Fréttatíminn - 21.03.2014, Síða 80
KYNNING
fermingar Helgin 21.-23. mars 20148
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
1
8
4
1
*Eitt framlag fyrir hvert fermingarbarn
Við bjóðum
góða þjónustu
Fermingargjöf
fyrir framtíðarfólk
Með honum geta foreldrar, ömmur, afar, frændur
og frænkur tryggt fermingarbarninu veglegan
sjóð sem losnar við 18 ára aldur, um það bil
þegar næstu stóru áfangar í lífinu blasa við.
Hægt er að stofna og leggja inn á
Framtíðarreikning í útibúum Íslandsbanka.
Framtíðarreikningur Íslandsbanka
er góð fermingargjöf
Þeir sem leggja fermingarpeningana
sína, 30.000 kr. eða meira, inn á
Framtíðarreikning Íslandsbanka geta
fengið 5.000 kr. í mótframlag inn á
Framtíðarreikninginn sinn.*
Leggðu fermingarpeningana inn
á Framtíðarreikning
Ljósir pastellitir og dökkbrún eyeliner-
lína fer alltaf vel við augun. Mikilvægt
er að gera línuna með augnskugga en
ekki blýanti. Ljósmynd/Silla Páls
Fyrir myndatökuna á fermingardaginn
er gott að hressa förðunina við með
léttu púðri og smá viðbót af glossi á
varirnar. Ljósmynd/Silla Páls
Létt dagförðun á
fermingardaginn
Fyrir ferminguna er gott að nota smá farða og bronze púður á
kinnarnar til að fá frísklegri blæ en varast að nota of dökka liti.
Gloss í fallegum bleikbrúnum- eða ferskjulitum klæða flestar
stúlkur og koma náttúrulega út á myndum. Kristín Stefánsdóttir hjá
NN-Makeup studio gefur góð ráð fyrir förðun á fermingardaginn.
Þ egar farðað er fyrir fermingar-daginn er lyk-
ilatriði að nota frekar
of lítið en of mikið svo
útkoman verði létt dag-
förðun,“ segir Kristín
Stefánsdóttir, förð-
unarmeistari hjá NN
Makeup studio. Sumir
unglingar eru með
erfiða húð og vilja hylja
bólur eða roða og segir
Kristín gott að setja
smá farða og bronze
púður á kinnarnar til að
fá frísklegan blæ.
Mildur augnskuggi
Kristín segir fallegt
að nota mildan augn-
skugga yfir allt augn-
lokið og létta umferð
af maskara og mikil-
vægt að passa vel upp
á að nota ekki of mikið
af honum. „Síðast er
léttur gloss settur á var-
irnar. Ég mæli með því að sleppa
varablýanti því hann getur orðið
of áberandi. Á fermingardaginn er
viðeigandi að förðunin sé mild en
ekki of áberandi.“
Flottir litir sem ganga alltaf við
augun eru ljósir pastellitir og dökk-
brún eyelinerlína og
leggur Kristín áherslu
á að hún sé gerð með
augnskugga en ekki
blýanti. „Gloss á varirnar
í fallega bleikbrúnum-
eða ferskjulitum klæða
flestar stúlkur og koma
mjög náttúrulega út á
myndum,“ segir hún.
Lítið frekar en mikið
Á fermingardaginn er
mikilvægt að nota ekki of
dökka liti og ekki svarta
blýanta. „Það er ekki gott
að nota blýant og dreifa
úr honum. Sömuleiðis
með maskarann, þá er
mikilvægt að nota ekki of
mikið því þá geta mynd-
ast klessur og förðunin
orðið ónáttúruleg. Sama
er að segja með sólar-
púðrið, ef of mikið af því
er notað, getur það orðið
gervilegt.“
Sé ætlunin að fara í
förðun hjá fagmanni á fermingar-
daginn er gott að panta tíma með
góðum fyrirvara. Kristín mælir
með því að förðuninni sé haldið við
með léttu púðri. Fyrir myndatök-
una er svo kjörið að bæta glossi á
varirnar.
Kristín Stefánsdóttir
hefur starfað við
förðun í yfir 30 ár. Í
fyrra sendi hún frá sér
bókina Förðun skref
fyrir skref þar sem
konum á öllum aldri
er kennt að farða sig á
einfaldan og skemmti-
legan hátt. Kristín
rekur verslunina
NN-Makeup studio í
Hlíðasmára 8 og er
hönnuður förðunar-
línunnar NN-Cosmetics
sem hefur verið á
markaðnum í 30 ár.
Náttúruleg förðun með benecos
Húðin er stærsta líffærið okkar og því mikilvægt að nota snyrtivörur án skaðlegra efna. Snyrti-
vörurnar frá benecos henta sérstaklega fyrir unga húð því þær eru lífrænt vottaðar og án allra
tilbúinna ilm,- litar- og rotvarnarefna. Förðunarlínan samanstendur af fjölda glæsilegra lita.
F æðan sem við neytum hefur áhrif á heils-una okkar og það sama er að segja um snyrtivörur. Húðin er stærsta líffærið og allt sem við setjum á hana getur farið út í
blóðrásina og haft áhrif á líkamsstarfsemina. „Með
því að nota lífræn efni styðjum við húðina í sinni
náttúrulegu virkni. Benecos eru frábærar lífrænar
snyrtivörur á verði sem ekki hefur áður sést á Ís-
landi,“ segir Elísabet Guðmundsdóttir, viðskipta-
stjóri snyrtivöru hjá Gengur vel.
Elísabet segir mikilvægt að þær ungu stúlkur
sem kjósa að farða sig, noti náttúrulegar snyrti-
vörur. Vörurnar frá benecos eru án allra tilbúinna
ilm-, litar,- og rotvarnarefna (parabena). Í bene-
cos vörunum er notast við náttúruleg hráefni sem
hafa rotvarnareiginleika og því er endingartími
þeirra jafngóður og annarra snyrtivara. „Í mörgum
snyrtivörum er að finna mikið af alls kyns aukaefn-
um sem geta verið varasöm og ættu í raun alls ekki
að vera í vörum sem við berum á húðina.“
Förðunarlínan frá benecos samanstendur af
fjölda glæsilegra lita í augnskuggum, varalitum,
augn- og varablýöntum, ásamt góðum möskurum,
púðri og farða, auk naglalakks í fallegum litum.
Vörurnar frá benecos eru á góðu verði og segir
Elísabet það á allra færi að kaupa þær. „Margar af
vörunum eru einnig vegan svo flestir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi.“
Snyrtivörurnar frá benecos fást í verslunum
Heilsuhússins, Lifandi markaði, Fjarðarkaup, hjá
Radísu í Hafnarfirði, Heilsuveri, Systrasamlaginu,
Garðsapóteki, Valgerði Sæmundsdóttur, Þórshöfn,
Snyrtistofunni Rán, Ólafsvík, Snyrtistofunni Öldu,
Egilsstöðum og hjá Tófa.is vefverslun. Nánari upp-
lýsingar má nálgast á síðunni www.gengurvel.is og
á Facebook-síðunni benecos – náttúruleg fegurð.
Vörur í náttúrulegri förðun
Kinnbein: benecos Powder
Blush: Toasted Toffee til að
skyggja kinnbein. Sassy Sal-
mon sett á „eplin“ í kinnunum.
Varir:
benecos
Natural
Lipgloss
Flamingo
Augu: benecos eyeshadow, so what?
dreift á augnlok og aðeins upp á
augnbeinið.
benecos Maximum Volume Mascara,
Smooth Brown á augnhárin.
Húð: benecos natural
concealer, light settur undir
augu.
benecos compact powder,
porcelain sett á allt andlitið.