hinum söngv- ara sveitarinnar, semja mestallt efnið. „Við semjum lög hvor í sínu lagi, ég og Bergur,“ en Snorri á ekki langt að sækja hæfileik- ana en pabbi hans er Helgi Pét- ursson sem gerði garðinn frægan með Ríó tríói á árum áður. „Við útsetjum svo lögin allir saman en Bergur semur flesta textana,“ seg- ir Snorri að lokum. asgeir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.