Fréttatíminn - 21.03.2014, Qupperneq 6
Um 2000 tonn af langreyðarkjöti úr
birgðageymslum Hvals hf. Hafa verið
flutt um borð í flutningaskipið Ölmu
í Hafnarfjarðarhöfn síðustu daga.
Talið er að flytja eigi kjötið til Japan.
Alþjóðadýravelferðarsjóður-
inn(IFAW) segir í yfirlýsingu að
vegna þess að kaupendur finnast
ekki verði kjötinu komið fyrir í
frystigeymslum í Japan. Sjóðurinn
skorar á íslensk stjórnvöld að hindra
útflutninginn og banna veiðarnarnar
og segir að líklega muni Bandaríkja-
stjórn líta á útflutninginn sem ögrun.
Um þessar mundir er Obama,
forseti Bandaríkjanna, að taka
ákvörðun um hvort grípa eigi til
refsiaðgerða og viðskiptaþvingana
vegna veiða Íslendinga á langreyði og
útflutnings á langeyðarkjöti en lang-
reyður er á alþjóðlegum válista yfir
dýr í útrýmingarhættu.
Vefmiðillinn Eyjan sagði frá því
í gær að síðustu daga hefði verið
unnið öll kvöld við að koma langreyð-
arkjötinu um borð í skip í Hafnar-
fjarðarhöfn.
Hvalur hf. hefur lengi átt í erfið-
leikum með að koma kjöti af dýr-
unum sem skip fyrirtækisins skjóta á
markað. Kjötið er bannvara á flestum
mörkuðum og erfitt er að flytja það
milli landa eftir löglegum leiðum.
Síðasta sumar stöðvuðu tollayfir-
völd í Hamborg og Rotterdam út-
flutning á þremur gámum sem var
snúið við til Íslands.
Alþjóðadýravelferðarsjóðurinn
(IFAW) segist í yfirlýsingu hafa
heimildir fyrir því að í síðasta mán-
uði hafi Hvalur hf. einnig gert mis-
heppnaða tilraun til að flytja hvalkjöt
til Japan í gegnum Kanada en sú til-
raun hafi vakið uppnám og andstöðu
í Kanada. -pg
Hvalkjöt Hvalur Hf reynir að koma 2000 tonnum af langreyðarkjöti um borð í skip og til japan
Segja útflutninginn ögrun við Obama
Guðríður Arnardóttir tekur í dag við formennsku í Félagi framhaldsskólakennara, sem stendur í verkfallsbaráttu. Guðríður
hefur verið kennari í Fjölbraut í Garðabæ en er þekktust sem bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og sem fyrrverandi
veðurfréttakona á Stöð2. Ljósmynd/Hari
verkfall ÓljÓs staða í verkfalli framHaldsskÓlakennara
Erfitt að spá hve langt
verkfallið verður
É g treysti mér ekki til að spá en ég ætla að leyfa mér að vona það besta.“ Þetta segir Guðríður
Arnardóttir þegar hún er beðin að spá
hve lengi verkfall kennara í framhalds-
skólum, sem hófst á mánudag, eigi
eftir að standa. „Ég harma það að mál-
inu skuli vera svona háttað og að þetta
skuli komið í þennan farveg.“
Guðríður tekur í dag við formennsku
í Félagi framhaldsskólakennara. „Það
er ekki óskastaða að taka við í miðju
verkfalli,” segir hún en Aðalheiður
Steingrímsdóttir, fráfarandi formaður,
mun áfram leiða samningaviðræður
uns nýr samningur við ríkið liggur
fyrir og verkfallið verður blásið af.
Á dögunum sagði Illugi Gunnars-
son, menntamálaráðherra, að til að
réttlæta það að hækka laun framhalds-
skólakennara um meira en 2,8% - en
það er hækkunin sem launþegar á
almennum vinnumarkaði sömdu um
í byrjun ársins - þyrfti að gera kerfis-
breytingar.
„Menn eiga ekki að líta á þetta sem
vandamál heldur tækifæri til þess að
bæta og nútímavæða menntakerfið og
um leið hækka laun kennara,“ sagði Ill-
ugi í viðtali við RÚV. Hann vill að það
verði meginregla að unglingar ljúki
framhaldsskólanámi á þremur árum
en ekki fjórum eins og nú tíðkast.
„Það er sérkennilegt að mennta-
málaráðherra skuldi blanda sér í
umræðuna með þessum styttingará-
formum sínum,“ segir Guðríður. „Það
er varla hægt að segja að það hafi orðið
til að auðvelda verkefnið.“
Fram hefur komið að styttingarhug-
myndir ráðherrans hafi verið ræddar
á samningafundi en annars hafa engar
fréttir borist af gangi viðræðna og því
hvaða hugmyndir um endurskipu-
lagningu framhaldsskólakerfisins var
að finna í tilboð sem samninganefnd
ríkisins lagði fram nýlega.
Guðríður vísar til þess að hún eigi
ekki sæti í samninganefndinni sem
eru innilokuð á fundum hjá Ríkissátta-
semjara stóran hluta sólarhringsins
þessa dagana: „Samningaviðræður af
þessu tagi eru alltaf viðkvæmar og það
fer best á því að það ríki mestur trún-
aður um það sem menn eru að ræða,
en viðræðurnar þokast í rétta átt,“
segir Guðríður.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Verkfall kennara í framhaldsskólum hefur nú staðið í fimm daga. Guðríður Arnardóttir, nýr for-
maður Félags framhaldsskólakennara, kveðst harma að kjaramálin séu komin í þennan farveg.
Hún segir það sérkennilegt að menntamálaráðherra skuli blanda sér í umræðu um kjaramál
kennara með áformum um styttingu náms til stúdentsprófs.
Það er sérkenni-
legt að mennta-
málaráðherra
skuldi blanda sér
í umræðuna með
þessum stytt-
ingaráformum
sínum. Það er
varla hægt að
segja að það hafi
orðið til að auð-
velda verkefnið.
Hvalur hf reynir enn að koma langeyðarkjöti sem safnast hefur í frysti-
geymslum úr landi. Hingað til hafa þær tilraunir ekki borið árangur.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Rín Lux Tungusófi
Basel leðursett 3+1+1
HELGARTILBOÐ
Sjónvarpsskápur Salsa Sjónvarpsskápur Cubic
Havana leður hornsófi 2H2
Písa-Rín sófasett 3+1
6 fréttir Helgin 21.-23. mars 2014