Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 38
38 ferðalög Helgin 21.-23. mars 2014
Ferðir AukAkostnAður við skipulAgningu sumArFrísins
www.odalsostar.is
TINDUR
OSTUR ÚR SKAGAFIRÐINUM
Þessi bragðmikli meðlimur Óðalsfjölskyldunnar
er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir
fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem
fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu
einkennandi þétta bragði hefur verið náð.
Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir
við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér.
Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur
hann fátt yfirgnæfa sig.
Aukagjöld sumarsins
Sautján flugfélög sjá um að
ferja farþega frá Keflavík
til útlanda í sumar. Mörg
þeirra rukka sérstaklega fyrir
farangur, frátekin sæti og
kreditkortagreiðslur. Stundum
er því ómögulegt að bóka það
fargjald sem er auglýst.
Flugfélag Töskugj. (1 taska) Sætisval Kortaþóknun Bókunargj.
Icelandair Innifalið Innifalið Engin Ekkert
Wow Air 3495 kr. 595 til 1995 kr. Engin 995 kr.
Air Greenland Innifalið Innifalið 1,5% Ekkert
Airberlin Innifalið 1870 kr. 1480 kr. Ekkert
Atlantic Airways Innifalið Innifalið Engin. Ekkert
Austrian Holidays Innifalið 1560 til 3120 kr. Engin Ekkert
Delta Innifalið Innifalið Engin Ekkert
Easy Jet 3100 til 3900 kr. 620 til 3340 kr. 2,5% Ekkert
FlyNiki Innifalið. 1870 kr. 1480 kr. Ekkert
German Wings 1950 kr. 1560 til 2810 kr. 1540 kr. Ekkert
Lufthansa Innifalið Innifalið Engin Ekkert
Norwegian 1880 kr. 1880 kr. 750 kr Ekkert
Primera Air Innifalið 1000 til 2500 kr. Engin Ekkert
SAS Innifalið Innifalið Engin Ekkert
Thomas Cook Innifalið 1560 kr. 1560 kr. 2730 kr.
Transavia 3120 kr. 1170 til 2340 kr. 780 kr. Ekkert
Vueling 3510 kr. 780 til 2180 kr. 1950 kr. 780 kr.
Gjöld sem eru ekki innifalin í fargjaldinu
Gjöld erlendu flugfélaganna eru reiknuð út frá gengi 17. mars
og námunduð að heilum tug.
s tórar ferðatöskur eru þyrnir í augum forsvarsmanna Ryana-ir, stærsta lággjaldaflugfélags
Evrópu. Þeir ætla því að hækka tösku-
gjaldið þangað til að aðeins fimmti
hver farþegi tímir að borga undir
meira en handfarangur. Afstaða stjór-
nenda flugfélaganna sem halda uppi
Íslandsflugi er aðeins mildari og oftar
en ekki er ein taska innifalin í fargjald-
inu. Sum rukka hins vegar rúmar þrjú
þúsund fyrir eina tösku, aðra leiðina.
Það munar um minna fyrir vísitölufjöl-
skyldu sem er á leið í langt sumarfrí.
Dýrt að borga
Töskugjaldið er ekki það eina sem
þarf að taka með í reikninginn. Það
kostar einnig að tryggja ferðafélög-
unum sæti hlið við hlið og þar sem
Í sumum tilvikum er ómögulegt að bóka þau fargjöld sem
flugfélögin auglýsa eða birtast á heimasíðum þeirra því það
bætast oft við alls kyns aukagjöld, t.d. kreditkortaþóknun.
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?
Dagskráratriði óskast
Hitt Húsið Sími: 411 5500 17juni@hitthusid.is www.17juni.is
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun í
Reykjavík. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á
sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.
Hægt er að sækja um flutning atriða, uppákomur og viðburði á vefnum
www.17juni.is en umsóknum má einnig skila í Hitt Húsið,
Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík á eyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 9. maí.
Upplýsingar í síma 411 5502 eða á 17juni@reykjavik.is
17. júní í Reykjavík