Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.04.2014, Page 20

Fréttatíminn - 04.04.2014, Page 20
unni út í Viðey. Það var vont veður og þungt yfir, fólk var að skemmta sér en var strax farið að kvíða fyrir siglingunni til baka. Eftir á segi ég að það hafi verið eitthvað vont í loft- inu. Þarna var ég þegar bróðir minn hringir og ég fæ þetta hræðilega símtal. Hann og pabbi voru saman heima þegar þeir fengu fregnirnar. Það fór einhvern veginn allt að ger- ast í einu. Í fréttunum voru birtar myndir af vettvangi og ættingjar og vinir áttuðu sig á því að þetta var líklega okkar bíll og fóru að hafa samband við pabba sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Stuttu seinna mætir prestur heim og til- kynnir þeim hvað gerðist. Bróðir minn hringdi svo strax í mig.“ Hrund var algjörlega misboðið vegna vinnubragðanna í tengslum við upplýsingagjöf. „Það er fárán- legt að þetta skuli hafa gerst svona. Það hefur eitthvað klikkað í þeirri keðju sem á að fara af stað varðandi upplýsingaflæði til aðstandenda. Ég er líka alfarið á móti því að sýna ítarlegar myndir af vettvangi svona skömmu eftir alvarleg slys. Það er nánast hægt að bóka að ekki eru allir fjölskyldumeðlimir búnir að fá fregnirnar. Í þetta skiptið vissi fólk að systir mín og mamma voru á ferð á þessum slóðum og var fljótt að leggja saman tvo og tvo.“ Heimurinn hrundi Símtalið frá bróður hennar er sem greypt í minni Hrundar. „Ég heyrði fyrst ekki hvað hann sagði þannig að hann þurfti að endurtaka sig. Það endaði með því að ég fór út fyrir til að fá smá frið. Ég skildi hann fyrst ekki því hann sagði ekki „mamma“ heldur notaði hann orð prestsins: „Guðrún er á gjörgæslu og Sunna er látin.“ Ég fór alveg úr sambandi og fattaði ekki einu sinni að spyrja hvort fleiri hefðu slasast. Ég tók leigubíl beint heim og heyri þá að Linda, vinkona Sunnu, hafi farið líka. Þetta setti líf mitt á hvolf og heimurinn bara hrundi. Mitt líf er markað af því sem gerðist fyrir slys og eftir slys,“ segir Hrund og fjölskyldulífið varð aldrei samt. „Ég held að við höfum öll breyst mjög mikið. Ofan á sorgina og áfallið við að missa Sunnu þá fór ein- hvers konar keðjuverkun af stað. Mamma slasaðist mjög illa og til að byrja með vissum við ekki hvort við myndum missa hana líka. Ofan á andlega áfallið hlaut mamma mikil likamleg meiðsli. Á myndum sást dökkur blettur í höfðinu á henni, sem ekki var vitað hvað væri og til að byrja með talaði hún dálítið bjagað. Hún náði sér þó og er al- gjör kraftaverkakona. Ég skil ekki hvaðan hún fékk allan sinn kraft. Pabbi tók þetta líka mjög inn á sig og þurfti að leggjast inn á Reykja- lund vegna andlegra veikinda. Það fór allt úr skorðum.“ Hrund var mikið á heimili for- V ið Sunna vorum mjög líkar. Mamma sagði stundum að hún hefði eignast tvíbura með 9 ára millibili. Það var sterk tenging á milli okkar og ég vil lifa mínu lífi í takt við hvernig ég held að hún hefði lifað sínu lífi,“ segir Hrund Þórsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, sem missti systur sína í bílslysi fyrir áratug þegar Sunna var aðeins 13 ára gömul. „Hún var óhrædd og kunni að njóta líðandi stundar. Ég held að við séum öll betra fólk eftir þessa reynslu fyrst við náðum að koma niður stand- andi.“ Hrund hefur starfað við fjöl- miðla í 9 ár. Eftir að ljúka BA-gráðu í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands skráði hún sig í blaða- og fréttamennsku og var í fyrsta námshópnum eftir boðið var upp á námið á meistarastigi. Hluti af náminu er starfsnám á hinum ýmsu fjölmiðlum og var Hrund í fram- haldinu boðið starf fréttamanns á Morgunblaðinu. „Ég hafði lengi haft áhuga á fjölmiðlum og var mjög ánægð að komast þar að,“ seg- ir Hrund. Lokaverkefnið í blaða- og fréttamennsku átti að vera fræðileg ritgerð og verkleg afurð. Sumir skrifuðu greinaflokka eða gerðu út- varpsþætti en Hrund ákvað að láta drauminn rætast og skrifa barna- bók, skáldsögu sem þó byggði á þeirri erfiðu reynslu að missa systir sína. „Bókin heitir „Loforðið“ var mín verklega afurð. Í raun var þetta einskonar sjálfsþerapía.“ Fékk fréttirnar á árshátíð Sunna lést 20. febrúar 2004. „Systir mín var að æfa hjá skíðadeild KR og hún og vinkonur hennar voru að fara að keppa á Ólafsfirði. Mamma keyrði einn bílinn og systir mín var í aftursætinu hjá henni ásamt einni af hennar bestu vinkonum. Í Norðurárdalnum lenda þær í árekstri við jeppa.“ Hrund gerir ör- stutt hlé á máli sínu en heldur svo áfram. „Þær fóru báðar vinkonurn- ar. Mamma slasaðist mjög illa. Þær hefðu fermst þá um vorið.“ Hrund var 22 ára þegar slysið varð og þau stóðu eftir tvö systk- inin, hún og 17 ára bróðir hennar. „Sem betur fer á ég hann líka. Það var hann sem hringdi í mig. Ég var á leið á árshátíð stjórnmála- fræðinema þegar þetta gerðist. Slysið var um eftirmiðdaginn en af einhverjum ástæðum fréttum við fjölskyldan þetta ekki fyrr en eftir kvöldfréttir í sjónvarpinu, ein- hverjum klukkutímum síðar. Ég var uppstríluð, nýbúin í fordrykk að skemmta mér á leiðinni með ferj- Hrund Þórsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, missti systur sína aðeins 13 ára gamla í bílslysi. Móðir þeirra ók bílnum og slasaðist hún illa. Hrund gaf sjálfri sér og systur sinni það loforð að lifa lífi sínu fyrir þær báðar. Hún hefur síðan reynt að láta drauma sína rætast, hefur gert fjölmiðla að starfs- vettvangi sínum og farið í heimsreisu um ókunnar slóðir. Hugmyndin að skáldsögu Hrundar „Loforðið“ er byggð á þessu loforði. Hrund Þórsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, segir það hafa breytt lífi sínu að missa systur sína aðeins 13 ára gamla. Ljósmynd/Hari Lifi líka fyrir systur mína 20 viðtal Helgin 4.-6. apríl 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.