Fréttatíminn - 21.03.2014, Page 42
GOLD PLATED
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION
XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD
AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS
GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM
Þ að er ennþá vetur og skítviðrið hér sunnan heiða sannar það. Svo ekki sé minnst á snjóþungann
þegar yfir heiðarnar kemur nánast í allar
áttir frá höfuðstaðnum. Það eru þó ekki
allir sem kvarta yfir snjóþyngslum enda
nú gósentíð fyrir skíðafólk og alla þá
sem unun hafa af vetraríþróttum.
Allir sem vettlingi geta valdið flykkj-
ast nú í fjallið sem aldrei fyrr og þeir
hörðustu nota ekki lyftuna. Fjallaskíði
hafa verið að ryðja sér til rúms hér á
landi um nokkurt skeið. Iðkendur notast
við eigið afl til þess að ganga upp fjöll
og hlíðar. Sérstök skinn eru fest undir
skíðin endilöng til þess að fólk renni
ekki aftur á bak niður brekkuna. Skíðin
eru líka mun breiðari en hefðbundin
skíði sem gera aftur kleift að ganga upp
merkilega brattar hlíðar og í djúpum
snjó. Bindingarnar eru lausar í hælinn á
leiðinni upp og svo festar við skíðið aftur
þegar kemur að niðurleiðinni. Eins og á
venjulegum svígskíðum.
Fjallaskíðamennskunni eru því engin
takmörk sett nema sem nemur hugrekki
og þreki þess sem ætlar sér að klífa
fjöll að vetralagi. Takast á við möguleg
snjóflóð og renna svo niður snarbratta
hlíðina í leit að hinni fullkomnu ferð.
Bolvíkingurinn Hávarður
Olgeirsson skíðar niður
Veðrarárfjall í Önundarfirði.
Mynd/Rúnar KarlssonFífldirfska á fjöllum
Fjallaskíðamennska hefur rutt sér mjög
til rúms á undanförnum árum hér á
landi. Ástæðurnar geta verið margar,
meðal annars að skíðafólk hefur ekki
notið tryggra snjóalaga víða um land
síðustu ár og vill því í staðinn geta
skíðað óháð lyftumannvirkjum. Eins
spilar inn í að þetta er tíska og hver vill
ekki tolla í tískunni?
Helsti munurinn á hefðbundnum
svigskíðum og fjallaskíðabúnaði, er að
hægt er að losa hælinn á bindingunni til
að auðvelda uppgöngu. Sett eru sjálf-
límandi skinn undir skíðin sem tryggja
að skíðamaðurinn renni ekki afturábak.
Síðan þegar fjallið er sigrað, er hælnum
læst niður og hægt að renna sér á hefð-
bundin hátt.
Það er óhætt að segja að það hafi orðið
sprenging í komu erlends fjallaskíða-
fólks til landsins á undanförnum árum
og nú er landinn að fylgja í kjölfarið. Eins
og svo oft áður, þá eru fáir spámenn í
eigin föðurlandi.
Vinsælustu svæðin til að stunda þessa
skemmtilegu íþrótt eru Tröllaskaginn og
norðanverðir Vestfirðir auk fjalllendisins
í kringum höfuðborgina þegar snjórinn
lætur sjá sig. Við hjá Borea Adventures
höfum síðan 2006 boðið upp á sex daga
skíðaferðir í Jökulfirði á Hornströndum
þar sem gist er um borð í seglskútunni
Auroru og erum að bæta við fleiri
tegundum fjallaskíðaferða.
Það gilda aðeins önnur lögmál þegar
skíðað er utanbrautar og fjarri manna-
byggðum og því er nauðsynlegt að afla
sér þekkingar á snjóflóðum og lágmarks
þekkingar í fjallamennsku.
Maður þarf ekki að vera nein fjallageit
til að geta haft gaman af fjallaskíða-
ferðum, en nauðsynlegt er að kunna skil
á helstu öryggisþáttum og vera alltaf
með snjóflóðaýli á sér og skóflu og stöng
í bakpokanum.
Rúnar Karlsson, einn eigenda Borea
Adventures á Ísafirði.
Fjallaskíði eru breiðari
en venjuleg og kosta frá
57.995 kr.*
Lögmál fjallaskíðamennskunnar
Höfundur klífur hlíðina með búnaðinn
á bakinu.
Fjallaskíðaskór eru grófari
en venjulegir og kosta frá
79.995 kr.*
Hægt er að hafa hælinn lausan í
fjallaskíðabindingum sem kosta frá
26.995 kr.*
Það er nauðsynlegt að setja skinn undir skíðin
til að renna ekki aftur á bak þegar gengið er
upp fjöll. Kosta frá 33.995 kr.*
*Öll verð eru fengin frá
fjallakofinn.is og tengjast
ekki myndunum beint.
42 frítíminn Helgin 21.-23. mars 2014