Fréttatíminn - 04.04.2014, Qupperneq 74
Kynlífs-
umræðan
er mjög
þörf því
ungt fólk
skortir oft
sjálfsöryggi
sem er svo
mikilvægt
til að eiga
gott kynlíf.
Gurrí og Evert verða einnig þjálfarar í næstu þáttaröð af Biggest Loser Ísland.
V ið erum stútmenntaðar í lífinu og höfum einstakan hæfileika til að lifa því,” segja þær Anna Tara og Katrín
sem sjá um útvarpsþáttinn Kynlega kvisti
á X inu. Anna Tara er með BS-gráðu í sál-
fræði og stundar kynjafræði í Háskólanum
auk þess að vera í hljómsveitunum Hljóm-
sveitt og Reykjarvíkurdætrum en Katrín er
innkaupafulltrúi hjá Pennanum og í námi
hjá Klassíska listdansskólanum. Þær segja
útvarpið vera góðan vettvang til að ræða
kynjafræði og kynlíf, málefni sem snerti
okkur öll en sem svo mörgum þyki samt
erfitt að ræða.
Ungt fólk leitar í klám
„Kynlífsumræðan er mjög þörf því ungt
fólk skortir oft sjálfsöryggi sem er svo
mikilvægt til að eiga gott kynlíf. Það leitar
í klám og þess háttar efni og notar það
sem einhvers konar leiðsögn í kynlífi af
því það skortir umræðu og annars konar
fræðslu. Einnig fylgir sumu kynlífi, eins
og endaþarmsmökum, gjarnan óþarfa
skömm. Það kemur stundum á óvart hvað
við erum komin stutt í þeim málum. Það
hefur farið fyrir brjóstið á okkur þegar fólk
ber skömm af ákveðnum kynlífshegðunum
sem það ætti að geta notið skammarlaust,“
segir Anna Tara, „og því viljum við opna
umræðuna til þess að fólk átti sig á því að
það eru oft margir í sömu sporum og til
að þess að stuðla að heilbrigðara kynlífi,“
bætir Katrín við.
Engin skömm að endaþarmsmökum
Viðfangsefni þáttarins hingað til hafa til að
mynda verið fantasíur kvenna,
endaþarmsmök, femínismi, píkur og skapa-
hár. „Það kom okkur sérstaklega á óvart
hvað það virðist vera mikið um að stelpur
séu ekki að taka kynfæri sín í sátt en við
sáum ummæli eins og „mér finnst píkan
mín svo ljót“ eða „ég er með roastbeef píku“
og svo framvegis þar sem stelpur eru að
velta því fyrir sér hvort píkur þeirra séu
eðlilegar. Ótrúlegt en satt þá virðist enn
vera tabú að nota orðið píka,“ segir Katrín.
Þær segja umræðuna um endaþarms-
mök gjarnan einkennast af mikilli nei-
kvæðni sem sé skiljanleg og geti átt sér
margar ástæður. „Þar sem fólk virðist vera
að stunda endaþarmsmök í auknum mæli
viljum við að fólk viti hvernig megi stunda
heilbrigð endaþarmsmök í stað þess að
banna þau. Við teljum það vera raunhæfari
og betri leið að heilbrigðara kynlífi, líkt og
að hvetja fólk til að nota smokka en ekki til
skírlífis,“ segir Anna Tara.
Lærum af hvort öðru
Anna Tara og Hildur velta kynjafræði mikið
fyrir sér og spurðar út í „öfgafemínisma”
og neikvæða umræðu í þjóðfélaginu segja
þær orðið sjálft hafa litla merkingu fyrir
sig, femínisminn innihaldi allskonar mis-
munandi stefnur. „Að okkar mati er ekki
um að ræða stríðandi fylkingar heldur
teljum við að sem flestir vilji vinna að jafn-
rétti kynjanna en beiti þar mismunandi
aðferðum eða hafi mismunandi skoðanir
á því hvernig vinna eigi að því. Í rauninni
mætti frekar segja að um samvinnu sé að
ræða því við getum öll lært af skoðunum
hvers annars og þannig mótumst við enn
frekar.“ Uppspretta efnis þessara hispurs-
lausu kvenna er langt í frá uppurin
því á döfinni hjá þeim eru sjálfs-
myndir kynjanna, BDSM kynlíf,
karlafræði, klám og skrímsla-
væðing svo fátt eitt sé nefnt.
Hægt er að nálgast þættina á
facebooksíðu þáttarins.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Vinsælasta þáttaröð skjásEins hEldur áfram
Önnur þáttaröð af Biggest Loser Ísland
Opnað hefur verið fyrir skrán-
ingar í aðra þáttaröðina af Biggest
Loser Ísland á SkjáEinum. Síðast
skráðu sig 1300 manns og kom-
ust því færri að en vildu. „Ég er
mjög spenntur,“ segir Evert Víg-
lundsson þjálfari en hann og Guð-
ríður Jónsdóttir, betur þekkt sem
Gurrí, verða einnig þjálfarar í nýju
þáttaröðinni. Lokaþáttur fyrstu
þáttaraðarinnar var í gærkvöldi
en á sex mánuðum misstu þátt-
takendur yfir hálft tonn.
„Þetta gekk mjög vel. Ekki bara
var mikið áhorf heldur sýndi ár-
angur keppenda og sannaði að
það sem við Gurrí vorum að gera
virkar. Okkar nálgun var mjög
heilbrigð og við voru ekki að leita
að neinum töfralausnum. Við lögð-
um áherslu á að fá fram hugarfars-
breytingu hjá fólki og hjálpuðum
því að tileinka sér hreint mat-
aræði og hreyfingu.“ Hann segir
að með næsta hópi keppenda verði
æfingar og matur með sama sniði
en andlega nálgunin verði mark-
vissari. „Við ætlum ekki að vera
meðvirk með einhverju væli. Við
Gurrí erum sammála um að það
tók okkur smá tíma á að átta okk-
ur á hvaða afsakanir áttu eitthvað
undir sér og hverjar ekki. Það er
svo auðvelt að fara að afsaka sig
til að forðast álag en svo kemur í
ljós að afsakanirnar áttu sér enga
stoð. Við ætlum að passa okkur
meira á meðvirkninni. Við erum
búin að ákveða það.“
Skráning fer fram á skjarinn.
is/biggestloserisland og fara upp-
tökur fram á haustmánuðum.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
kynlEgir kVistir á X-inu
Píkan er enn tabú
Anna Tara Andrésdóttir og Katrín Ásmundsdóttir eru forvitnar frænkur sem hafa vakið athygli
fyrir vikulega þætti sína, Kynlega kvisti, á útvarpsstöðinni X-inu. Þar fjalla þær um kynjafræði
og kynlíf á hispurslausan hátt milli þess sem þær spila vel valda tónlist í takt við umræðuna.
Anna Tara er
með BS-gráðu
í sálfræði og
stundar kynjafræði
í Háskólanum auk
þess að vera í hljóm-
sveitunum Hljómsveitt
og Reykjarvíkurdætrum
en Katrín er innkaupafulltrúi
hjá Pennanum og í námi hjá
Klassíska listdansskólanum.
Laila Av Reyni er
rísandi stjarna í
tónlistarsenu Fær-
eyja. Hún er nú á
Íslandi í boði Menn-
ingar-og listafélags
Hafnarfjarðar og
kemur fram á fimm
tónleikum dagana
1.-5. apríl. Í kvöld,
föstudaginn 4.
apríl, treður hún
upp í Gamla Kaup-
félaginu á Akureyri
en á morgun
laugardag í Fjöru-
kránni Hafnarfirði.
Hún er að sögn
Menningar- og
listafélags Hafnar-
fjarðar eitt best
geymda leyndarmál
Færeyja auk þess
að vera eftirsóttur
fatahönnuður og
innanhúsarkitekt í
Danmörku. Fyrsta
sólóplata hennar,
sem kom úr í fyrra,
sló rækilega í gegn
og fékk frábæra
dóma. Hljómsveitin
Sometime treður
upp með Lailu öll
kvöldin.
AK Extreme snjóbrettahá-
tíðin verður haldin um
helgina á Akureyri.
Hápunktur helgarinnar er
sjálf snjóbrettakeppnin
en þar taka meðal annars
þátt bræðurnir Halldór og
Eiríkur Helgasynir, sem
teljast til bestu snjóbretta-
kappa lansins og þó víðar
væri leitað.
Hápunktur keppninnar
verður vafalítið Big Jump/
Gámastökks keppnin í
gilinu á laugardagskvöldið
klukkan 21. Tónlistar-
viðburðir verða einnig á
vegum hátíðarinnar alla
dagana á Græna hattinum,
Café Akureyri, Pósthús-
barnum og Sjallanum en
þar troða meðal annars
upp Brain Police, Sólstafir,
Highlands, Vök, Úlfur Úlfur,
Gísli Pálmi, Kött Grá Pje,
Emmsjé Gauti, Últra Mega
Techno Bandið Stefán,
Endless Dark, Logi Pedro,
DJ Thor og Larry Brd.
Snjóbretta-og tónlistarhátíð á Akureyri
Laila Av Reyni á Íslandi
74 dægurmál Helgin 4.-6. apríl 2014