Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.03.2014, Page 30

Fréttatíminn - 21.03.2014, Page 30
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420 Heimilistæki Með einfalda leið til að miðla greiðslum án kostnaðar fyrir ríkið Katrín María Lehmann, við- skiptafræðingur og frumkvöðull í fyrirtækinu Nordic Payments, er sérhæfð í greiðslumiðlun. Hún sér viðskiptatækifæri í því að nýta sérstök greiðslukort til að innheimta gjöld ferðamönnum á vinsælum ferðamannastöðum. Katrín er búin að útfæra kerfi sem hún segir að gangi upp ríkinu að kostnaðar- lausu. Fyrir erlendu ferðamennina þurfi þá að búa til sérstakt greiðslukort með fyrirframgreiddri inneign sem geti í leiðinni nýst sem öflugt markaðstól fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Rafeindabún- aður og sjálfvirkir teljarar verði nýttir við innheimtuna þannig að ekki myndist biðraðir og ekki þurfi að ráða fjölmennt starfslið á helstu ferðamannastaði til þess þess að stjórna innheimtunni. Ríkið mundi fá sitt gjald í gegnum greiðslu- miðlunina án þess að þurfa að ráða starfslið til þess að halda utan um gjald- tökuna. Katrín Anna er búin að koma hugmynd sinni á framfæri við fjölmarga aðila innan ferðaþjónustunnar og í stjórn- sýslunni og segist hafa fengið góðar undirtektir. Óljóst er þó hvort hugmynd hennar verður ofan á enda er málið í pólitísku upp- námi og eftir er að svara ýmsum spurningum um málið á vettvangi stjórnmálanna og stjórnsýslunnar áður en það skýrist hver pólitíski viljinn er varðandi gjaldtöku af ferðamönnum. En Katrín Anna staðhæfir að ef niður- staðan verður sú að fara í að innheimta sérstakt gjald eigi hún til einfalt kerfi til þess að vinna það verk á mun skilvirkari og þægilegri hátt fyrir alla aðila en raunin er þessa dagana á Geysi. Eins og kunnugt er af fréttamyndum vinnur nú starfsfólk, klætt í kuldagalla og með posa á lofti, við það að búa til biðröð þar sem ferðamenn bíða eftir að greiða 600 króna aðgangseyri fyrir að ganga inn á Geysissvæðið. Ysti hluti svæðisins er í sameign ríkisins og einkaaðila, en hver- irnir sjálfir og svæðið næst þeim er hins vegar allt í eigu ríkisins. Ríkið er andvígt því að sameigendur þess að landinu taki gjald af gestum en sýslumaðurinn á Selfossi neitaði ríkinu um að leggja lögbann á gjaldtökuna. Held að þetta sé mikið óheillaspor Páll Ásgeir Ásgeirsson, útivistarmaður og rithöf- undur, segir að gjaldtakan við Geysi brjóti almannarétt sem gilt hefur í landinu frá landnámi og varar við að áform ríkis- stjórnarinnar geti opnað fyrir víðtæka einkavæðingu í íslenskri náttúru. M eð því að heimila landeigendum gjaldtöku á einstökum svæðum er verið að ganga gegn óskrif- uðum reglum sem þjóðin hefur haft með sér um samband okkar við landið,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, rithöfundur, fjalla- leiðsögumaður og kunnur áhugamaður um náttúruvernd og útivist. Hann er einn þeirra sem bregst harkalega við fréttum af gjald- tökunni við Geysi og áformum um gjaldtöku af ferðamannastöðum. Hann lýsir áhyggjum af þetta kunni að vera fyrsta skrefið í átt að hugsanlegri einkavæðingu náttúrunnar og telur eðlilegast að ríkið afli tekna til nátt- úruverndar og úrbóta á ferðamannastöðum með því að hækka gistináttagjaldið. Skýlaust brot á lögunum „Ég held að þetta sé mikið óheillaspor og ýtir undir þann átakakúltúr sem fer vaxandi í samfélagi okkar. Stjórnvöld virðast algjör- leg vanbúin til að stöðva þetta framferði og þetta mun aðeins leiða til stjórnleysis og öngþveitis í ferðaþjónustunni,“ segir Páll Ásgeir. Náttúruverndarfólk, landverðir og útivistarfólk telji að gjaldtakan sé skýlaust brot á ákvæði í náttúruverndarlögunum um almannarétt. Það er réttur sem hefur verið í gildi frá upphafi Íslandsbyggðar. „Í lög- unum er kveðið á um frjálsa för almennings um náttúru Íslands og þó að þar sé vissu- lega veitt heimild til landeigenda til að loka landi sínu ef það liggur undir skemmdum vegna ágangs þá er ekkert fjallað í náttúru- verndarlögunum um gjaldtöku heldur er þar bara grein sem varðveitir almannarétt- inn. Og teljum að þetta framferði við Geysi og hjá öðrum sem þetta ætla að stunda sé skýlaust brot á lögunum.” Minnir á aðdraganda kvótakerfisins „Mér finnst nokkuð augljóst að landeigendur sjá sér nú leik á borði,“ bætir Páll Ásgeir við. „Þeir eru búnir að átta sig á því að þessi ríkis- stjórn er vanhæf til þess að leysa þessi mál og inn í þetta tómarúm vilja landeigendur stíga og hefja gjaldtöku til þess að geta skapað sér bótarétt á hendur hins opinbera þegar mið- læg gjaldheimta í þágu náttúrunnar hefst. Þetta er svipað og í aðdraganda kvótakerf- isins þegar menn lögðu kapp á að afla sér veiðireynslu.“ Hann segist telja að áform iðnaðarráðherra um að tekjur af náttúrupassanum renni inn í sjálfseignarstofnun og í sérstakan sjóð sem ekki er hluti af fjármálum ríkisins og lýtur eigin lögmálum sé trúlega liður í „ einhvers konar einkavæðingaráformum þessarar sömu ríkisstjórnar á íslenskri náttúru.“ Rétta leiðin er þekkt, gistináttagjald og virðisaukaskattur „Það efast enginn um nauðsyn þess að afla fjár til náttúruverndar og uppbyggingar í ferðamannaþjónustu,“ segir Páll Ásgeir. „Leiðirnar til þess að ná í þann pening eru til, þær eru vel valdar og einfaldar í fram- kvæmd og rétta leiðin er hvorki gjaldtaka á einstaka stöðum né þær hugmyndir sem iðnaðarráðuneytið er með í undirbúningi um náttúrupassann. Einfaldasta leiðin væri að lagfæra innheimtu gistinátta- gjaldsins og hugsanlega láta ferðaþjón- ustu borga virðisaukaskatt eins og aðrar atvinnugreinar. Allt þras um amerísku leiðina, eða nýsjálensku leiðina eða þessa leið eða hina leið er bara til þess að drepa málinu á dreif.” Páll Ásgeir Ásgeirsson óttast að gjaldtakan við Geysi geti gefið fordæmi fyrir stórfelldri einkavæðingu í náttúru Íslands. Mynd/Hari Pétur Gunnarsson petur@frettatiminn.is  FerðaMennska Gjaldtaka aF FerðaMönnuM Gæti orðið Fyrsta skreFið í víðtækri einkavæðinGu Ljósm ynd/N ordicphotos - G ettyim ages Farið er að krefja ferðamenn við Geysi um 600 króna aðgangseyri fyrir að skoða hverina. Ríkið á hverina en landeigendur eiga sameigin- lega landið sem ferðamenn verða að ganga um til þess að komast að hverunum. Það eru meðeigendur ríkisins að því landi sem standa að gjaldtökunni í óþökk ríkisins. 30 úttekt Helgin 21.-23. mars 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.