Fréttatíminn - 21.03.2014, Side 60
Mynd vikunnar er
Gravity með stórstjörn-
unum Söndru Bullock
og George Clooney, en
hún er nú komin inn í
SkjáBíó. Gravity sló í gegn
á nýafstaðinni Óskars-
verðlaunahátíð og sópaði
til sín sjö verðlaunum.
Leikstjóri myndar-
innar, Alfonso Cuarón, krækti sér
í verðlaun fyrir bæði leikstjórn og
klippingu en auk þess
hlaut myndin meðal
annars verðlaun fyrir
sjónrænar brellur. Í tilefni
þessa stendur Þór Bæring
hjá K100 fyrir keppni sem
lýkur í dag, föstudag, þar
sem hægt er að næla sér
í skemmtilega vinninga
tengda kvikmyndinni,
ásamt aðalvinningi sem hljóðar
upp á fimm frímyndir í SkjáBíó.
Stjörnufréttir eru í boði SkjáSeinS
Matarveisla í apríl
S kjárEinn sýnir vandaða þætti um hina stórskemmtilegu Food and fun-matarhátíð þar sem herdeild erlendra matreiðslumeistara gerði innrás í íslenska veitingahúsaflóru. Hátíðin var haldin í lok febrúar og meðan á henni stóð tók fjöldi veitingahúsa í Reykjavík á móti erlendum gestakokkum í hæsta gæðaflokki sem sáu um fjögurra rétta matseðla í tæpa viku. Alþjóðleg dómnefnd stórkokka
flakkaði svo á milli veitingastaða, bragðaði á kræsingunum og dæmdi alla réttina af djúpri þekkingu þar
til að eftir stóð einn uppi sem sigurvegari. Eðalkokkurinn og matgæðingurinn Siggi Hall er áhorfendum
SkjásEins að góðu kunnur en hann tók þátt í dómarastarfinu á hátíðinni. Við fylgjum Sigga eftir þar sem
hann leiðir áhorfendur SkjásEins gegnum herlegheitin í tveimur þáttum sem sýndir verða sunnudaginn 9.
apríl klukkan 19.55 og mánudaginn 10. apríl klukkan 20.00.
Keppnisskapið hefur sprungið út hjá þeim
þátttakendum sem eftir eru í The Biggest
Loser Ísland og er óhætt að segja að kepp-
endur séu farnir að sjá glitta í sigurinn. Í
síðustu viku var Þór Viðar sendur heim og
núna eru aðeins fjórir keppendur eftir. Þau
Siggi, Jóhanna, Hrönn og Anna Lísa berjast
um þrjú laus sæti í tvöföldum lokaþætti
sem sýndur verður í beinni útsendingu frá
Ásbrú fimmtudagskvöldið 3. apríl.
Allir vinirnir farnir úr skóginum Funheit morðgáta
Gravity í SkjáBíó og leikur á K100
Ice Cream Girls er bresk
framhaldsþáttaröð í
þremur hlutum sem fer í
loftið á SkjáEinum í næstu
viku. Þættirnir fjalla um
tvær unglingsstelpur,
Serenu og Poppy, sem árið
1995 eru ásakaðar um að
myrða kennara sinn, Mar-
cus Hansley. Leiðir þeirra
skilja og lifa þær mjög
frábrugðnu lífi en 17 árum
síðar hittast Serena og
Poppy á ný og við fylgjumst
með því þegar þær rifja upp
hvað raunverulega gerðist,
hvor með sínum hætti.
Fyrsti þátturinn er á dag-
skrá miðvikudagskvöldið
26. mars klukkan 21.15.
Blindprufurnar eru að baki
í The Voice og nú er kominn
tími fyrir keppendur að stíga í
hringinn og berjast um pláss í
næstu umferð. Í bardagaum-
ferðunum þurfa þjálfararnir að
fækka keppendum sínum úr
tólf í sex með því að láta tvo og
tvo berjast um áframhaldandi
þátttöku. Sá sem tapar fer
þó ekki endilega heim, því
hinir þjálfararnir geta nappað
honum yfir í sitt lið. The Voice
er á dagskrá SkjásEins á
föstudögum klukkan 20.30.
Bardagaumferðir
hefjast í The Voice
HÁDEGISTILBOÐ
Miðstærð af bát
12” pizza 2 álegg
Aðeins 999-kr.
Aðeins 999-kr.
salat m/kjúkling / roastbeefLítill bátur eða
Aðeins 699-kr.
& gos/Kristall að eigin vali
Nýbýlavegi 32 S:577 577 3 supersub.is
ABC Barnahjálp
Síðumúla 29 • 108 Reykjavik
Sími 414 0990 • Bréfsími 414 0999
abc@abc.is • www.abc.is
Börn hjálpa börnum
Vinsamlegast takið vel á móti
börnunum.
Hin árlega söfnun ABC barnahjálpar
„Börn hjálpa börnum“ stendur yfir frá
21. mars til 13. apríl. Á því tímabili munu
grunnskólabörn ganga í hús með bauka og
safna fyrir byggingu heimavistar fyrir
stúlkur í Pakistan.
60 stjörnufréttir Helgin 21.-23. mars 2014