Fréttatíminn


Fréttatíminn - 23.05.2014, Síða 6

Fréttatíminn - 23.05.2014, Síða 6
Erla Hlynsdóttir erla@ frettatiminn.is F ram kom að móð-irin, sem er ein-stæð og öryrki, hefur 60.000 krónur til ráðstöfunar á mánuði og að sú upphæð sé langt frá því að duga henni og tveimur sonum hennar til framfærslu. Auk þess kom fram að hún hefur ekki efni á nýjum skóm eða fötum fyrir drengina sína, né á að greiða félags- gjöld íþróttafélagsins, en drengirnir eru báðir mjög virkir í íþróttafélaginu og sá yngri talinn mjög efni- legur. Á heimili fjölskyld- unnar er ekki rúm fyrr neinn munað, en eitt af því sem drengina dreymir um, er að hafa líkt og flestir félagarnir, Stöð 2 sport, meðal annars til að fylgjast með HM í sumar. „Ég er með um 60.000 í ráðstöfunartekjur á mán- uði. Það þarf verulega mikið að hugsa um for- gangsröðun. Auðvitað vill maður allt fyrir börnin sín gera. Núna er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi að leyfa þeim að fá Stöð 2 sport í sumar. Ég hef bara alltaf áhyggjur af morgun- deginum. Sem betur fer get ég farið í Mæðra- styrksnefnd, í Hjálpar- stofnun kirkjunnar og til Fjölskylduhjálparinnar. Ég veit ekki hvað ég gerði án þeirra,“ segir móðirin. Margir vilja hjálpa Einn þeirra aðila sem setti sig í samband við Fréttatímann og vildi að- stoða móðurina með bein- um fjárframlögum hefur nú þegar greitt skuldir hennar við íþróttafélagið og mun þar að auki greiða næstu önn fyrir báða drengina. Þar að auki mun annar aðili bjóða drengjunum hennar upp á áskrift að Stöð 2 sport. Annar aðili mun aðstoða hana með mánaðarlegu fjárframlag í eitt ár og enn annar aðili hefur fært drengjunum hennar föt og skó. Þar fyrir utan hefur fjöldi fólks hringt til að spyrjast fyrir um hvert sé best að fara með föt og skó, eða hvernig sé hægt að styðja einstæðar mæð- ur fjárhagslega. Frétta- tíminn bendir þeim sem vilja leggja sitt af mörkum og aðstoða fátækt fólk að hafa samband við Mæðra- styrksnefnd, Fjölskyldu- hjálpina eða Hjálparstofn- un kirkjunnar. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is.  VelFerð Margir haFt saMband í kjölFar Fréttar uM Fátækt Synirnir fá að njóta sportsins Fréttatíminn ræddi í síðustu viku við einstæða móður, sem er öryrki, í tengslum við fréttaskýringu um börn og fátækt á Íslandi. Fjöldi fólks hefur sett sig í samband við blaðið vegna viðtalsins, sem hreyfði við mörgum, með það í huga að veita einhverskonar aðstoð, almennt eða þessari tilteknu móður. Skuld móðurinnar við íþróttafélag drengjanna hefur verið greidd og synir hennar hafa fengið nýjan fatnað og skó. Fréttatíminn bendir þeim sem vilja leggja sitt af mörkum og aðstoða fátækt fólk að hafa sam- band við Mæðra- styrksnefnd, Fjöl- skylduhjálpina eða Hjálparstofn- un kirkjunnar. DORMA Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100 Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100 HeilsuRÚM á DoRMAveRði KoMDu í DoRMA. við aðstoðum þig við að finna drauma- rúmið þitt! NAtuRe’s Rest heilsurúm 120x200 cM DoRMAveRð 79.900 Dýna, botn og lappir VeRðDæMi NAtuRe’s coMfoRt heilsurúm 160x200 cM DoRMAveRð 149.900 Dýna, botn og lappir VeRðDæMi Hjálmar M. Sigmarsson, sem er að ljúka meistaranámi í kynjafræði á Spáni, hefur störf hjá Stígamótum þann 1. ágúst. Fjöldi umsókna barst Stígamótum eftir að sérstaklega var auglýst eftir karlmanni til starfa. Hjálmar hefur í mörg ár beitt sér í baráttunni gegn kynferðis- ofbeldi, meðal annars með NEI hópnum sem er hópur karlmanna sem segja nei við nauðgunum, hann hefur starfað hjá Jafnréttisstofu og UN Women. Aldrei hafa fleiri leitað til Stígamóta en á síðasta ári og aldrei hefur hlut- fall karlmanna sem þangað leita verið hærra, eða 18%. „Hjálmar kemur til með að starfa sem ráðgjafi en einnig sinna fræðslu út á við. Það er táknrænt að karlmaður sé kominn í þennan hóp með okkur því kynferðisof- beldi skiptir alla máli og því nauðsynlegt að bæði konur og karlar séu í forsvari fyrir umræðu um það,“ segir Þór- unn Þórarinsdóttir, ráðgjafi hjá Stígamótum. „Nú verður sá möguleiki fyrir hendi að karlar og konur sem hingað leita geta valið hvort þeir tala við kvenkyns eða karl- kyns ráðgjafa,“ segir hún. Hjá Stígamótum eru vonir bundnar við að karlmaður í fræðslustarfi nái jafnvel betur til ungra karlmanna. „Okkur þykir mjög ánægju- legt að fá Hjálmar til starfa,“ segir Þóra.  ráðgjaFi auglýstu eFtir karlManni og barst Fjöldi uMsókna Karlmaður ráðinn til Stígamóta Hjálmar M. Sigmarsson hefur um árabil barist gegn kynbundnu ofbeldi, meðal annars með NEI- hópnum. Synir einstæðu móðurinnar sem Fréttatíminn ræddi við í síðust viku munu getað stundað íþróttir áfram auk þess að hafa fengið áskrift að Stöð 2 Sport. 6 fréttir Helgin 23.-25. maí 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.