Fréttatíminn - 21.03.2014, Page 36
Hvað er svo glatt sem
góðir endurfundir?
Haraldur
Jónasson
hari@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Þ
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 12.03.14 - 18.03.14
1 2
Sannleikurinn um mál
Harrys Quebert
Joel Dicker
Hljóðin í nóttinni
Björg Guðrún Gísladóttir
5 6
7 8
109
43 Iceland Small World - lítil Sigurgeir Sigurjónsson
5:2 Mataræðið - með Lukku í Happ
Unnur Guðrún Pálsdóttir
5:2 Mataræðið
Michael Mosley / Mimi Spencer
Kroppurinn er kraftaverk
Sigrún Daníelsdóttir
Marco áhrifin
Jussi Adler Olsen
Konungsmorðið
Hanne-Vibeke Holst
HHhH
Laurent Binet
Skrifað í stjörnurnar
John Green
Eingöngu selt á hársnyrtistofum
Betra hár Víkurbraut 62, Grindavík, 426-9800, Björt
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði, 565-3065, Brúskur Höfðabakka 9,
Reykjavík, 587-7900, Caró Miðvangi 6, Egilsstöðum, 471-2980,
Classic Hárstofa Smiðjuvöllum 32, Akranesi, 431-4000, Fagfólk
Fjarðargötu 9, Hafnarfirði, 565-3949, Grand Grandavegi 47,
Reykjavík, 562-6162, Gresika Suðurgötu 7, Reykjavík, 552-2430,
Hárfaktorý Hafnargötu 20, Reykjanesbæ, 421-3969, Hárhús
Kötlu Stillholti 14, Akranesi, 431-3320, Hárið sf. Engihjalla 8,
Kópavogi, 554-4645, Hárlínan Snorrabraut 22, Reykjavík,
551-3830, Hársmiðjan Smiðjuvegi 4 (græn), Kópavogi,
557-3232, Hárstofa Olgu Stórakrika 48, Mosfellsbæ,
696-8500, KlippArt Lóuhólum 2-6, Reykjavík, 557-2653,
Króm Skipholti 70, Reykjavík, 553-9770, Lína Lokkafína
Bæjarhrauni 8, Hafnarfirði, 565-4424, Madonna Garðaflöt
16-18, Garðabæ, 565-6620, Möggurnar í Mjódd ehf. Álfabakka
12, Reykjavík, 557-7080, Pílus ehf. Þverholti 2, Mosfellsbæ,
566-6090, Prímadonna Grensásvegi 50, Reykjavík, 588-5566, Yfir
Höfuð Búðagerði 10, Reykjavík, 533-5050
Meðal söluaðila eru:
Það er ekki það að mér finnist ég endilega
svo gamall. Það er bara þetta með alla
afmælisdagana og brúðkaupsafmæli öll
jólin. Börnin stækka á ógnarhraða og mér
finnst talan 40 á afmæliskökunni nálgast
full geist. - Jú, kannski finnst mér ég vera
að verða pínu gamall.
Ekki skánuðu aldurskomplexarnir
þegar upp poppuðu hugmyndir á Facebo-
ok um að halda partí. Ekki að mér leiðist
gleði á góðri stund í góðu partíi. Heldur
var það um hvurskonar teiti var að ræða.
Reunion!
Já, það ku víst vera 22 ár síðan ég, að ég
vonaði tiltölulega ungur maðurinn, kláraði
grunnskóla. Nú er það svo, eins og ætla
mætti með mann sem hefur áhyggjur af
aldrinum og ekki orðinn fertugur, að ég
er ekkert sérstaklega þroskaður. Í það
minnsta með málefni sem skipta máli í
stóra samhenginu. Staða í pólítík og þess
háttar hugmyndir um hvað gerir fólk full-
orðið eiga ekki endilega við mig. Ég vil
helst ræða hárblástur og æðar á upphand-
leggsvöðvum. Borða helst bara kókópöffs
og pítsur í öll mál. Auk þess sem
mér finnast prumpubrandarar
ennþá fyndnari en flest annað.
Það var því skemmtilegt
raunveruleikatékk
að hitta þessa
fyrrum sam-
nemendur
mína. Suma
hafði ég ekki
hitt frá útskrift-
inni sem var árið
1992. Til að setja í
samhengi hversu
langt er síðan þá
fæddist vinsæl-
asta poppstjarna
Íslands, Ásgeir
Trausti, það ár.
Þessir gömlu
vinir og kunn-
ingjar voru hins
vegar öll orðin
svona í meira lagi
þroskuð. Orðin
kennarar, skrif-
stofufólk, verslunarmenn og tölvufræðing-
ar. Allt störf sem fólk gengur til þegar það
verður stórt. Reyndar er einn slökkviliðs-
maður, en það er önnur saga.
Í upphaflega kurteisishjalinu var farið
yfir listann: hversu mörg börn hver ætti
og hversu gömul. Hvar híbýlin séu og
allt þetta helsta. Hlutir sem venjulegt
þroskað fólk gerir þegar það hittist eftir
margra ára aðskilnað. Ég var hins vegar
í losti. Hvernig gat fólk sem var með mér
í grunnskóla verið svona þróað. Sumir
áttu meira að segja börn sem voru búin
með þetta fyrsta stig skólakerfisins.
- Jafnvel langt komin með framhalds-
námið líka. Þar sem ekki var samfélags-
lega ásættanlegt að leggjast í fóstur-
stellinguna úti í horni og sjúga á sér
þumalinn lét ég meintan þroska sam-
nemenda minna ekki mikið á mig fá.
Kinkaði kolli á réttum stöðum milli þess
sem ég barðist við þessa sömu fyrrum
grunnskólanema úr Kópavogi um að
stjórna tónlistinni í salnum.
Eftir sem Bon Jovi og Guns ‘n’ Roses
lögunum fjölgaði og málbeinið liðkaðist
með hjálp áfengra drykkja kom nátt-
úrlega á daginn að ekkert hafði í raun
breyst. Ekkert okkar var deginum þrosk-
aðra en þennan vordag sem við héldum
út af skólalóðinni. Jafnvel þveröfugt því
á þeim árum reyndu kannski nokkrir að
sýnast fullorðnari en efni stóðu til. En
þegar endurfundirnir stóðu hæst var
sem ekkert hefði breyst.
Fyrir mér, í það minnsta, hefur tíminn
staðið kyrr. Kennslukonurnar og versl-
unarmennirnir sem voru þarna með mér
í salnum voru bara stelpurnar og strák-
arnir í hverfinu. Fólk sem ég þekkti frá
fyrsta deginum í 6 ára bekk fram að því
þegar hópurinn tvístraðist á leið sinni
upp menntaveginn. Þessi vitneskja róaði
aldurskomplexana mína aðeins og þegar
ég lagði hausinn á koddann fannst mér
þetta jafn vel verða bara allt í lagi.
Daginn eftir var mér þó kirfilega kippt
niður úr draumalandinu. Því ég vaknaði
með þá stærstu timburmenn sem ég
man eftir lengi og ekki eru þeir merki
um eilífa æsku.
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
36 viðhorf Helgin 21.-23. mars 2014