Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.03.2014, Síða 34

Fréttatíminn - 21.03.2014, Síða 34
Stolt íslenskrar náttúru Blóðberg • Birkilauf • Aðalbláberjalyng • Einir MEÐ VILLTUM ÍSLENSKUM KRYDDJURTUM Íslenskt heiðalamb VELDU GÆÐI, VELDU KJARNAFÆÐI WWW.KJARNAFAEDI.IS og berjast nánast eins og dýrin í skóginum. Þetta hefur ekki breyst nema til hins verra ef eitthvað er. Ég er í heimspeki til að reyna að skilja þetta.“ Umræðan líkist oft kappleik „Ég valdi heimspekina því hún reynir að leita svara um hegðun manneskjunnar og tengsl hennar við náttúrulögmál, hvatir og annað. Til- hneigingin er alltaf sú að einhverjir aðrir vilji stýra annarra manna lífi og troða sínum skoðunum upp á aðra. Kannski hef ég gert það sjálfur. Það er stöðugt áreiti og menn virðast ekki geta talað um hlutina með almannaheill í huga eða tekið þátt í rökræðum sem leiða mál til lykta heldur virðist umræðan helst líkjast kappleik þar sem stefnan er tekin á sigur, kappleik sem snýst um að hafa aðra undir. Nú þegar ég hef aðeins dregið mig í hlé er góður tími til að velta þessu fyrir sér. Hvað veldur þessu? Var ég svona líka? Það er ágætt að velta þessu öllu upp.“ Þetta er í annað sinn sem Ellert er við nám í Háskóla Íslands en þaðan útskrifaðist hann með lögfræðipróf 1966 og fékk héraðsdómsréttindi ári síðar. „Ég var að gantast með það í kosningunum til Stúdentaráðs í vet- ur að það eru 50 ár síðan ég var sjálf- ur formaður Stúdentaráðs, og tók svo þátt í kosningunum núna. Mig minnir að það hafi verið um 1300 nemendur í skólanum þegar ég var hér, mun færri greinar voru kenndar og þá voru ekki komnar allar þessar byggingar. Kennslan fór fram í Aðal- byggingunni og síðan höfðum við að- stöðu við Aragötu til að lesa. Það er gleðiefni hvað háskólasvæðið og há- skólasamfélagið hefur stækkað enda er hér lagður grundvöllur að þekk- ingu og kunnáttu sem fólk hefur með sér út í lífið.“ Stundar ýmsa heilaleikfimi Ellert segir háskólann vera dásam- legan vettvang. „Það er yndislegt að vera hér í heimspekideildinni, innan um ungt fólk, í akademísku umhverfi, og fá tækifæri til að hlusta á viti borna flotta kennara. Það eru mikil forréttindi því viti bornir menn eru sjaldgæfir,“ segir hann íbygginn. Þá hafa samnemendur tekið honum afar vel. „Þetta unga fólk er allt sam- an kurteist og glatt og spjallar þegar þannig stendur á. Það er gaman að vera innan um það og gaman að sjá hvað unga fólkið er greint og klárt.“ Ein af ástæðunum fyrir því að Ellert fór aftur í skóla er sú að hann hefur meiri tíma aflögu nú þegar hann er ekki lengur á vinnumark- aðnum. „Mér fannst eftirsóknarvert að komast í ögrandi og fræðandi um- hverfi og reyna að skilja bæði mína tilveru og tilganginn með þessu öllu, fræðast um hegðun mannskepnunn- ar og fá að einhverju leyti sýn á mitt eigið lífshlaup. Það vakna upp spurn- ingar hvort ég hafi breytt rétt eða rangt, hvort ég hafi gert gagn og út á hvað þetta hefur allt saman gengið. Ég er ekki að segja að það sé komið að leikslokum en það er allavega farið að halla í seinni hálfleik og þá er gott að líta yfir farinn veg. Ég held líka að pælingar af þessu tagi, hugsun og heilabrot geti komið sér vel þegar aldurinn færist yfir. Ekki svo að segja að ég sé orðinn mjög gamall. En á þessum aldri er mikil- vægt að halda sér hugsandi, vakandi og lifandi, og nota heilann. Alls kyns vandamál fylgja elliárunum, hrörnun og gleymska. Það er bara lífsins gangur.“ Og Ellert hefur sannarlega nóg fyrir stafni. „Ég glími við krossgátur, spila bridds og les mikið. Ég á margs konar tómstundir, bæði þegar kemur að ræktun hugar og líkama og held að ég sé tiltölulega duglegur við það. Ég fer í ræktina og tek á þeim tækjum sem þar eru, lyfti og hoppa, og á sumrin spila ég golf. Síðan á ég börn og barnabörn og er nýbúinn að eignast mitt fyrsta barnabarnabarn. Ég er því orðinn langafi og ég vil alls ekki missa af því að sjá og sinna öllum þessum börnum. Ég á líka stórt áhugamál sem er Ágústa konan mín. Hún er heimspeki út af fyrir sig. Þetta er allt saman í takt við að lifa lífinu lifandi.“ Þegar við stöndum upp frá borðinu á Háskólatorgi kemur Ellert auga á tvo samnemendur sem ólmir vilja fá hann í næsta partí en Ellert gefur ekkert endanlegt svar. Þegar við höf- um kvatt nemendurna spyr ég hann líka hvort hann mæti ekki örugglega í partíið. Ellert hugsar sig um í ör- skotsstund og svarar síðan hlæjandi: „Ef Ágústa leyfir mér það.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Mér fannst eftir- sóknarvert að komast í ögrandi og fræðandi umhverfi og reyna að skilja bæði mína tilveru og tilganginn með þessu öllu. Ellert var formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands fyrir 50 árum. Hann situr hér við enda borðsins. 34 viðtal Helgin 21.-23. mars 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.