Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2007, Page 62
föstudagur 12. október 200762 Í dagsins önn DV
Sandkorn
n Í næsta þætti af Tekinn, sem
sýndur er á Stöð 2 á föstu-
dagskvöldum, er eitt fórnar-
lambanna
Ásgeir Kol-
beins. Ás-
geir var víst
illa tekinn af
félaga sín-
um Auðuni
Blöndal
sem fékk
samkyn-
hneigðan barþjón til að daðra
við Ásgeir. Það fylgir sögunni
að Ásgeir sé ekki samkyn-
hneigður en hann hafi þó virst
upp með sér af þessari athygli
sem barþjónninn veitti honum
og gott ef hann hafi ekki bara
tekið aðeins undir. En Ásgeir
virðist hafa breitt bak og tók
víst gríninu með mikilli reisn.
n Anna Ólafsdóttir Björns-
son, sagnfræðingur og blogg-
ari, ræðir um REI-stríðið og
Friðarsúl-
una á blogg-
síðu sinni
í fyrradag
eins og svo
margir fleiri.
Þar segir
hún meðal
annars að
Vilhjálmur
borgarstjóri sé vissulega ger-
andi í því stríði, en þó hafi það
ekki pirrað hana að sjá hann
taka þátt í athöfninni í Viðey
í fyrrakvöld þegar friðarsúlan
var frumsýnd. Og Anna virð-
ist mjög hliðholl þessu ljósi
friðar í miðri orrahríðinni um
REI. „[...] þökk sé listakonunni
Yoko Ono fyrir að framkvæma
þennan fallega draum hér á
heimaslóð okkar Íslendinga.
Mig grunar að þessi fallega gjöf
muni hafa dýpri áhrif á um-
hverfið en okkur grunaði þegar
þessi hugmynd kom fyrst til
tals,“ segir Anna.
n Hemmi Gunn, frískur og
fjörugur, lýsir yfir ánægju sinni
á blogginu með Friðarsúluna í
Viðey. Hann
er þakklátur
fyrir framtak
Yoko Ono
og borgar-
yfirvalda
í Reykja-
vík sem á
að hvetja
fólk til frið-
ar. Hemmi nefnir fína fólkið
í færslu sinni en segist hafa
saknað þess að sjá ekki helstu
afreksmenn Íslands af bítla-
kynslóðinni sem sungu í frið-
aranda Bítlanna um árabil.
Ja, það hefði nú kannski verið
skondið að sjá Rúnar Júl. taka í
spaðann á Ringo.
Hver er maðurinn?
„Maðurinn er andans og ljóðsins,
skáld með göt á vösunum.“
Hver er menntun þín?
„Ég er þrefalt háskóladroppát án
einnar einustu einingar, og þegar ég
síðast ákvað að nenna ekki að sitja á
skólabekkjum klukkan átta á morgn-
ana, að ég þyrfti að gjöra svo vel að
bera ábyrgð á eigin menntun. Síðan
þá vel ég mínar eigin skólabækur.“
Hvað drífur þig áfram?
„Ástin og ljóðlistin, allajafna, en
stöku sinnum, þegar í mig hlaupa ljót-
ir andar, er ég drifinn áfram af pirringi,
þótt ég sé ekki stoltur af því.“
Hvert er þitt hlutverk á Ljóðahá-
tíðinni Nyhils um helgina?
„Í þetta sinn, í fyrsta sinn, fæ ég
að slaka á. Ég varð mér úti um léns-
mann sem sér um alla vinnuna fyrir
mig. Ég mun því bara spjalla við vini
mína, eignast nýja vini, og svo fæ ég
víst að lesa upp líka á föstudeginum.
Já, og líka á laugardeginum, á Súfist-
anum skilst mér. Og ég fæ að láta skína
í hversu vel ég er gefinn á ráðstefnunni
á sunnudeginum.“
Hvar er hátíðin?
„Hátíðin er í Þjóðleikhúskjallaran-
um, föstudags- og laugardagskvöld, og
ráðstefnan er í Norræna húsinu eftir
hádegi á sunnudag. Svo verður smá-
upplestur á Súfistanum á Laugavegi á
laugardag.“
Eigið þið von á mörgum
erlendum gestum?
„Það eru sjö stykki. Hinn þung-
brýndi og hlægilegi Linh Dinh, a. rawl-
ings sem gagnrýnendur segja „graða
og óforskammaða“, fjöllistamaðurinn
Leif Holmstrand, neðansjávarkafar-
inn Markku Paasonen, póst-pönkar-
inn Sean Bonney, femínistapían
Vilja-Tuulia Huotarinen og danska
heimsósómaskáldið Lars Skinnebach.“
Er hátíðin að rísa upp úr lægð?
„Þetta er þriðja skiptið sem hátíðin
er haldin, og hún var náttúrulega í lægð
áður en hún var fyrst sett í gang og hef-
ur í hvert sinn stækkað að umfangi og
glæsileik.“
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
+10
7
+12
7
+11
7
xx
xx
xx
xxxx
xx
xx
xx
xx
+8
4
+9
4
xx
xx
xx
xx
xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
+7
4
+10
7 xx
xx
xx
xxxx
xx
+8
4
xx
+10
7
+8
4
xx
xx
+7
4
+12
7
xx
+5
7
xx
+4
1 xx
xx
xx
+84
-xx
-xx
MAÐUR
DAGSINS
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DV Á DV.IS DV er
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr. á
mánuði
ég er þrefalt
háskóladroppát
Eiríkur Örn Norðdahl
rithöfundur mun um helgina koma fram á
Ljóðahátíðinni Nyhils sem haldin verður í
Þjóðleikhúskjallaranum. eiríkur gaf nýlega út
ljóðaþýðingasafn og ljóðabók sem ber heitið
Þjónn, það er fönix í öskubakkanum mínum.
stjörnur
vIkUNNAR
Tryggvi Gunnarsson, umboðs-
maður alþingis, fær fjórar stjörnur
fyrir að spyrja margra hvassra
spurninga um hvernig staðið var að
því að stofna og sameina opinbera
félagið reykjavík energy Invest
einkarekna félaginu geysi green
energy. Þegar svör fást við þessum
spurningum
ætti margt að
vera ljósara en
nú um þetta
mál sem hefur
skekið íslenskt
samfélag.
Yoko Ono Hvað svo sem mönnum
kann að þykja um Yoko ono – og
það er víst að sumir hafa enn ekki
fyrirgefið henni þátt hennar í að
splundra bítlunum – verður því
ekki neitað að friðargeislinn sem
hún tendraði hefur sett sitt mark á
líf landans þessa vikuna. geislinn
er til prýði, hugsunin á bak við
hann falleg og
fólk í ferða-
þjónustu
fagnar án efa
athyglinni sem
hann beinir að
landi og þjóð.
Guðrún Ásmundsdóttir sýndi
stórleik í einleiknum Ævintýri í Iðnó,
svo mjög að Jón Viðar Jónsson
leiklistargagnrýnandi gat ekki orða
bundist. „Hún er sögumaður af guðs
náð, hún er leikari af guðs náð.“
guðrún fékk fimm stjörnu dóm fyrir
frammistöðu sína á leiksviðinu og
nú fær hún tvær
stjörnur
vikunnar fyrir
síendurtekið
framlag sitt til
menningarlífs
landans.
Ólafur Jóhannesson náði
frábærum árangri sem þjálfari
fótboltaliðs fH sem hann stýrði til
Íslandsmeistaratitils þrjú ár í röð og
bikarmeistaratitilsins í ár. Hann
hætti á dögunum þjálfun liðsins og
gerði það á eigin forsendum, hætti
á meðan hann hafði enn eitthvað
fram að færa frekar en að þrjóskast
við og lenda jafnvel í vandræðum
síðar. stjarna fyrir það. Ertu að skrifa bók?
„Ég er að byrja á nýrri skáldsögu,
um mann sem verður fyrir því skelfi-
lega óláni að skipta um skoðun, en
slíkt er afar sjaldgæft. Ég var að gefa
út ljóðaþýðingasafn og nýja ljóðabók,
sem heitir Þjónn, það er Fönix í ösku-
bakkanum mínum, og er búinn að
vera að glósa fyrir nýju skáldsöguna í
dálítinn tíma. Bráðum fæ ég næði til
að skrifa hana, og vonandi verður hún
tilbúin fyrir næstu jól.“
Hvað er fram undan?
„Fram undan er að fara aftur heim
til Helsinki eftir helgi, vinna í þýð-
ingum á ljóðum Allens Ginsberg, sjá
hvort ég geti ekki fengið einhver skrif-
djobb sem maður fær borgað fyrir og
skrifa skáldsögu.“