Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.05.2014, Síða 2

Fréttatíminn - 23.05.2014, Síða 2
Ekki mikil gleði meðal flugfreyja Reiðhjólin virðast vera að víkja fyrir reið- hjólunum hjá mörgum unglingum. Aka á rafmagns- vespu í íþróttatíma Gríðarleg aukning er á því að unglingar komi á rafmagnsvespu í skólann og nota vespuna jafnvel til að fara yfir í íþróttahúsið í íþróttatíma. Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir, formaður íþrótta- og heilsufræðifélags Íslands, segir að í sumum skólum virðist reiðhjólin vera að víkja fyrir vespunum og börnin fái því minni hreyfingu en áður. Hún reiknar með því að staðan verði rædd á endur- menntunardegi íþróttakennara í haust. Þ að hefur verið gríðarleg aukning á því að unglingar komi á vespum í skólann. Mér finnst þetta ekki jákvæð þróun,“ segir Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir, formaður Íþrótta- og heilsu- fræðifélags íslands, áður Íþróttakenn- arafélags Íslands. Víða við grunnskóla og íþróttahús á skólatíma má sjá fjöldann allan af rafmagnsvespum og þannig er það líka við Hörðuvallaskóla í Kópavogi þar sem Guðrún Valgerður er íþróttakennari. „Þetta virðist hafa verið fermingargjöfin í ár. Það eru mjög margir krakkar hér í 8. bekk komnir á vespur,“ segir hún. Á undanförnum árum hefur færst í vöxt að foreldrar skutli börnum sínum í skól- ann í stað þess að þau gangi eða hjóli sem leiðir til þess að þau hreyfa sig minna. Nú er í flestum skólum á hverju ári sérstakt átak sem miðar að því að hvetja börn og unglinga til að ganga í skólann, og annað átak til að hvetja þau til að hjóla í skólann. „Reiðhjólin virðast vera að víkja fyrir vesp- unum hjá mörgum unglingum. Ég held að foreldrar geri sér ekki grein fyrir hvaða áhrif þetta hefur á börnin því þau þurfa á hreyfingu að halda,“ segir Guðrún Val- gerður sem telur að ef til vill hafi foreldrar í einhverjum tilvikum hugsað með sér að þeir spari sér tíma við skutl með því að gefa börnunum rafmagnsvespu. Hún segir göngu og aðra hreyfingu mikilvæga fyrir börn og unglinga, eins og alla og best væri ef allir gætu byrjað dag- inn á því að ganga í skólann því regluleg hreyfing veitir þeim meiri andlegan og líkamlegan styrk til að takast á við verk- efnin í skólanum. „Þannig koma þau hressari inn í daginn. Við íþróttakennarar höfum talað um þessa aukningu á vespum og velt því fyrir okkur hvort grípa þurfi til einhverra ráðstafana,“ segir hún en fjölmörg dæmi eru um að krakkarnir noti vespurnar ekki aðeins til að fara í og úr skóla heldur einnig til að fara á milli skóla- byggingar og íþróttahúss eða sundlauga sem oft er nánast næsta hús við. Ég hef kennt við marga skóla og alltaf er gefinn tími í stundaskránni til að komast á milli húsa svo þau hafa nægan tíma til að ganga á milli,“ segir hún. Rafmagnsvespurnar flokkast í um- ferðinni sem reiðhjól, á þær þarf ekkert próf og það er ekkert aldurstakmark ef hámarkshraðinn er 25 km/klst en sam- kvæmt leiðbeinandi viðmiðum Samgöngu- stofu um vespurnar er ekki mælt með því að börn undir 13 ára aki þeim. Offita barna og unglinga er vaxandi vandamál á Íslandi sem og annars staðar og telur Guðrún Valgerður að rafmagnsvespurnar muni geta ýtt undir þann vanda frekar en hitt. „Ég reikna með því að við íþrótta- fræðingar tökum þetta mál upp á endur- menntunardeginum okkar í haust og skoðum hvort þörf sé á samstilltu átaki,“ segir hún. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Þessi mynd er tekin fyrir utan íþróttamiðstöðina Ásgarð í Garðabæ á skólatíma í vikunni en víða við grunnskóla og íþróttahús má sjá fjölda vespa. Ljósmynd/Hari Fleiri hundar og kettir voru fluttir frá landinu á síðasta ári en voru fluttir inn. 167 hundar og 36 kett- ir, mest blendingshundar og heimiliskettir, voru fluttir til Íslands í fyrra en gefin voru út útflutnings- vottorð fyrir 184 hunda og 57 ketti. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Matís fyrir árið 2013. Ekki hafa fleiri hundar verið fluttir til landsins síðan 2008 en í fyrra komu 150 hundar til landsins. Auk þess var flutt inn sæði úr einum hundi. Að jafnaði eru um 30 kettir fluttir til landsins árlega en í fyrra voru þeir þó 4. Innfluttir hundar og kettir eru haldnir í sértækum einangrunar- stöðvum í 4 vikur þar sem tekin eru sýni til skimunar á snýkjudýrum bæði við komu og fyrir brottför. - eh  DýrahalD algengast að flytja inn blenDinga og heimilisketti Fleiri hundar og kettir fara en koma Kettir  Heimilisköttur  Main Coon  Russian Blue  Abbysinian  Bengal  Cornish Rex  Persneskur  Síams 25 4 2 1 1 1 1 1 Hundar  Blendingar  Labrador  Chihuahua  Dverg Schnauzer  Pug  Franskur bolabítur  Þýskur fjárhundur  Golden retriever  Enskur Cocker Spaniel  Stóri Dani 18 12 10 7 7 6 5 3 3 2 Samningar í kjaradeilum flugmanna hjá Ice- landair og félagsmanna í Sjúkraliðafélagi Íslands náðust í gær, fimmtudag. Kjaradeila Flugfreyju- félags Íslands stendur enn yfir en í gær fundaði félagið með Samtökum atvinnulífsins hjá Ríkis- sáttasemjara. Kjarasamningur sjúkraliða nær til félags- manna í Sjúkraliðafélagi Íslands og SFR sem vinna hjá SFV, Samtökum fyrirtækja í velferðar- þjónustu. Samningurinn felur í sér tæplega 8% launahækkun og bætur á réttindamálum sjúkraliða. Launahækk- unin felst annars vegar í 2,8% hækkun í samræmi við almennar launahækk- anir og 4,8% hækkun í samræmi við jafnlauna- átak ríkisstjórnarinnar á heilbrigðisstofnunum. Kristín Á. Guðmundsdótt- ir, formaður Sjúkraliða- félags Íslands, segir sátt ríkja um niðurstöðuna. Icelandair Group og Félag íslenskra atvinnu- flugmanna skrifuðu einnig undir samning í gær sem gildir til 30. september 2014. Samn- ingurinn, sem er í takt við aðra kjarasamninga sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði á árinu, er nú farinn í kynningu hjá flugmönn- um Icelandair og rafræna kosningu sem tekur sjö daga. Fram til loka samningstímans munu Icelandair Group og FÍA vinna sameiginlega að langtímasamningi. Flugfreyjur Icelandair hafa boðað til vinnu- stöðvunar þriðjudaginn 27. maí á milli klukkan 06 og 24 náist samningar ekki fyrir þann tíma. Þar að auki hafa þær boðað til vinnustöðvunar dagana 27. maí, 6. júní og 12. júní. Allsherjarverkfall flugfreyja hefst svo 19. júní náist samningar ekki fyrir þann tíma. Hljóðið í flugfreyjum er þungt. „Ég veit ekki nákvæmlega hver þróun mála hefur verið á fundinum en ég veit að hljóðið er ekki gott,“ segir Sigríður Ása Harðardóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, sem er stödd erlendis á flugráðstefnu. Hún segist ekki vera mjög bjartsýn á framhaldið. „Nei, það virðast vera sett lög á alla. Það virðist búið að taka réttinn af fólki til að láta semja fyrir sig. Það ríkir ekki mikil gleði meðal okkar eins og er.“ -hh Ákærð fyrir manndráp af gáleysi og brot á hjúkrunarlögum Landspítalinn og hjúkrunarfræðingur sem þar starfar eru ákærð fyrir manndráp af gáleysi, og hjúkrunarfræðingurinn enn- fremur ákærður fyrir brot á hjúkrunar- lögum. Þetta kemur fram í ákæruskjalinu sem hefur verið birt á vef ríkissaksóknara. Þar segir að á kvöldvakt haustið 2012 hafi hjúkrunarfræðingnum láðst að tæma loft úr kraga í barkarraufarrennu þegar hún tók karlkyns sjúkling úr öndunarvél og setti talventil á rennuna, en ákærðu hafi verið vel kunnugt um mikilvægi þess. Í ákæruskjalinu segir að vegna þessarar vanrækslu gat sjúklingurinn aðeins andað að sér en ekki frá sér, fall varð á súrefnis- mettun og blóðþrýstingi, og maðurinn lést skömmu síðar. Ekkja mannsins fer fram á 7,5 milljónir í miskabætur en fram hefur komið í fjölmiðlum að hún vildi ekki að hjúkrunarfræðingurinn yrði ákærður. -eh  lýðheilsa Unglingar á rafmagnsvespUm í stað reiðhjóla 2 fréttir Helgin 23.-25. maí 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.