Fréttatíminn - 21.03.2014, Side 88
KYNNING
fermingar Helgin 21.-23. mars 201416
KYNNING
Gjafir sem hlýja!
Fermingin er stór
þáttur í lífi flestra og
markar ákveðin kafla-
skil. Hefð er fyrir því
að ættingjar og vinir
heiðri fermingarbarn-
ið með eftirminni-
legum gjöfum. Helga
María Bragadóttir hjá
Lín Design segist taka
eftir auknum áhuga
á íslenskri hönnun og
vönduðum sængur-
fatnaði í fermingar-
gjöf, enda sé þar á
ferðinni gömul hefð.
Þ að er oft svolítil íhaldssemi í gjöfunum frá nán-ustu ættingjunum. Hér áður fyrr vildu ömmur gjarnan gefa vandaðar dúnsængur og góð
rúmföt og sauma út upphafsstafi fermingarbarnsins
í sængurverið. Þá var gert ráð fyrir því að sængurföt
myndu duga fram á fullorðins ár,“ segir Helga María
hjá Lín Design. „Í dag er þetta orðin tískuvara í mörg-
um tilvikum. Fólk skiptir þessu svo fljótt út enda eru
íslenskar konur ekki eins mikið að sýsla í höndunum
og hér áður fyrr.“ Helga María segir rúmfötin frá Lín
Design sérstaklega endingargóð og að íslensk hönnun
falli vel í kramið hjá unga fólkinu sem vilji hafa her-
bergin sín sem flottust. „Það hefur ákveðin breyting átt
sér stað í barna- og unglingsherbergjum. Það er verið
að hittast meira heima í tölvuleikjaspil og spjall og þá
eru rúmin oft undirlögð. Þá skiptir máli að vera með
töff rúmföt, þar sem rúmábreiður eru að detta út,“ segir
Helga María en hún segir rúmfötin frá Lín Design
sérstaklega hönnuð til þess að njóta sín ábreiðulaust í
rúmunum.
Bæði strákar og stelpur eru spennt fyrir smekk-
legum rúmfötum að sögn Helgu Maríu. „Strákarnir
eru oft hrifnir af hönnun með hreindýrum eða íslenska
ránfuglinum, svona dökkt og töff. Annars eru líka
friðar- og ástarmerkin vinsæl fermingargjöf. Það er
mjög skemmtilegt að hanna fyrir þennan hóp, það eru
svo sterkar kröfur í gangi. Náttúran og menningin er
það sem krakkarnir vilja í herbergin sín,“ segir Helga
María og telur umhverfisvitund vera að aukast hjá
ungu fólki í dag.
Fyrirtækið Lín Design var stofnað árið 2007 og hefur
eftispurn eftir íslenskri hönnun á rúmfatnaði aukist
jafnt og þétt síðan. Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu
á umhverfisvernd og endurnýtingu. „Fólk getur komið
og skilað rúmfötum og fengið 15% afslátt upp í ný. Rauði
Kross Íslands tekur á móti öllu líni hjá okkur og gefur
það áfram,“ segir Helga María. Hún segir viðhorfs-
breytingu hafa orðið á fermingargjöfum eftir hrun.
„Það skiptir svo miklu máli að gefa hlýjar og endingar-
góðar gjafir.“
Spennandi gjafir og borðbúnaður
Húsgögn og skrautmunir endurspegla bæði smekk og áhugamál unglingsins, sem verða sífellt
mikilvægari á mótunarárunum. Fermingin markar tímamót þar sem ungt fólk gerir oft auknar
kröfur á herbergin sín. Í Tekk Company má finna úrval af vönduðum húsgögnum og fylgihlutum
frá Habitat, House Doctor og Umbra ásamt fleirum. Í versluninni í Kauptúni má einnig finna
fallegan borðbúnað og góð ráð fyrir sjálfa fermingarveisluna.
V örurnar frá Habitat hafa verið vinsælar fermingargjafir í mörg ár. Við erum með skrifborð, lampa og rúmföt sem dæmi,“
segir Elín María Sigurjónsdóttir hjá Tekk Kompaní.
„Nýjung hjá Habitat í ár eru hátalarar til að tengja
við iPhone, sem er mjög sniðug fermingargjöf.
Línan er fallega litrík í ár; mintugrænt, kóralrautt,
gult og túrkísblátt. Í Habitat línunni eru líka glös og
stell sem henta fyrir sjálfa veisluna.“
Skartgripastandar og veggskraut frá Umbra
hafa verið vinsælar fermingargjafir að sögn Elínar
Maríu. „Þetta er kanadískt merki og þarna eru
flottir myndarammar og textar með heilræðum
sem hægt er að setja upp á vegg. Svo erum við
með danskt merki sem heitir House Doctor. Þar
er margt skemmtilegt fyrir veisluna. Kertastjakar,
vasar og aðrir skrautmunir. Mjög fallegar pappa-
kúlur sem eru hengdar upp eða látnar liggja á borði
sem skraut.“
Elín María segir starfsfólkið í versluninni tilbúið
að aðstoða viðskiptavini með góðum hugmyndum
fyrir bæði veisluhöld og gjafir. „Við eigum sjálf
börn á fermingaraldri og þekkjum þetta svo vel,“
segir Elín María og brosir. „Svo vinnur hún Katri
Raakel Tauriaien hjá okkur, hún er finnskur stílisti
sem var eitt sinn í innlit/útlit þáttunum. Við erum
alltaf að laga til í búðinni og stilla upp hugmyndum
fyrir fólk til að nýta sér sem innblástur.“
Hægt er að poppa upp fermingarveisluna með
skemmtilegu meðlæti og fylgihlutum að sögn
Elínar Maríu. „Við erum með allskyns gourmet mat
frá Nicholas Wahe. Sultur, súkkulaði, pasta, paté,
snakk og fleira sem hægt er að nota með. Það má
skapa ýmsa stemningu sem passar við smekk ferm-
ingarbarnsins og þær veitingar sem verða í boði.
Pastellitir eru áberandi núna.“
Tekk Company er staðsett í Kauptúni í Garða-
bænum á móti Ikea. „Við erum með allt undir einu
þaki í Kauptúninu og tökum vel á móti ykkur þar.
Við erum akkúrat núna að selja allt út í SIA línuni,
kerti servíettur og skrautmuni. Það verður allt úr
SIA á 30 - 40% afslætti þessa dagana,“ segir Elín
María.
Uppruni fermingar
Fermingin er eins konar ungmennavígsla
og sem slík er hún sennilega jafn gömul
mannlegu samfélagi. Félagshópar, fjöl-
skyldur og þjóðfélög aðgreina stöðu og
hlutverk einstaklinga á margvíslegan
hátt með siðum og venjum til þess að
tryggja félagslega reglu og samhæfða
verkaskiptingu.
Unglingavígslan tengist kynþroska-
tímabilinu og táknar það að einstaklingur-
inn er ekki lengur barn heldur ungmenni
sem mætir viðfangsefnum hinna full-
orðnu og öðlast bæði réttindi og skyldur.
Það er eins og innbyggt sé í samfélög
manna að þessi tímamót verði eftir-
minnileg. Alvaran sem fylgir vígslunum
undirstrikar félagslegt mikilvægi þeirra
en þeim fylgir einnig hátíð og samfagn-
aður sem fjölskyldan og samfélagið sem
slíkt á aðild að.
Upplýsingar af Vísindavef HÍ
Laugavegi 86 101 Reykjavík S. 511 2004 www.dunogdur.is
Glæsilegt
fermingartilboð
www.siggaogtimo.is
Verð kr 7.500,- stk
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
My style