Fréttatíminn - 21.03.2014, Side 8
Leggur grunn að góðum degi
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Opi› virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 og Skeiði 1
Ísafirði • Sími 456 4566 betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðisaukaskatt af söluverði.
20,32% afslátturinn er alfarið á kostnað Betra Bak.
20,32% afsláttur af öllum vörum
Tax
Free
Dagar
aðeins í 3 daga
– fimmtudag – föstudag – laugardag –
D†NUR OG KODDAR
S lysum á börnum fjölgaði um tæp 20 prósent á milli áranna 2003 og 2011 og
slysum á 75 ára og eldri fjölgaði
um 10 prósent á tímabilinu. Þetta
kemur fram í niðurstöðum nýrrar
rannsóknar sem Edda Björk Þórð-
ardóttir hefur unnið að. Í skýrsl-
unni má sjá að drengir, allt frá
fyrsta æviári, eru drengir í meiri
slysahættu en stúlkurnar.
Slysum fjölgaði á tímabilinu
í öllum aldurshópum en mest
í þessum tveimur. Hún segir
þróunina mikið áhyggjuefni.
„Það þarf að rýna nánar í þessar
tölur og reyna að komast að því
hvers vegna svona mikil aukning
í tíðni slysa er frá hruni. Eftir að
kreppan skall á hefur orðið mikil
aukning í slysatíðni hjá öldruðum
og yngsta aldurshópnum,“ bendir
hún á.
Spurð hvort hún hafi skýringar
á aukningunni segist hún hafa
spurt sig sjálf að því hvernig á
þessu standi og hvort fjölgun á
slysum aldraðra hafi eitthvað að
gera með það að þeir séu frekar
einir heima en áður og komist ef
til vill síður á hjúkrunarheimili og
fái þá ekki næga þjónustu. „Þessi
greining er aðeins fyrsta skrefið í
áttina að því að greina þetta. Við
sjáum raunverulega aukningu á
slysatíðni á bráðasviði Landspítal-
ans. Við þurfum í framhaldinu að
skoða hvort sú aukning endur-
spegli slysaaukningu yfir allt
landið og taka þá inn heilsugæsl-
una,“ segir Edda Björk.
Herdís Storgaard, verkefna-
stjóri á Miðstöð slysavarna barna,
segir þessar niðurstöður sam-
hljóma hennar upplifun undan-
farin ár. „Ég fæ tilkynningar frá
foreldrum og leikskólum um
slys á börnum og held um þær
skrár sem gefa mér grófa mynd
af ástandinu,“ segir Herdís. „Því
miður virðist slysum í leikskólum
hafa fjölgað. Ég hef rætt um það
við skólastjórnendur sem hafa
ekki á því skýringu. Hugsanlega
spilar þar inn í niðurskurður og
að færri fagmenntaðir starfsmenn
eru starfandi á leikskólunum nú
en fyrir fáeinum árum,“ segir
Herdís. Hún bendir jafnframt á að
með auknum niðurskurði í heilsu-
gæslu minnki sá tími sem hægt
er að nýta í ungbarnavernd til að
fræða foreldra um slysavarnir
barna.
Samkvæmt rannsókn Eddu
hefur slysum á öldruðum einnig
fjölgað og slasast konur í mun
meira mæli en karlar. „Það er
ekki vegna þess að fleiri konur
eru á lífi en karlar, þessar tölur
eru óháð því. Konur eru hugsan-
lega líklegri til að brotna vegna
beinþynningar sem leggst á eldri
konur og slasast þá ef til vill frek-
ar en karlar við föll,“ segir Edda.
„Ég tel hins vegar fulla ástæðu til
að rannsaka þetta nánar,“ segir
hún.
Herdís segir að ekkert hafi
verið gert í slysavörnum aldraðra
hér á landi þrátt fyrir að skýrsla
sem þáverandi landlæknir, Sig-
urður Guðmundsson, hafi látið
gera fyrir rúmum áratug hafi sýnt
fram á þessa þróun. „Við þurfum
stöðugt að vera á tánum og vinna
í forvörnum. Ef einhvern tímann
hefur verið þörf á að fara í skipu-
lagðar aðgerðir þá er það núna,“
segir Herdís.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
SlySavarnir rannSókn Sýnir fram á fjölgun á SlySum
Eftir hrun varð
talsverð aukning
á slysum á
börnum og
öldruðum að því
er fram kemur í
nýrri rannsókn.
Herdís Storgaard
segir að slysum
á leikskólum
hafi fjölgað
en enginn hafi
skýringu á því
hvers vegna. Þá
skorti verulega
forvarnir gegn
slysum aldraðra.
Fjölgun slysa barna
áhyggjuefni
Aðeins á sjötta þúsund Reykvíkinga 16 ára og
eldri tóku þátt í íbúakosninguni Betri hverfi
2014 en í þeim forgangsraða íbúar smærri
nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í
hverfum borgarinnar. Í ár tóku 5.272 þátt eða
5,7% sem er fækkum frá fyrra ári þegar 6,3%
tóku þátt. Vegna þess hversu fáir taka þátt
hefur hvert atkvæði meira vægi.
Í kosningunum völdu Reykvíkingar 78
verkefni í hverfum borgarinnar sem koma
til framkvæmda á þessu ári og verður 300
milljónum varið til þeirra eins og síðustu tvö
ár. Kosningarnar eru bindandi fyrir Reykja-
víkurborg. Kosningaþátttaka var hæst í Hlíð-
unum, næstmest í Vesturbæ og Grafarholti-
Úlfarsárdal. Konur eru alls staðar fleiri í
hópi þátttakenda en karlar.
Þau verkefni sem farið verður í er til að
mynda að gróðursetja tré við Háaleitisbraut,
setja upp hraðahindranir í Lönguhlíð sunnan
Miklubrautar, fjölga ruslastömpum víða um
borgina og setja upp frisbígolfvöll neðan við
Fella- og Hólakirkju/Keilufell.
Í kosningunni var valið á milli hugmynda
sem bárust frá borgarbúum sjálfum um um-
bætur í hverfunum. Á vef Reykjavíkurborgar
er hægt að kynna sér öll þau verkefni sem
koma til framkvæmda. -eh
ríflega fimm þúSund mannS tóku þátt í íbúakoSningu um framkvæmdir í hverfunum
Aðeins 5,7% kusu um Betri hverfi
Færri tóku
þátt í íbúa-
kosningunni
Betri hverfi í
Reykjavík en
í fyrra. Fleiri
konur en
karlar kusu
um fram-
kvæmdir.
NordicPhotos/
Getty
8 fréttir Helgin 21.-23. mars 2014