Fréttatíminn - 21.03.2014, Qupperneq 66
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opnunartímar
12:00-17:00 miðvikudaga til föstudaga
13:00-16:00 laugardaga
og eftir samkomulagi
Óli G.
Jóhannsson
– In Memoriam –
13. mars - 5. apríl 2014
Elly Vilhjálms er einn flytjenda á safnplötu með bestu lögum SG
hljómplatna.
TónlisT safnplaTa með 75 lögum
SG hljómplötur á toppnum á ný
Hálf öld er nú liðin frá því að
Svavar Gests hóf plötuútgáfu
undir merkjum SG-hljóm-
platna kom út. Af þessu
tilefni hefur Sena gefið út
veglegan safnpakka með 75
lögum sem Svavar gaf út.
SG gaf út plötur í tutt-
ugu ár, frá því í júní 1964 og
fram í árslok 1984. Í ævisögu
Svavars Gests, sem kom út
árið 1992, kom fram að á
þessum tíma hafi hann gefið
út um 2.400 lög. Útgáfutíðnin
samsvaraði því að hann hefði
gefið út eina plötu á mánuði
að meðaltali.
Svavar Gests lagði sig fram
um að gefa út góðar, áhuga-
verðar og vandaðar hljóm-
plötur og skilaði miklum
fjársjóði í hendur þjóðar-
innar. Það má merkja á því
að margar þeirra platna sem
hann gaf út undir merkjum
SG-hljómplatna njóta enn
mikilla vinsælda meðal
þjóðarinnar. Nýja safnplatan
hefur sömuleiðis fengið
góðar viðtökur. Hún tyllti sér
beint á topp Tónlistans þegar
hún kom út.
Á plötunni er að finna 75
vinsæl lög úr katalóg SG út-
gáfunnar, flutt af ástsælustu
söngfuglum og hljómsveit-
um þjóðarinnar á borð við
Fjórtán fóstbræður, Þorvald
Halldórsson, Helenu Eyjólfs-
dóttur, Savanna tríóið, Þrjú
á palli, Ómar Ragnarsson,
Lúdó sextett, Sextett Ólafs
Gauks og Svanhildi, Einar
Júlíusson, Upplyftingu, Hauk
Morthens, Elly og Vilhjálm
Vilhjálms, Ragnar Bjarnason,
Hljóma, Hörð Torfa og fleiri
og fleiri.
Kemur næst út 11. apríl
Sýning á myndverkum
eftir Karl Kvaran og hljóm-
tækjum sem meðal annars
voru í hans eigu verður
opnuð í Studio Stafni á
laugardag.
Karl Kvaran hafði mikinn
áhuga á tónlist og að geta
notið hennar í sem full-
komnustu hljómgæðum.
Með þessari sýningu er
gefinn kostur á að sjá og
heyra. Sýnd verða hljómtæki sem að áliti margra fagmanna hafa verið talin með þeim
betri í heimi á hverjum tíma. Elstu hljómtæki sýningar-
innar eru frá árinu 1954.
Áhrif tónlistar má lesa úr mörgum verka Karls
Kvaran, að því er fram kemur í fréttatilkynningu
vegna sýningarinnar. Hann aðgreindi þó vinnu frá
hlustun og vann ekki myndverk sín með hljómlist.
Að hans mati voru þetta tveir heimar.
Sýningin er í Studio Stafni, Ingólfsstræti 6, og
stendur til 30. mars. Hún er öllum opin endur-
gjaldslaust til skoðunar alla daga frá klukkan 14-17.
Á meðan á sýningunni stendur verður boðið upp
á sérstaka áheyrnartíma á tækjum frá klukkan 20-
21.30, alla virka daga. Tímapantanir eru í síma 552
4700 og aðgangseyrir er 2.500 krónur.
myndlisT sýning í sTudio safni
Tveir heimar Karls Kvaran
TónlisT elsTi sTarfandi kammerkór landsins fagnar ferTugsafmæli
Þriðja kynslóð
söngvara í Hljómeyki
s önghópurinn Hljómeyki fagnar fjörutíu ára afmæli sínu með veglegum tón-leikum í Norðurljósa-
sal Hörpu á sunnudag klukkan
17. Þann dag eru nákvæmlega
fjörutíu ár síðan hópurinn hélt
fyrstu tónleika sína í Norræna
húsinu. Hópurinn hefur starfað
nær óslitið síðan og nú syngur
þriðja kynslóð söngvara með
hópnum. Hljómeyki var í upphafi
fjölskyldukór og hefur haldist sem
slíkur þótt margir sem bæst hafa í
hópinn séu ekki skyldir stofnmeð-
limunum.
Á tónleikunum á sunnudag flyt-
ur sönghópurinn að nýju nokkur
þeirra verka sem hljómað hafa á
tónleikum Hljómeykis í gegnum
tíðina. Auk Hljómeykis koma fram
þau Hallveig Rúnarsdóttir söng-
kona, Stefán Jón Bernharðsson
hornleikari og Hrönn Þráins-
dóttir. Stjórnandi Hljómeykis er
Marta Guðrún Halldórsdóttir.
Sönghópurinn Hljómeyki var
stofnaður árið 1974. Hópurinn
starfaði fyrstu árin undir stjórn
Rutar L. Magnússon og flutti þá
aðallega veraldlega tónlist frá
ýmsum löndum. Árið 1986 var
tekin upp samvinna við Sumartón-
leika í Skálholti og hefur kórinn
síðan þá lagt megináherslu á flutn-
ing nýrrar íslenskrar tónlistar.
Hljómeyki hefur komið fram
víða, hérlendis og erlendis, sungið
með Sinfóníuhljómsveit Íslands,
á Myrkum músíkdögum, Kirkju-
listahátíð, á Sumartónleikum í
Skálholti, sungið með alls kyns
poppgrúppum og tekist á við fjöl-
breytt verkefni með sveitum og
listamönnum á borð við Todmo-
bile, Skálmöld, Dúndurfréttir,
Jóhann Jóhannsson og fleiri og
fleiri.
Tónleikarnir á sunnudag hefj-
ast klukkan 17 og miðaverð er frá
3.000 krónum.
Hljómeyki fagnar fertugsafmæli sínu í Hörpu um helgina.
66 menning Helgin 21.-23. mars 2014