Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 66
Á sýningunni eru portrett eftir
70 listamenn. Þetta er eftir Karl
Jóhann Jónsson.
Börn og unglingar geta fengið útrás fyrir sköpunargleðina í dans-og kvikmyndasmiðjum SHÄR listahópsins. Hér sést hluti hóps-
ins, Carlo Cupaiolo, Sofia Harryson, Hrafnhildur Einarsdóttir og Ellen Harpa Kristinsdóttir, en þau eru núna stödd á Húsavík.
SumarSýning ÍSlenSk SamtÍðarportrett Í liStaSafni akureyrar
Glíma 70 listamanna við portrett
Sumarsýning Listasafnsins á Akur-
eyri verður opnuð á morgun, laugar-
daginn 7. júní klukkan 15 og ber hún
yfirskriftina Íslensk samtíðarportrett
– mannlýsingar á 21. öld. Á sýning-
unni sést hvernig 70 listamenn hafa
glímt við hugmyndina um portrett frá
síðustu aldamótum til dagsins í dag.
„Hugmyndin um portrett felst í því
að draga fram á listilegan hátt það
sem öðrum er almennt hulið. Að ein-
skorða sig við portrett er ein leið til að
skoða á hvaða hátt íslenskir listamenn
fjalla um samtíðina. Á þessari sýningu
birtist áhorfendum samtíðarsýn 70
listamanna sem hafa tekist á við
hugmyndina í víðum skilningi og í
áhugaverðu samspili ólíkra birtingar-
mynda fást svör,“ segir meðal annars í
tilkynningu.
Á meðal listamanna sem eiga verk
á sýningunni má nefna Erró, Ragnar
Kjartansson, Kristínu Gunnlaugs-
dóttur, Hallgrím Helgason, Steinunni
Þórarinsdóttur, Hugleik Dagsson,
Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, Baltasar
Samper og Ólöfu Nordal.
Sýningin stendur til 17. ágúst og er
opin alla daga nema mánudaga klukk-
an 10-17. Aðgangur er ókeypis.
DanS alþjóðlegur liStahópur ferðaSt um ÍSlanD
Vilja dreifa dansi um landið
Alþjóðlegi listahópurinn SHÄR er á ferðalagi um landið til að dreifa dansmenningunni sem víðast.
Hópurinn, sem setur upp danssmiðjur fyrir börn og unglinga um allt land í samstarfi við Evrópu
unga fólksins og bæjarfélögin sem taka þátt, segist finna fyrir miklum áhuga á dansi á lands-
byggðinni.
V ið Ellen kynntumst flestum úr hópnum þegar við vorum í BA-námi í dansi í London. Við sem að
verkefninu komum erum flest úr litlum
samfélögum og eigum það sameiginlegt
að vilja efla dansmenningu á stöðum sem
dansinn nær venjulega ekki til,“ segir
Hrafnhildur Einarsdóttir sem, auk Ell-
enar Hörpu Kristinsdóttur, er stofnandi
íslenska danshópsins Raven sem er hluti
af alþjóðlega listahópnum SHÄR. SHÄR
samanstendur af dönsurum, tónlistar- og
kvikmyndagerðarmönnum frá Svíþjóð,
Ítalíu og Íslandi og markmið hópsins er
að dreifa dansi og skapandi gleði. Lista-
hópurinn, sem hefur verið starfandi frá
árinu 2011 og er styrktur af Evrópu unga
fólksins, hefur nú þegar framkvæmt verk-
efnið í Svíþjóð, Noregi og Ítalíu. Hópurinn
er núna á ferðalagi um Ísland og býður
upp á danssmiðjur fyrir börn og unglinga
um allt land. „Þegar svo sett var á vina-
bæjarsamband milli Kópavogs, Norrköp-
ing og Þrándheims árið 2011 fengum við
kjörið tækifæri til að stofna hópinn. Síðan
hefur samstarfið þróast og þetta er orðið
að miklu stærra verkefni. Þegar við heim-
sóttum gestavinnustofu í Flórens árið
2013 bættist svo ítalskur kvikmyndahóp-
ur inn í samstarfið. Núna er kvikmynda-
smiðjan hluti af danssmiðjunni og dansví-
deóverk sem við vinnum með krökkunum
orðið partur af vinnustofunum.“
Holl hreyfing sem veitir gleði og
útrás
Hópurinn vill sérstaklega ná til staða
sem venjulega fá ekki að upplifa dans-
inn. „Eftir að hafa verið með vinnu-
smiðjur á höfuðborgarsvæðinu erum
við núna að ferðast hringinn í kringum
landið,“ segir Hrafnhildur en hópurinn
er núna staddur á Húsavík. „Þetta hefur
gengið rosalega vel og við finnum fyrir
miklu áhuga á dansinum, sérstaklega
hérna úti á landi þar sem enginn dans
er kenndur. Það er ótrúlega gaman að
vinna með þessum krökkum sem hafa
ekki haft tök á því að kynnast dansi
fyrr. Það versta er að þurfa að yfirgefa
svo krakkana sem vilja flestir að við
bara flytjum í bæinn,“ segir Hrafnhild-
ur og hlær. „Þetta er svo holl og góð
hreyfing og dansinn veitir svo mikla
gleði og útrás. Markmið okkar er að
geta ferðast enn meira og bjóða lands-
byggðinni upp á reglulegar vinnustofur.
Þetta tíðkast ekki hérlendis en bæði í
Svíþjóð og Noregi er mjög algengt að
skólarnir fái gestakennara og listafólk
inn í skólana. Okkar draumur er að
vinna að því hér.“
Hægt er að nálgast dagskrána á
facebook-síðu hópsins.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
SHÄR
saman-
stendur af
dönsurum,
tónlistar- og
kvikmynda-
gerðar-
mönnum
frá Svíþjóð,
Ítalíu og Ís-
landi
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Fös 6/6 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Síðustu sýningar
BLAM (Stóra sviðið)
Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Ferjan (Litla sviðið)
Fös 6/6 kl. 20:00 36.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k Fös 13/6 kl. 20:00
Lau 7/6 kl. 20:00 37.k Fim 12/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
BLAM! - síðasti séns að næla sér í miða
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
66 menning Helgin 6.-8. júní 2014