Fréttatíminn - 21.03.2014, Page 90
Helgin 21.-23. mars 2014
Allt fyrir ferminguna
Verið velkomin
www.sveinsbakari.is
Skipholti, Hólagarði og Arnarbakka. Sími: 557 2600
15% afsláttur af öllum fermingarkökum
S mjörkremskökur skreyttar rósum eru afar vinsælar um þessar mundir enda dásamlega
fallegar og skemmtilegt að gera þær.
Kökurnar eru oftar en ekki gerðar
úr súkkulaðibotnum og sprautaðar
með hinu sígilda vanillusmjörkremi.
Fyrir fermingarveisluna getur verið
gaman að bregða út af vananum og
gera þessa dýrlegu vanilluköku með
hvítsúkkulaðikremi og Oreo kexi
á milli. Best er kakan þegar van-
illubotnarnir hafa verið frystir og
afþíddir áður en kremið er sett á.
Þannig verður hún rök og dúnmjúk.
Tilvalið er að baka botnana nokkrum
dögum eða vikum fyrir fermingar-
veisluna og eiga tilbúna í frysti fyrir
fermingardaginn.
Vanillukaka
• 420 gr hveiti
• 400 gr sykur
• 4 tsk. lyftiduft
• 3/4 tsk salt
• 170 gr brætt smjör
• 370 ml mjólk
• 3 tsk vanilludropar
• 3 stór egg
• 16 Oreo kexkökur
Blandið þurrefnum saman í skál
og hrærið mjólk saman við. Bætið
eggjum við, einu í einu. Bræðið
smjör og hrærið saman við ásamt
vanilludropum. Hellið deiginu í tvö
vel smurð 24 cm kökuform og bakið
við 170 °C í 30 til 35 mínútur. Kælið
botnana.
Hvítsúkkulaðikrem
• 450 gr mjúkt smjör
• 500 gr flórsykur
• fræ úr 1 vanillustöng
• 80 gr hvítt súkkulaði
Þeytið smjör og flórsykur saman.
Kjúfið vanillustöng í tvennt, skafið
fræin úr henni og hrærið saman við.
Bræðið hvítt súkkulaði, kælið og
blandið saman við kremið.
Athugið að gera þarf eina og hálfa
kremuppskrift til að skreyta kökuna
með rósum.
Setjið annan kökubotninn á fall-
egan disk og smyrjið kremi ofan
á. Myljið Oreo kex og sáldrið yfir
botninn með kreminu. Leggið hinn
botninn ofan á og þekið kökuna með
þunnu lagi af kremi.
Notið stút 1M eða 2D frá Wilton til
að gera rósir, byrjið á miðjunni í rós-
inni og sprautið svo í hringi í kring
um miðjuna.
Tinna Björg Friðþórsdóttir gefur
góðar hugmyndir að kræsing-
um í fermingarveisluna.
Vanillukaka með hvítu
súkkulaði og Oreo
Falleg hvít kaka í veisluborðið á
fermingardaginn.
NÝTT ÚTLIT
Tinna Björg er lög-
fræðinemi með
ástríðu fyrir matar-
gerð og er byrjuð
að skrifa sína fyrstu
matreiðslubók. Upp-
skriftirnar hennar á
lesa á síðunni tinna-
bjorg.com.