Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 18
En hvar er hann?
Hann er lausnamiðaður og
mikill hugsuður.
Sigrún Magnúsdóttir, þing-
flokksformaður Framsóknar,
talar um Sigmund Davíð
Gunnlaugsson, formann
flokksins.
Enda lausnamiðaður,
leiðtoginn
Vel til fundið hjá forsætis-
ráðherra að fara svo óhefð-
bundna leið í Mottumars!
Helgi Seljan um fréttir af því
að Sigmundur Davíð kallaði
sendiherra ESB á teppið af
því að sendiherrann sagði
fjölmiðlum frá því að ESB
væri ekkert að ýta á eftir
Íslendingum að slíta aðildar-
viðræðum eins og forsætis-
ráðherrann hafði
haldið fram.
Nýtt líf
Ég hef aldrei
áður upplifað
vera skipað
að vera í her-
bergi þar sem mannsandinn
leggst í svaðið og veltir sér
uppúr því.
Þráinn Bertelsson lýsir
reynslu sinni af þingmennsku
í viðtali við Sigurlaugu M.
Jónasdóttur á Rás 1.
Ég á þetta, ég má þetta
Hvernig nennirðu að taka
upp símann? Hver er fréttin?
Hvað er fréttnæmt við þetta?
Að húsgögn sem þurfa
annars að vera í geymslu séu
lánuð?
... Fyrirgefðu, eru félagar
í Blaðamannafélaginu og
Egill Helgason, búnir að slá
eign sinni á tjáningarfrelsi í
landinu?
Erna Bjarnadóttir, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Bænda-
samtakanna, þegar Vísir
spurði hana út í húsgögn sem
bændur lánuðu Heimssýn.
Ekki á minni vakt
Ég mun standa vörð um
ritstjórnarlegt sjálfstæði
RÚV og mun aldrei á minni
vakt ganga erinda nokkurs í
þessum efnum.
Magnús Geir Þórðarson
útvarpsstjóri var spurður að
því í Kastljósi hvort hann
væri að reka Óðin Jónsson
fréttastjóra vegna óánægju
ákveðinna sjálfstæðismanna
með fréttastofu RÚV.
Ég er ekki ómögulegt foreldri - barnið mitt er bara meira krefjandi en flest önnur börn
Nýjasta verkefnið: ADHD
N ú er ég komin með nýtt verkefni í lífinu. Reyndar fékk ég verkefnið upp
í hendurnar fyrir átta árum – en
það hefur nú hins vegar verið
endurskilgreint. Strax eftir fæð-
ingu næstyngsta barnsins míns
fann ég að hún myndi seint læðast
með veggjum. Hún var
farin að mjaka sér áfram
á gólfinu þriggja mánaða
og skríða á fjórum fótum
fimm mánaða! Hin börnin
í mömmuklúbbnum voru
enn að rembast við að
einbeita sér við að grípa í
hluti þegar hún var komin
á fulla ferð um húsið. Hún
hefur alltaf verið skapmikil
og dugleg en líka ótrúlega
skapandi og sjarmerandi.
Tveggja ára kunni hún alla
stafina og fjögurra ára var
hún farin að lesa stutt orð án þess
að nokkur hafi kennt henni það.
Hún bara spurði – og fékk svör –
og lærði þannig að lesa. Reyndar
krotaði hún ennþá á veggi þegar
hún var fjögurra ára og neitaði að
klæða sig í jólafötin á aðfangadag
á sama aldri og setjast við jóla-
borðið – en það hlyti að eldast af
henni.
En þegar hún þurfti að fara að
lesa heima fyrir skólann – og æfa
sig á píanóið (því hún vildi endi-
lega fá að fara í píanótíma eins og
stóru systurnar) – þá fóru málin
að flækjast allverulega. Eftir því
sem kröfurnar á heimilinu og í
samfélaginu jukust – því meira
krefjandi varð barnið. Oft á tíðum
vorum við foreldrarnir algjörlega
ráðþrota. Hvernig bregst maður
við því þegar barnið manns segir
bara: „Nei”! og fæst ekki haggað?
Hvað er ég að gera svona rangt?
Það vantar ekki ráðleggingarnar
frá fólki með börn sem hægt er
að tjónka við: „Þið verðið bara að
gefa henni tvo valkosti“, segja
vinkonurnar af góðum hug. Eins
og ég hafi ekki reynt það. Það
bara virkar ekki. „Þið verðið
bara að beita refsingum – taka af
henni eitthvað sem henni þykir
skemmtilegt þegar hún verður
svona ósamvinnuþýð.“ Það virkar
heldur ekki. Henni er alveg sama.
„Þið verðið bara að setja upp umb-
unarkerfi. Hún fær stjörnu þegar
hún stendur sig vel og þegar hún
er komin með tíu stjörnur fær hún
verðlaun.” Neibbs... virkar ekki
heldur.
Við ákváðum að leita okkur
hjálpar hjá sérfræðingum – því
til þess eru þeir. Skólasálfræð-
ingurinn tók málið í sínar hendur,
setti barnið í greiningu og komst
að því að hún er með ADHD
röskun. Niðurstaðan kom engan
veginn á óvart – og mikið var ég
fegin að vera komin með papp-
íra í hendurnar sem sönnuðu
það fyrir sjálfri mér að ég væri
ekki ómögulegt foreldri. Og við
fengum alls kyns leiðbeiningar
og tæki og tól til að hjálpa okkur
að hjálpa barninu. Og við fórum
á námskeið hjá ADHD samtök-
unum fyrir foreldra barna með
ADHD. Og allt í einu voru hlut-
irnir komnir í samhengi.
Ég veit núna af hverju hefð-
bundið umbunarkerfi virkar
ekki fyrir hana. Af því að mörg
börn með ADHD röskun eru
ekki tilbúin að fórna skamm-
tímahagsmunum fyrir langtíma-
hagsmuni. Við þurftum að aðlaga
uppeldisaðferðirnar að hennar
þörfum og taka eitt atriði fyrir
í einu. Erfiðastir voru morgn-
arnir og því byrjuðum við á þeim.
Ráðleggingar og leiðbeiningar
skólasálfræðingsins virkuðu eins
og galdur. Í staðinn fyrir fimm
sturlaða morgna í viku erum við
nú með fjóra fyrirmyndarmorgna.
Við stillum klukku sem hringir á
ákveðnum tímum þegar hún á að
gera ákveðin verkefni (klæða sig,
borða morgunmat, bursta tennur,
fara í útiföt) og ef hún gerir það
sem hún á að gera fær hún að
fara í spjaldtölvuna eða horfa
á sjónvarpið. Umbunin kemur
sem sagt strax, ekki seinna í dag
eða seinna í vikunni. Þetta er
fyrsta skrefið. Svo verður hægt
að kenna henni smám saman
að fá verðlaun seinna. En eins
og er erum við hæstánægð með
árangurinn og hlökkum til að
taka á næsta máli af mörgum:
kvöldmatartímanum.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjóNarhóll
Mikið var ég fegin að vera komin með pappíra í hend-
urnar sem sönnuðu það fyrir sjálfri mér að ég væri ekki
ómögulegt foreldri.
Minja er gjafavöruverslun með áherslu á íslenska og erlenda hönnun • skólavörðustíg 12 • sími 578 6090 • www. minja.is • facebook: minja
K
raftaverk
Skafkorti›
Þú skefur gylltu
himnuna af þeim
löndum sem þú
hefur heimsótt og
útbýrð þannig
persónulegt
heimskort.
82 X 58 cm • Kr. 2.990
VikaN sem Var
VikAn í tölum
250
milljónir króna lögðu Bændasamtök
Íslands Hótel Sögu til í nýtt eigið fé
auk þess sem skuldir voru felldar
niður í fjárhagslegri endurskipu-
lagningu hótelsins.
20
ár eru liðin
síðan Liverpool-
klúbburinn á Ís-
landi var stofn-
aður. Goðsögnin
Robbie Fowler
mætir í afmælisveisluna um helgina.
600.000
krónur og rétt
rúmlega það
er uppsett
verð fyrir
eina stöng á
dýrasta deginum í Selá í Vopnafirði í
sumar. Nánast er uppselt í Selá í sumar.
18 viðhorf Helgin 21.-23. mars 2014