Fréttatíminn - 21.03.2014, Side 50
Helgin 21.-23. mars 201450 tíska
É g byrjaði snemma að nota fatn-að sem tjáningarform og það hefur líklega leitt mig þangað
sem ég er í dag,“ segir Sigga Maija
sem leggur mikla áherslu á textíl,
liti og munstur í sinni hönnun. Hún
sækir innblástur í hversdagsleikann
og fólkið sitt en nýja línan hennar er
innblásin af súrrealisma. „Ég hef verið
að skoða mörkin á því sem er raun-
verulegt og óraunverulegt í samtíma
okkar og hvernig þau mörk eru sífelt
að verða óljósari. Þetta er viðfangsefni
súrrealismans og ég er mjög innblásin
af umhverfinu eins og það var í París
árið 1920, einmitt þegar súrrealistarn-
ir eru að móta sína hugmyndafræði.
Ég fæst við þetta undir formerkjum
nútíma konunnar og hennar þarfa,“
segir Sigga Maija.
Framleiðsla varanna er henni
líka hugleikin. „Það stendur ým-
islegt til boða og ég er að velja
það sem hugnast mér best. Ég vil
starfa með framleiðendum sem
hafa samfélagslega ábyrgð að
leiðarljósi. Þetta er vandasamt ferli
og krefst mikillar rannskóknar og
eftirfylgni.“
Sigga Maija segir RFF vera eina
vettvanginn fyrir íslenska fatahönn-
uði til að koma verkum sínum vel
á framfæri. „Þetta getur ekki leitt
nema gott af sér. Þetta er vaxandi
iðnaður og því mjög spennandi tímar
framundan.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Reykjavík Fashion Festival
Horfir til súrrealistanna
Sigga Maija útskrifaðist í fata-
hönnun frá Listaháskólanum
eftir að hafa lært til klæð-
skera. Hún ber djúpstæða
virðingu fyrir verkkunnáttu
og fagmennsku.
Sigga Maija sækir í brunn súrrealistanna í nýrri línu sem er hönnuð með þarfir nútímakonunnar í huga. Ljósmynd/Hari
Línan innblásin af
þýskum vinnufatnaði
Reykjavík Fashion Festival
M agnea segist fá innblástur frá ólíkleg-ustu stöðum. „Ég er í rauninni alltaf með augun opin fyrir innblæstri. Síð-
asta lína var til dæmis innblásin af bandarískum
körfuboltamönnum og egypskum múmíum en
ég hafði fundið gamlan kassa frá því ég var lítil
þar sem myndir af þessum ólíku hlutum leyndust
og svo blandaði ég saman smáatriðum úr báðum
áttum. Línan sem ég sýni á RFF í næstu viku
er hinsvegar innblásin af byggingarsvæðum og
vinnufatnaði en sú hugmynd kviknaði þegar ég
heimsótti Berlín í haust.“
Magnea framleiðir fötin á Íslandi og segir það
hafa gengið vel. „Það er ekki sama úrvalið hér og
annars staðar en ég hef tekið því sem áskorun og
notað hugmyndaflugið til að leysa vandamálin.“
Magnea segir RFF vera flott tækifæri fyrir
hönnuði og íslenska fatahönnun og nauðsynlegan
vettvang til að efla iðnaðinn og vekja athygli á
tískusenunni hér. „Íslensk fatahönnun er ung og
ennþá í mótun og er þess vegna mjög fersk og
spennandi en það gefur henni sérstöðu og gerir
hana eftirsóknarverða. RFF býr til glæsilegan
ramma utan um okkur hönnuðina en við höfum
öll mjög ólíkan stíl svo að gestir fá að sjá alla
flóruna á einum degi. Þetta er fyrsta skiptið sem
ég tek þátt en undirbúningurinn hefur verið mjög
skemmtilegur. Það eru ótrúlega margir hlutir
sem þarf að huga að svo að allt smelli saman í
lokin en ásamt frábæru starfsfólki RFF er ég með
gott fólk sem vinnur að þessu með mér.“
Magnea Einarsdóttir fatahönnuður
útskrifaðist frá Central Saint Martins í
London þar sem hún lærði fatahönnun
með áherslu á prjónavöru.
Magnea Einarsdóttir fatahönnuður selur fötin sín í versluninni
JÖR við Laugarveg. Þá línu segir hún vera klæðilega útgáfu af
útskriftarverki sínu frá London. Mynd/Hari
Magneu finnst
gaman að
blanda saman
ólíkum efnum
en fötin eru úr
ull og gúmmíi.
Sölustaðir:
Lyfja, Apótekið, Heilsuhúsin, Lifandi markaður,
Heilsutorg Blómavals, Heimkaup.is, o.fl. verslanir
ÁN AUKAEFNA
NÁTTÚRULEGT
B R Ú N K U K R E M
Smáralind S: 511 2020
Leðurjakki
39.990 kr.
Taska
9.490 kr.
WE LOVE SHOES
ibuxin rapid
400 mg hraðvirkt ibuprofen
30 töflur
20% afsláttur
til 14. mars