Fréttatíminn - 21.03.2014, Side 48
Calvin Klein með fyrirlestur
48 hönnun Helgin 21.-23. mars 2014
Hönnun Embla Vigfúsdóttir Er Vöru- og lEikjaHönnuður
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni
sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar
um framlag í vísindastarfi er styrki stoðir mannlífs á Íslandi.
Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna
Vísinda- og tækniráðs 2014. Verðlaunin eru tvær milljónir króna.
Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða.
Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsókna-
stofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu
til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar.
Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu. Hvatningarverðlaunin
verða afhent á Rannsóknaþingi Rannís.
Við val á verðlaunahafa er tekið tillit til námsferils viðkomandi
vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að
loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og alþjóðasamstarfs, svo og annarra
vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er
litið til brautryðjendastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags
á vinnustað og miðlun þekkingar til íslensks samfélags.
Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 15. apríl 2014.
Tilnefningum ásamt ítarlegum upplýsingum um feril tilnefndra
skal skilað með tölvupósti til Rannís á netfangið rannis@rannis.is
Nánar á www.rannis.is
Hvatningarverðlaun
Vísinda- og tækniráðs
Tilnefningar óskast!
Með gráðu í listrænni leikjahönnun
Hugmynda-
fræðilegi veit-
ingastaðurinn
„Pantið áhrifin“
verður settur upp
á HönnunarMars
en þar pantar fólk
rétti eftir áhrifum
þeirra á líkamann.
Embla Vigfús-
dóttir er annar
hönnuðurinn
á bak við við-
burðinn en hún er
nýútkskrifuð sem
leikjahönnuður
frá Danmarks
Designskole. Hún
sá um sjónræna
útfærslu á spili
fyrir UNESCO sem
verður notað
til kennsku í
grunnskólum
þar ytra, og
bindir vonir
við að koma
hand-
klæða-
hemp-
unni
Móra á markað.
Þ etta verður allt öðruvísi upplifun en að fara á hefð-bundinn veitingastað. Gestir vita ekki hvað er í réttunum
heldur panta forrétt sem er til dæmis
góður fyrir húðina, aðalrétt fyrir
heilann og eftirrétt fyrir augun,“ segir
Embla Vigfúsdóttir, önnur tveggja
hönnuða sem standa á bak við „Pantið
áhrifin“ sem er hugmyndafræðilegur
veitingastaður þar sem máltíð er valin
eftir áhrifum hennar á líkamann. Veit-
ingastaðurinn Satt fer í nýjan búning
á Hönnunarmars og dagana 25. til 30.
mars verður viðburðurinn „Pantið
áhrifin“ þar í fyrirrúmi.
Hugmyndin spratt upp í áfanga í
Listaháskóla Íslands á sínum tíma og
fékk verkefnið Nýsköpunarverðlaun
forseta Íslands árið 2011. Fram að
þessu hefur veitingastaðurinn hins
vegar aðeins verið hugmynd sem nú
verður að veruleika, og undirbúningur
stendur sem hæst. „Við erum
að vinna með fullt af fólki,
næringarfræðingum,
prentsmiðum og auð-
vitað matreiðslumönn-
unum á Satt. Verk-
efnið er því unnið í
mikilli þverfaglegri
samvinnu“ segir
Embla og tekur fram
að þó fólk viti almennt
ekki hvað sé í rétt-
unum geti fólk með
ofnæmi vitanlega fengið
undanþágu. „Líkaminn
okkar er vél sem við þurfum að sýna
umhyggju og allt sem við setjum ofan
í hann hefur áhrif á hvernig hann starf-
ar, en öll grafík staðarins er unnin út
frá þessari hugmynd“ segir hún.
Embla útskrifaðist sem vöruhönn-
uður úr Listaháskóla Íslands árið 2010
og flutti síðan til Danmerkur þar sem
hún býr enn og útskrifaðist í ársbyrjun
frá Danmarks Designskole í listrænni
leikjahönnun. „Útskriftarverkefnið
mitt var origami borðspil, innblásið af
gíröffum og þróunarkenningu Darw-
ins. Í spilinu er hálsinn á gíröffum
hækkaður og lækkaður með origami-
broti þannig að þeir verði í sömu hæð
og trén og geti borðað af þeim. Sá sem
getur best aðlagað sig að umhverfinu
vinnur. Þetta er spil sem vinnur með
snertiskynið,“ segir Embla sem stefnir
á að hanna fleiri spil í framtíðinni
en á námsárunum sá hún um sjón-
ræna útfærslu á spili fyrir UNESCO,
WonderWars, sem snýst um að vernda
heimsminjar. „Það var mjög skemmti-
legt að vinna það og gaman að vera val-
in í þetta verkefni. Ég var bara í kúrsi í
skólanum og þangað kom leikjahönn-
uður sem skoðaði það sem við höfðum
gert og hann hafði svo síðar samband
og spurði hvort ég vildi taka þetta að
mér,“ segir hún. WonderWars-spilið
fer í framleiðslu á næstunni og verður
notað til að kenna grunnskólanemum í
Danmörku um verndum heimsminja.
Þegar eru tvær afurðir Emblu
fáanlegar í verslunum, barnabókin
Loðmar sem hún vann ásamt Auði Ösp
Guðmundsdóttur og kom út á degi
íslenskrar tungu árið 2010, og sjálf-
vökvandi pottur til að rækta lífrænar
kryddjurtir - GrowMe - sem Embla
hannaði ásamt öðrum nemendum í
Listaháskólanum og Háskóla Reykja-
víkur og er handgerður af fötluðum á
hæfingastöðinni Bjarkarási.
Eitt af því sem Embla hefur hannað
en er ekki komið á markað er hand-
klæðahempan Móri en draumur
Emblu er að hann fari í framleiðslu.
„Mig langar mikið að fara lengra með
Móra, sækja um styrki og jafnvel fara
á KickStarter eða KarolinaFund og
reyna að fjármagna verkefnið. Ég
fékk hugmyndina að honum á fyrsta
ári náminu þegar við vorum að vinna
með baðmenningu Íslands. Hann
er með hettu og vettlingum og mér
fannst hann tilvalinn til að umvefja sig
með þegar maður stígur upp úr heitri
náttúrulaug eða baði. Hugmyndin er
að maður líti út eins og draugur úr
fortíðinni þegar það klæðist honum í
gufunni við laugarnar og þess vegna
heitir hann Móri, eins og gömlu draug-
arnir. Það er meira að segja hægt að
skipta um föt undir honum. Hann væri
líka frábær þegar þú kemur út sturtu
heima og getur kúrt í handklæðinu.
Vonandi get ég látið framleiða hann,“
segir Embla.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Opinbert sælgæti
Hönnunarmars
Á Hönnunarmars verður í
þriðja skiptið á boðstólum
HönnunarMarsipan, opinbert
sælgæti hátíðarinnar. Lakkrís-
konfektkubbarnir eru stórir og
litríkir nammikubbar hannaðir
af Örnu Rut Þorleifsdóttur og
Rán Flygenring, framleiddir í
samstarfi við sælgætisgerðina
Sambó. Tíu prósent af andvirði
hvers selds kubbs renna til
styrktar Krabbameinsfélaginu.
HönnunarMarsipanið verður
fáanlegt frá og með vikunni fyrir
HönnunarMars, bæði í rafrænni
sölu á kaupstadur.is og að auki
í Spark galleríi við Klapparstíg, í
Hrím og Vínberinu á Laugavegi
auk Kraums í Aðalstræti,
Epal í Hörpunni og Mýrinni í
Kringlunni. -eh
HönnunarMars fer fram
í sjötta sinn dagana 27.
- 30. mars 2014. Hönn-
unarMarsinn spannar
vítt svið, allt frá helstu
hönnuðum þjóðarinnar
sem sýna hvað í þeim býr,
til nýútskrifaðra hönnuða
sem eru stíga sín fyrstu
skref. Hönnuðirnir
Friðrik Steinn Friðriksson
og Laufey Jónsdóttir
báru sigur úr býtum í
samkeppni um einkenni
HönnunarMars 2014.
Sigurtillagan er inn-
blásin af „thaumatrope”
vinsælu leikfangi frá
Viktoríutímanum og retro
raftækjum.
Líkt og undanfarin
ár markar fyrirlestra-
dagurinn DesignTalks
upphaf hátíðarinnar en
þar flytur erindi einvala
lið alþjóðlegra hönnuða
og arkitekta, á borð við
Calvin Klein og Robert
Wong hjá Google. -eh
Einkenni HönnunarMars 2014 er innblásið af vinsælu
leikfangi frá Viktoríutímanum og retro raftækjum.
1. Embla vonast til að koma handklæðahempunni Móra í framleiðslu en Móri hentar
jafnt þegar stigið er upp úr náttúrulaugum og þegar komið er úr baði heima. Ljósmynd/
Cole Roberts
2. Pantið áhrifin gengur út á hvaða áhrif maturinn hefur á líkamann. Fólk pantar þá
ekki ákveðinn mat heldur áhrif hans, til dæmis aðalrétt sem er góður fyrir heilastarf-
semina.
3. Embla sá um útlitshönnum á spilinu WonderWars fyrir UNESCO sem verður notað til
að kenna dönskum grunnskólabörnum um verndun heimsminja. 1 2 3
Embla Vigfúsdóttir er annar hönnuðurinn á bak við hugmyndafræðilega veitingastaðinn
„Pantið áhrifin“ sem settur verður upp á Satt á HönnunarMars. Ljósmynd/Hari