Fréttatíminn - 04.04.2014, Page 34
takendum og erum orðið daglega
með námskeið.“
Fæddist með tvo þumalfingur
Rökkvi Dan, sonur Berglindar, er
9 ára gamall og unir sér vel á nám-
skeiðinu. Móðir hans hefur alveg
orð fyrir honum þar sem hann
talar ekki. „Ég er búin að umgang-
ast fatlaða síðan ég var 13 ára og á
meðgöngunni hugsaði ég með mér
að ég yrði að vera tilbúin ef barnið
yrði ekki heilbrigt. Ég var alltaf
meðvituð um þann möguleika, því
af hverju ætti ég ekki að eignast
fatlað barn eins og einhver annar.
Þegar hann fæddist var hann með
tvo þumalputta á annarri hend-
inni, með sex fingur. Þegar ég
sá þetta hugsaði ég með mér að
þetta væri nú ekki svo slæmt, að
það væri bara allt í lagi að hafa tvo
þumalputta, en maðurinn minn
fékk mun meira sjokk. Síðar kom í
ljós að Rökkvi var með opið á milli
bæði gátta og hvolfa í hjartanu.
Hann er fyrsta barnið mitt og ég
hafði engan samanburð þannig
en mér fannst hann alltaf mjög ró-
legur. Hjartalæknirinn sem hann
var í eftirliti hjá sá einhver frávik
í hegðun og vísaði okkur áfram
þannig að Rökkvi komst mjög fljótt
í greiningu, aðeins um 18 mánaða
er hann greindur með þroska-
hömlun og dæmigerða einhverfu.
Hann var ekki með gott jafnvægi
og byrjaði seint að labba en við
Hátún 6a • 105 Rvk • Sími: 552 4420 • fonix.is
Mikið úrval af heimilistækjum
Kæli og frystiskápar
Spanhelluborð
Blástursofnar
Uppþvottavélar
Blind á hestbaki
Jenný Vignisdóttir var
að fara í annað skipti á
hestbak þegar Frétta-
tíminn leit við. Hún er
lögblind og hefur þrjá
aðstoðarmenn sér til
halds og trausts, tvo sem
styðja við hana til hlið-
anna og einn sem teymir
hestinn. „Jenný var búin
að tala lengi um að fara á
reiðnámskeið og amma
hennar, móðir mín, fékk
þá hugmynd að skrá
hana á þetta námskeið,“
segir Rósa Víkingsdóttir,
móðir Jennýjar. „Afi
hennar er með hesta í
Sandgerði og hana hefur
lengi langað að fara á
hestbak. Það er hægara
sagt en gert að finna
tómstundir sem henta
henni. Hún var að æfa
sund og fór með hópnum
í keppnisferðalag en
langaði síðan að breyta
til. Hún er mikil keppnis-
manneskja og vill fá
áskoranir við hæfi.“
Jenný býr í Reykjanesbæ
en afi hennar og amma
keyra hana á námskeiðið
í Mosfellsbæ. „Henni
líkar þetta mjög vel og
er virkilega spennt þó
hún sé enn svolítið óör-
ugg,“ segir Rósa. -eh
Jenný Vignis-
dóttir og Rökkvi
á hestbaki.
Berglind Inga á
milli þeirra.
fórum með hann á hestbak og ég
held að það hafi hjálpað honum
mikið. Það ýtti ekki síður á mig
eftir að hann fæðist að byrja aftur
með námskeiðin, þegar ég átti sjálf
fatlað barn.“
Safnar geisladiskum
Þrátt fyrir að Rökkvi gæti farið
hvenær sem er á hestbak með for-
eldrum sínum ákvað Berglind að
skrá hann á námskeið, ekki síst
vegna félagslegra þátta. „Hann er
ekki í öðrum tómstundum enda
ekki mikið í boði fyrir fatlaða. Á
námskeiðinu fara allir samtímis að
kemba hestunum, fara í hnakkinn
og setja á sig hjálm. Þetta er allt
öðruvísi en þegar við erum bara
tvö.“ Sérlega mikilvægt er að efla
félagsfærni Rökkva þar sem hann
talar ekki í setningum. „Hann
segir orð og orð, hann hefur alltaf
gert það en ekki meir. Hann skilur
hins vegar allt en fólk heldur oft að
hann skilji ekki því hann talar ekki.
Hans nánustu eru orðnir flinkir í
að skilja hann. Það er samt ekki
nóg að við skiljum hann. Rökkvi er
í Klettaskóla sem er dásamlegur
skóli og þar er hann að læra að tjá
sig með táknum í iPad og við erum
búin að kaupa eins forrit og hann
notar í skólanum. Hann er orðinn
svo stór núna að hann verður að
geta tjáð sig við aðra.“
Þó Rökkvi sé kominn á hestbak
er hann með geisladisk og heldur á
honum með því að setja einn fingur
í gatið í miðju disksins. Berglind
útskýrir að hann sé með áráttu og
safni geisladiskum. „Hann á örugg-
lega 300 diska. Hann fær diska í
afmælis- og jólagjafir, hann á Dóru,
Diego, Tomma og Jenna. Hann
horfir samt ekki á diskana heldur
geymir þá í tösku og leikur sér með
þá þannig að hann tekur þá upp úr
töskunni og flettir í gegnum þá.
Hann hefur gert það í mörg ár og
finnst það ótrúlega gaman. Hann
meira að segja fer á hestbak með
töskuna og alla diskana. Hann fær
ekki að vera með töskuna í skól-
anum en annars er hann alltaf með
hana.“
Að halda námskeiðunum úti
kostar sitt, nemendur borga hefð-
bundið námskeiðsgjald en einnig
koma til styrkir frá fjölda fyrir-
tækja, stofnunum og einkaaðilum.
Þá eru ótaldir sjálfboðaliðarnir en
án þeirra væri þetta ekki mögulegt.
„Hingað kemur hestafólk sem er
búið snemma í vinnunni og hjálpar
til við námskeiðin, við fáum líka
ellilífeyrisþega sem vilja aðstoða
og skólakrakka. Í haust byrjuðum
við síðan í samstarfi við framhalds-
skólann í Mosfellsbæ en krakkarnir
fá einingu fyrir að koma hingað
tvisvar í viku og hjálpa. Formaður
fræðslunefndar fatlaðra í hesta-
mannafélaginu, Hólmfríður Hall-
dórsdóttir, á líka heiður skilinn
fyrir skipulagningu og hún tryggir
að það séu alltaf nógu margir sjálf-
boðaliðar mættir til að taka á móti
krökkunum. En þetta er gaman. Ég
held hreinlega að ég sé í skemmti-
legasta starfi í heimi. Þetta er fjöl-
breytt, lærdómsríkt og hér eru allir
glaðir.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ceraviva® flísar
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi 7 Reykjavík – Fuglavík 18 Reykjanesbæ
Einnig fáanleg
í stærðinni
15x60cm
Ceraviva Cementi flísar
30x60cm verð kr.
3.490 pr.m2
20%
afsláttur af
allri merkjavöru!
prooptik.is
KRINGLUNNI 2. HÆÐ
HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS
Björn
Gylfason fer
á hestbak
þó hann
notist alla
jafna við
hjólastól.
Hann hefur
þrjá að-
stoðarmenn
sér til halds
og trausts.
Ljósmyndir/
Hari
34 viðtal Helgin 4.-6. apríl 2014