Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.03.2014, Síða 2

Fréttatíminn - 21.03.2014, Síða 2
Skoðið laxdal.is/Yrhafnir • facebook.com/bernhard laxdal VORFRAKKARNIR KOMNIR Metþátttaka í forritunarkeppni framhaldsskólanna Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og aðstoðarmenn hans, Margrét Gísladóttir og Sunna Gunnars Marteins- dóttir, létu skipta út PC tölvum á skrifstofum sínum og létu þess í stað kaupa fyrir sig Apple tölvubúnað fyrir um eina og hálfa milljón. Utanríkisráðherra og að- stoðarmenn fengu Apple búnað fyrir 1,5 milljón  Stjórnmál létu Skipta út pC búnaði G unnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og að-stoðarmenn hans, Mar- grét Gísladóttir og Sunna Gunnars Marteinsdóttir, létu kaupa fyrir sig Apple tölvubúnað fyrir um eina og hálfa milljón. Þau fengu hvort um sig nýjan iPhone, iPad spjaldtölvu og Apple MacBook fartölvu. Þetta fékkst staðfest hjá utanríkisráðu- neytinu. Athygli vakti, þegar Margrét og Sunna voru ráðnar í starf aðstoðar- manna utanríkisráðherra í vor og haust, hve litla reynslu og menntun þær hafa á sviði utanríkismála. Sunna er 29 ára og með BA gráðu í almannatengslum og hefur stundað nám í hagnýtri menning- armiðlun. Hún var skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokksins frá 2010 og aðstoðarmaður kosn- ingastjóra. Þegar hún var ráðin var bent á fjölskyldutengsl hennar við forsætisráðherra, en hún er mágkona Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar, í sambúð með bróður hans. Margrét er 26 ára og er ekki með háskólagráðu. Hún er hins vegar með diploma í almannatengslum frá Opna háskólanum í HR. Hún er fædd og uppalin í Skagafirði. Launakostnaður aðstoðarmann- anna tveggja ásamt launatengdum gjöldum er rúmlega tvær milljónir á mánuði, um 25 milljónir á ári. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, er hrifinn af Apple búnaði og lét skipta út öllu á skrifstofu sinni og tveggja aðstoðarmanna sinna. Samsett mynd/HariAldrei hafa fleiri lið verið skráð til þátt- töku í forritunarkeppni framhaldsskól- anna en nú þegar 44 lið keppa. Keppnin fer fram í Háskólanum í Reykjavík um helgina. Þema keppninnar í ár er The Matrix og deildirnar þrjár sem keppt er í heita Neo-deildin, Trinity-deildin og Morpheus-deildin. Þrautir og viðfangsefni eru mismunandi eftir deildum. Í fyrri keppnum hafa liðin til dæmis þurft að skrifa forrit sem leysa verkefni á borð við hversu oft á næstu 10 þúsund árum 13. dagur mánaðar er föstudagur og finna leið til að færa riddara frá einum enda skákborðs yfir á hinn endann í sem fæstum skrefum. Það eru HR og Nýherji sem standa að keppninni og líkt og fyrri ár verða verðlaun fyrir besta lið hverrar deildar, fyrir frumlegustu lausnina og besta lógóið. Á myndinni eru þau Elísabet Guð- rúnar- og Jónsdóttir og Bjarki Ágúst Guðmundsson, nemendur í grunnámi við tölvunarfræði HR sem semja þrautir fyrir keppnina, og Hjalti Magnússon sem einnig kemur að þrautasmíð og svo dómgæslu en hann starfar sem kennari í grunnáminu. -eh Söfnun fyrir bólusetn- ingu gegn stífkrampa Á níundu hverri mínútu deyr nýbökuð móðir eða nýburi úr þessum kvalafulla sjúkdómi. Engu að síður má með bólusetningu koma í veg fyrir hvert einasta dauðsfall af hans völdum. Vegna þessa hafa UNICEF á Íslandi og Kiwanisumdæmið Ísland Færeyjar tekið höndum saman og hvetja fólk til að leggja alþjóðlegri baráttu gegn stífkrampa lið. Það kostar aðeins 210 krónur að bólusetja barns- hafandi konu og ófætt barn hennar gegn þessari ömurlegu veiki. „Það er furðuleg tilhugsun að svo lág upphæð geti skilið á milli lífs og dauða,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Með því að senda sms-skilaboðin STOPP í símanúmerið 1900 gefur fólk 630 krónur eða sem nægir fyrir bólusetningu fyrir þrjár mæður og ófædd börn þeirra. - eh Smyglvarningurinn sem fannst í rækjutogara. Ætlaði að smygla fíkniefnum frá Íslandi Tollverðir hafa lagt hald á 1,5 kíló af fíkni- efnum um borð í dönskum rækjutogara. Um er að ræða 1,3 kíló af maríujúana og 200 gr. af hassi sem fundust á íslenskum sjómanni sem var skipverji á umræddum togara. Skipið hafði verið tollafgreitt þegar tollverðir höfðu afskipti af mann- inum, sem átti að sigla með togaranum til Grænlands nokkrum dögum síðar. Grunur leikur á um að efnin hafi verið ætluð til útflutnings frá Íslandi til Græn- lands. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsókn málsins, sem er á lokastigi.  DýravernD ný löG um velferð Dýra Geldingar leikmanna ólöglegar Samkvæmt nýjum lögum um velferð dýra er leikmönnum óheimilt að gelda dýr og gildir einu um hvaða dýrateg- und er að ræða. Hér eftir mega aðeins dýralæknar fremja geldingar en hingað til hefur það viðgengist að bændur geldi sjálfir svín, kálfa og lömb, þrátt fyrir að samkvæmt gömlum lögum máttu aðeins dýralæknar framkvæma geldingar. Þar að auki skulu allar sársauka- fullar aðgerðir dýralækna á dýrum hér eftir vera framkvæmdar eftir deyfingu og geldingar grísa því ólöglegar nema dýralæknir framkvæmi verkið undir deyfingu eða svæfingu. Svínabændur munu því þurfa að gera það upp við sig hvort þeir sleppi geldingu og slátri grísum fyrir kynþroskaaldurinn, eða fái dýralækni til að gelda eða bólusetja grísina, sem er önnur leið til að losna við bragð og lykt. Í nýju lögunum eru ákvæði um við- brögð við brotum á lögunum. Komist Matvælastofnun til að mynda að því að dýr hafi verið gelt mun hún kalla eftir staðfestingu frá eiganda um að dýra- læknir hafi framkvæmt aðgerðina, en ef svo er ekki og lög hafa verið brotin, getur Matvælastofnun aukið eftirlit með tilteknu búi og beitt sektum allt að 1.000.000 kr. Það er mat dýraeigenda hvort nauð- synlegt teljist að gelda dýr, en gelding- ar eru oftast framkvæmdar á grísum, kálfum og lömbum. Kálfar eru geldir til að koma í veg fyrir slagsmál í hópum en grísir og lömb eru geldir til að koma í veg fyrir sterka lykt og bragð af kjöti kynþroska karldýra. Nú munu bændur þurfa að kalla á dýralækni kjósi þeir að gelda sín dýr og á það einnig við um geldingar með Burdizzo geldingar- töngum sem hafa verið seldar í stórum stíl undanfarin misseri.- hh Grísir eru geldir til að losna við tiltekna lykt af kjöti kynþroska karl- dýra. 2 fréttir Helgin 21.-23. mars 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.