Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 16
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. K Kreppt hefur að öllum á undanförnum árum, launamönnum á almennum vinnu-markaði, opinberum starfsmönnum, þorra fyrirtækja og ekki síst ríkissjóði. Nýverið var gengið frá hófsömum skammtímasamn- ingi á almennum vinnumarkaði, undirbún- ingi í raun að samningi til lengri tíma. Á niðurskurðartímum hefur þrengt að flestu í ríkisrekstri. Heilbrigðiskerfið hefur fundið verulega fyrir því og var komið að þolmörkum þegar ákveðið var að veita meira fé til þess. Áfram verður væntan- lega haldið á þeirri braut, að því gefnu að hagur ríkissjóðs batni, enda samstaða í samfé- laginu að vernda heilbrigðis- kerfið og forgangsraða með hagsmuni þess að leiðarljósi. Svipaða sögu má segja af öðru grunnkerfi samfélags- ins, menntakerfinu. Dregið hefur úr framlögum til þess, ekki síður en heilbrigðiskerfisins. Það með öðru leiddi til verkfalls framhaldsskólakennara í viku- byrjun. Fimm ára menntunarkrafa er gerð til framhaldsskólakennara. Að vonum líta þeir til samanburðarstétta þegar bornar eru saman menntunarkröfur og störf að námi loknu. Kennaraforystan sagði, áður en til verkfallsins kom, að stéttin myndi ekki sætta sig við launahækkun á borð við þá sem náðist í skammtímasamningnum á almenna vinnumarkaðnum. Fram kom hjá formanni Félags framhaldsskólakennara að launakjör- in væru orðin dragbítur í skólastarfi. Verkfall er lögleg aðgerð í vinnudeilu en strangar kröfur verður að gera til þeirra sem ábyrgð bera, beggja vegna borðs. Kennaraforystan berst fyrir kjarabótum en hefur um leið nefnt að hún sé opin fyrir útfærslum og hafi ekki einblínt á að fá launahækkanir í einu vetfangi. Sé sam- staða um það í samfélaginu að bæta þurfi hag framhaldsskólakennara umfram aðra þarf að forgangsraða í ríkisrekstri svo hægt sé að mæta slíku en það verður að gerast í áföngum og ekki leiða til þess að almenn skriða fari af stað. Verðbólga og verðhækk- anir fylgja þá í kjölfarið og allir tapa. Það er eðlileg krafa framhaldsskóla- kennara að standa jafnfætis samanburðar- stéttum en forysta þeirra gerir sér um leið grein fyrir því að leiðrétting verður varla nema í áföngum. Á viðsemjandanum hvílir að jafna muninn á gefnum tíma – en taka um leið tillit til annarra kjarasamninga og stöðu ríkissjóðs. Á þeim grunni lagði samninganefnd ríkisins fram tilboð þar sem reynt var að taka tillit til sjónarmiða kennara en um leið þess sem hún vill fá fram, meðal annars styttingu náms til stúdentsprófs. Til lengri tíma litið verður ekki hjá því komist að huga að þeim þætti þótt breyting í þá veru verði að fá að þróast í umræðu og rannsókn á skólakerfinu. Sú rannsókn á ekki einvörðungu að beinast að framhaldsskólanum heldur einnig efstu bekkjum grunnskóla sem eru að mörgu leyti vannýttir, að því er fram kom í máli starfandi rektors Menntaskólans í Reykja- vík. Fjölbrautaskólar bjóða upp á mismun- andi námslengd, Kvennaskólinn hefur að undanförnu boðið upp á þriggja ára nám og stefnt er að hinu sama hvað varðar Verzl- unarskóla Íslands. Nám til stúdentsprófs tekur í meginat- riðum lengri tíma hér á landi en í öðrum OECD-ríkjum. Íslendingar ljúka háskóla- prófi seinna en þær þjóðir sem við miðum okkur við. Verkefnastjórn Samráðsvett- vangs um aukna hagsæld fram til ársins 2030 lagði áherslu á það í skýrslu í maí síð- astliðnum að stytta nám í grunn- og fram- haldsskóla, jafnframt því sem skólum yrði fækkað og þeir stækkaðir – og kjör kennara bætt. Þjóðhagslegur ávinningur væri af því að íslenskir nemendur útskrifuðust á sama tíma úr framhaldsskóla og jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum – að teknu tilliti til þess þó að sami námshraði hentar ekki öllum. Að loknum átökunum nú verður að gera þá kröfu til forystu kennara á grunn- og framhaldsskólastigi og yfirvalda mennta- mála að litið verði fram á veginn. Þar stilli menn saman strengi og nái ásættanlegri niðurstöðu um námslengd til stúdentsprófs – og að kennarar megi bærilega una við sín kjör. Óhjákvæmilega tekur sú vinna tíma. Kjör kennara og stytting náms til stúdentsprófs Sameiginleg vinna að átökum loknum Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fram kom hjá formanni Félags framhaldsskólakennara að launakjörin væru orðin dragbítur í skólastarfi. Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is 8BLSBÆKLINGURNETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP NR40 RISA PÁSKA EGG HEPPIN N FACE BOOK V INUR VINNUR 3KG P ÁSKAE GG FRÁ FR EYJU:) FRÍTT SENDUM ALLAR VÖRURTIL PÁSKA – fyrst og fre mst – fyrst og fre mst ódýr! 99 kr.stk. Verð áður 2 35 kr.stk. Krónubrau ð, stórt og gróft DÚNDUR 57% afsláttur TILBOÐ! GÆÐA STEINSKÍFA Graphite 30x60x1cm Verð kr. 4.690 pr m2 Hljóðeinangrandi undirlag, Weber flísalím og fúga. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi 7, Reykjavík Fuglavík 18, Reykjanesbæ Kemur næst út 11. apríl 16 viðhorf Helgin 21.-23. mars 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.