Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 24
Aldur: 23 ára.
Hæð: 1.84.
Lið: AZ Alkmaar
Leikir í vetur/mörk: 51/26
Landsleikir/mörk: 8/2
Aron JóhAnnsson
hvAð segJA þeir um Aron?
„Aron er mjög ófyrirsjáan-
legur leikmaður. Andstæð-
ingurinn veit aldrei hvað
hann er að hugsa. Hann
hugsar stundum tvo
eða þrjá leiki
fram í tímann
... Hann er
forvitnilegur
strákur sem
mun bara
verða betri
í fram-
tíðinni.“
Jürgen
Klinsmann
landsliðs-
þjálfari
Banda-
ríkjanna.
„Ég er hrifinn af Aroni
Jóhannssyni. Hann hefur
marga góða kosti sem
gagnast liðinu, kosti sem
okkur vantar þegar Land-
on Donovan er ekki með.
Þegar hann fær boltann
er fyrsta hugsun
hans alltaf að
leita fram á
völlinn. Þegar
Aron kom inn
í liðið um dag-
inn kom
hann með
tengingu
milli miðju
og sóknar.“
Brian McBride
fyrrum landsliðs-
framherji Banda-
ríkjanna.
A ron Jóhannsson verður í næstu viku fyrsti Íslend-ingurinn til að leika á HM
í knattspyrnu. Aron er í 23 manna
hópi Bandaríkjanna á þessu stærsta
sviði knattspyrnunnar. Hann hefur
ekki verið fastamaður í byrjunar-
liði liðsins en flestir telja að honum
sé ætlað stórt hlutverk á mótinu.
Ef hann er ekki í byrjunarliðinu sé
ætlunin að hann komi inn og færi
liðinu aðra möguleika en hinir fram-
herjarnir.
Uppgangur
A rons hefur
verið eins og
í l ygasög u .
Sumarið 2010
lék hann með
Fjölni í næst
efstu deild ís-
lenska boltans.
Hann var yfir-
burðamaður
í deildinni og
var valinn besti
leikmaðurinn,
besti ungi leik-
maðurinn og
var auk þess
markakóngur
deildarinnar.
Í kjölfarið fór
hann til Danmerkur og raðaði
inn mörkum með AGF í Árós-
um. Í janúar í fyrra var hann svo
seldur til AZ í Hollandi. Á fyrsta
heila tímabili sínu með liðinu varð
hann þriðji markahæsti leikmað-
ur deildarinnar með 17 mörk í 32
leikjum. Hann skrifaði nýverið
undir nýjan fjögurra ára samning
við liðið.
Aron þarf ekki að kvarta undan
þjálfurum sínum um þessar mund-
ir. Á HM nýtur hann leiðsagnar
þýsku markavélinnar Jürgens
Klinsmann og á næsta tímabili
tekur sjálfur Marco van Basten við
stjórn AZ. Það er ekki amalegt að
fá góð ráð frá tveimur af eftirminni-
legustu framherjum síðari ára.
Lífið leikur við Aron um þessar
mundir. Honum gengur allt í hag-
inn á vellinum en það á líka við á
heimavelli. Hann er á föstu með
Bryndísi Stefánsdóttur og hafa
þau verið saman um fimm ára
skeið. Bryndís er 21 árs og er að
hefja fjarnám í sálfræði við Há-
skólann á Akureyri. Þau eru barn-
laus en eiga saman hundinn Míu.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Strákurinn
okkar á HM
Fyrir fjórum árum spilaði Aron Jóhannsson með Fjölni í næst
efstu deild á Íslandi. Daginn fyrir þjóðhátíðardag okkar Ís-
lendinga verður hann í liði Bandaríkjanna sem mætir Gana
í G-riðli á HM í Brasilíu. Aron verður í treyju númer 9. Fjöl-
skylda hans fylgist með af pöllunum og pabbi hans kveðst
vera ótrúlega stoltur af árangri sonarins.
Við erum
klárir á því að
við komumst
áfram í riðli-
num og það
er markmiðið.
www.odalsostar.is
Þessi margverðlaunaði ostur, framleiddur í
Mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki frá því árið 1965,
rekur ættir sínar til danska bæjarins Maribo á Lálandi.
Það sem gefur Maribó-ostinum sinn einkennandi
appelsínugula lit er annatto-fræið sem mikið er notað
í suðurameríska matargerð. Áferðin er þétt en bragðið
milt með votti af valhnetubragði. Frábær ostur til
að bera fram með fordrykk, í kartöflugratín eða á
hádegisverðarhlaðborðið.
MARIBÓ
HLÝLEGUR
24 úttekt Helgin 6.-8. júní 2014