Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 25
Einnig sé mikilvægt að passa
upp á koffínneyslu unglinga en
mikil neysla þeirra veldur seinkun
á svefntíma, sérstaklega allt sem
drukkið er eftir hádegi og fram á
kvöld.
Raftækin trufla svefn
Flestir unglingar eru með raftæki
í herbergjunum sínum en það
hefur slæm áhrif á svefninn. „Oft
eru unglingar í tölvu, spjaldtölvu
eða símanum alveg þangað til þau
slökkva ljósin. Ljósin í þessum
tækjum valda því að melatónín-
framleiðsla sem gerist í myrkri
stöðvast og við verðum ekki syfjuð
þrátt fyrir að kominn sé háttatími,
og unglingar eru sérstaklega við-
kvæmir fyrir því. Foreldrar ættu
að gera eitthvað sem er örugg-
lega mjög erfitt að framkvæma,
að láta krakkana skilja þetta allt
eftir frammi. Raftæki eiga í raun
ekki að vera í svefnherbergjum,“
segir Erna Sif. Hún segir einnig
mikið sjónvarpsáhorf á kvöldin
trufla svefn. „Í rauninni ættum
við að auka bókalestur barna og
unglinga því hann hefur svo góð
og róandi áhrif á líkamann. Best
væri að slökkva á öllum raftækjum
og bjóða börnum og unglingum að
lesa í klukkutíma fyrir svefninn,
og auka þar með læsi og svefn á
sama tíma.“
Breytt klukka og seinkun skóla
Erna Sif bendir á að við séum
með innbyggða dægursveiflu í
líkamanum sem í daglegu tali sé
kölluð líkamsklukka. „Við erum
í rauninni hönnuð til að gera
ákveðna hluti á ákveðnum tíma
dags. Hjartaáföll eru til dæmis
algengust um miðja nótt því þá er
starfsemi hjarta-og æðakerfisins
í lágmarki. Eins erum við líkleg-
ust til að lenda í umferðaslysi um
miðja nótt því öll kerfi miðast við
að við séum sofandi á þessum
tíma. Hún segir mikilvægt að sam-
hæfa líkamsklukkuna sólarklukk-
unni, en á Íslandi sé hún skökk.
„Þessi skakka klukka hefur mikil
áhrif á okkur þar sem Íslendingar
fara almennt einni klukkustund
seinna að sofa en nágrannaþjóðir
okkar en við þurfum svo að vakna
snemma á morgnanna og sofum
því styttra. Þegar við vöknum kl. 7
á morgnana er sólarklukkan í raun
bara 5:30 og líkami okkar stilltur
eftir því.“
Erna Sif segir námsárangur og
mætingu unglinga erlendis, þar
sem skólastarfi hafi verið seinkað
á morgnana, aukast mikið ásamt
bættri líðan unglinganna. „Við
vitum að unglingar eru með
seinkaða dægursveiflu þannig að
við ættum ekki að vera að draga
þau fram úr rúminu eldsnemma
á morgnana. Þau vilja sofa lengur
og best væri að leyfa þeim að
gera það. Unglingar ættu í raun
ekki að byrja skóla fyrr en klukk-
an 9 á morgnanna. Í íslenskum
framhaldskólum er einnig mikið
óútskýrt brottfall vegna mæting-
ar og hjá Svefnrannsóknafélaginu
teljum við að þau ættu auðveldara
með mætingu ef við seinkuðum
skólatímanum. Þetta er ekki
bara menningarlegur munur
heldur er þetta líka líffræðilegt.
Við hjá Svefnrannsóknafélaginu
mælum með því að klukkunni
verði breytt og teljum að það
myndi vera til hagsbóta fyrir allt
samfélagið.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Uppskriftir á gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
bökuð sítrus-
ostakaka
Þessi er virkilega fersk og skemmtileg. Hér er
hugmynd: skiptu út 18% sýrðum rjóma fyrir
nýja 36% sýrða rjómann og berðu hana fram
með smá slettu af 36% rjómanum. Það verður
enginn svikinn af því.
NÝTT
Vilja breyta klukkunni
og seinka skólabyrjun
Erna Sif segir þá unglinga
sem sofa of lítið ekki hugsa
jafn vel um sig. Þeir hreyfi
sig minna og þyngist auð-
veldar auk þess að sækja
oftar í áhættuhegðun eins
og að reykja og drekka.
Mynd/Getty
Kostir þess að
breyta KluKKunni
skv. Hinu íslenska svefnrannsóknarfélagi
samhæfing sólar-
hringsklukku og
líkamsklukku
fólk færi
fyrr að sofa
og næði í
kjölfarið betri
nætursvefni
aukin birta á
morgnana í 6 vikur
til viðbótar á árinu
HádEgi klukkan
13:28
yfir vEturinn í rEykjavík
í nóvember á síðasta ári lagði Björt
framtíð fram þingsályktunartillögu
þar sem lagt var til að klukkunni
yrði breytt þar sem hún væri rangt
skráð. í tillögunni segir að klukkan
á Íslandi hafi verið rangt skráð, stillt
á sumartíma allt árið, síðan 1968.
Með breytingunni vill Björt framtíð
að við fáum bjartari morgna í 6 vikur
til viðbótar á ári. í stað þess að sól
sé hæst á lofti um hádegisbil yfir
vetrartímann klukkan 12:00 þá er
hún, skv. núverandi klukku, hæst
á lofti klukkan 13:28 í reykjavik en
hálftíma fyrr á Egilstöðum. væri
klukkunni seinkað um klukkustund
yfir vetrartímann, yrði sól hæst á lofti
í reykjavík að jafnaði klukkan hálfeitt
og á Egilstöðum í kringum tólf.
fréttaskýring 25 Helgin 21.-23. mars 2014