Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 91
Skinku- og aspasbrauðréttur
Þegar við systkinin vorum börn
gerði móðir okkar svo ofboðslega
góðan brauðrétt fyrir öll afmæli og
veislur, gamla og góða skinku- og
aspasbrauðréttinn. Til að spara tíma
á fermingardaginn má gera réttinn
daginn áður og baka svo í ofni rétt
áður en hann er borinn fram.
• 3 msk. smjör
• 4 msk hveiti
• 700 ml nýmjólk
• 1 askja sveppasmurostur
• 1 dós aspas
• 1 bréf skinka
• 2 til 3 tsk grænmetiskraftur
• 15 brauðsneiðar
• 250 gr rifinn ostur
Bræðið smjör í stórum potti, takið
hann af hellunni og hrærið hveiti
saman við með pískara - búið til
svokallaða smjörbollu. Hrærið smá
nýmjólk saman við smjörbolluna og
setjið pottinn aftur á helluna. Eftir
því sem jafningurinn þykknar, hrær-
ið þá mjólk smátt og smátt saman
við. Hveitið á það til að hlaupa í kekki
þegar mjólkinni er bætt við og því er
best að byrja á lítilli mjólk og hræra
kekkina út á meðan jafningurinn
er þykkur. Athugið að jafningurinn
brennur auðveldlega við svo mikil-
vægt er að hræra hann stanslaust.
Hellið soði úr aspasdósinni í jafn-
inginn, skerið aspas og skinku í
hæfilega stóra bita og blandið saman
við. Smakkið til með grænmetis-
krafti, byrjið á 1 tsk. því krafturinn
er misjafnlega saltur. Ég nota græn-
metiskraft frá Oscar í duftformi. Hit-
ið jafninginn að suðu og látið krauma
við vægan hita í nokkrar mínútur á
meðan brauðið er skorið.
Fjarlægið skorpu af brauðsneið-
um og skerið þær í teninga. Setjið
helming brauðteninganna í botninn
á eldföstu móti og ausið helmingi
jafningsins yfir. Dreifið afganginum
af brauðinu yfir jafninginn í mótinu
og hellið svo jafningi yfir. Sáldrið að
lokum rifnum osti yfir brauðréttinn
og bakið í ofni við 200° í 20 til 25
mínútur eða þar til osturinn verður
fallega brúnn og svolítið stökkur.
fermingarHelgin 21.-23. mars 2014 19
Réttinn má gera daginn áður og hita í
ofni áður en hann er borinn fram.
BROT AF HEIMINUM
Í FERMINGARGJÖF
Gjafabréf Icelandair gildir sem greiðsla upp í flugfar
til allra áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku.
Þú velur upphæðina.
+ Pantaðu fermingargjöfina á www.icelandair.is
Gjafabréf Icelandair gildir í tvö ár frá útgáfudegi. Vertu með okkur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
6
83
28
0
3/
14
Myntusúkkulaði og jarðarber eru himnesk
blanda og passa afar vel við púðursyk-
urmarengsinn. Ekki er úr vegi að skreyta
tertuna með myntulaufum og fallegum
berjum til að lífga upp á veisluborðið og
minna okkur á að vorið er handan við
hornið. Marengsbotnar geymast vel og því
er tilvalið að baka þá viku fyrir veisluna.
• 3 eggjahvítur
• 150 gr púðursykur
• 80 gr strásykur
• 4 bollar Rice Krispies
• 200 gr After Eight
• 500 ml rjómi
• 250 gr jarðarber
Þeytið eggjahvítur í skál þar til þær verða
stífar og ekki lengur froðukenndar. Bætið
púðursykri og strásykri við og þeytið
þar til blandan verður ljós og alveg stíf.
Blandið Rice Krispies varlega saman við.
Teiknið með blýanti hring á sitthvora
bökunarpappírsörkina. Gott er að nota
botninn úr 24 cm kökuformi til að teikna
eftir. Skiptið marengsblöndunni jafnt
á bökunarpappírsarkirnar og smyrjið
þannig að blandan fylli upp í teiknuðu
hringina. Bakið í ofni við 150 °C í 40
mínútur.
Takið frá 6 plötur af After Eight og leggið
til hliðar ásamt 25 ml af rjóma.
Þeytið 475 ml af rjóma. Skerið afganginn
af After Eight í smáa bita og blandið
saman við þeytta rjómann.
Setjið smá slettu af rjóma á kökudisk svo
kakan festist við hann og renni ekki til.
Hvolfið öðrum marengsbotninum á diskinn
og smyrjið helmingi rjómans ofan á. Skerið
jarðarberin í smáa bita og dreifið rúmlega
helmingnum yfir tertuna. Leggið hinn
botninn ofan á og smyrjið með restinni af
rjómanum.
Bræðið 6 After Eight plötur í potti við
vægan hita með 25 ml af rjóma. Kælið
þar til blandan verður volg og hellið yfir
tertuna í mjórri bunu með skeið þannig
að kakan verði röndótt. Dreifið restinni af
jarðarberjunum yfir kökuna og skreytið
með myntulaufum.
Einnig er hægt að nota Pipp með myntu í
staðinn fyrir After Eight.
After Eight marengs