Fréttatíminn - 23.05.2014, Qupperneq 20
K
raftaverk
Hágæða heyrnatól sem hlotið hafa
margvíslegar viðurkenningar fyrir
hljómburð og hönnun.
Hægt að tengja saman þannig að 2
eða fleiri geti hlustað úr sama tækinu.
Fjarstýrð símsvörun og hljóðnemi
fyrir „hands free“ símtöl.
Hægt að fá í mörgum litum.
Skólavörðustíg 12 • sími 578 6090
www. minja.is • facebook: minja
TVÆR GERÐIR:
PLATTAN kr. 10.900
HUMLAN kr. 9.700
HÁGÆÐA HÖNNUN,
HLJÓMFYLLING & GÆÐI
F
ramleiðandinn Rakel
Garðarsdóttir heim-
sótti kvikmyndahá-
tíðina í Cannes í fyrsta
sinn ásamt leikkon-
unni Nínu Dögg Filippusdóttir
fyrir skemmstu en hátíðinni lýkur
nú um helgina. „Ég var valin í
prógram sem kallast The Young
Kvikmynd um fyrsta kvenforseta heims
Mágkonurnar og
Vesturportar
arnir, Rakel
Garðarsdóttir
og Nína Dögg
Filippusdóttir,
undirbúa nú
gerð leikinnar
kvikmyndar um
fyrsta þjóðkjörna
kvenforseta
heims, Vigdísi
Finnbogadóttur.
Þær funduðu
með kvikmynda
gerðarfólki á
kvikmynda
hátíðinni á
Cannes og segja
útkomuna framar
öllum vonum.
Producers Club sem er fyrir
unga framleiðendur í Skandi-
navíu en prógrammið er haldið
af Danska kvikmyndaskól-
anum. Þar sem það stóð til boða
að fara til Cannes ákváðum við
Nína Dögg að nýta okkur tæki-
færið og fara að kynna verkefni
sem við erum að vinna að, með
í leiðinni,“ og á Rakel þar við
leikna kvikmynd sem byggir á
lífi Vigdísar Finnbogadóttur.
Rakel segir að tímanum hafi
verið vel varið í fundi, að byggja
upp tengslanet og skemmtanir
á hátíðinni. „Ísold Uggadóttir,
sem er leikstjóri þess verkefnis,
slóst einnig með í för sem og
Lilja Ósk í Pegasus, fyrir utan
alla hina Íslendingana sem
mættu til Cannes, hver öðrum
skemmtilegri. Ur varð heljar-
innar vinnu- og skemmtiferð.
Ég var með miklar væntingar
en upplifunin var mun betri, al-
gjörlega meiriháttar í alla staði.
Falleg borg, skemmtilegt fólk
og gott veður. Helsta upplif-
unin var kannski sú að ég varð
ekkert vör við raunveruleika né
hversdagsleika allan tímann á
meðan við vorum þarna. Þetta
var mín fyrsta ferð á Cannes og
það má alveg reikna með mér
þangað aftur, ár efir ár.“
Það er augljóst að Rakel er
sátt við ferðina enda er mynd
um fyrsta kvenforseta í heimi
dúndur efni til að kynna.
„Útkoman er framar öllum
vonum. Við sátum góða fundi
sem allir enduðu á jákvæðum
nótum. Við kynntumst mikið
af skemmtilegu fólki, bæði ís-
lensku og erlendu og náðum
að dýfa tánum í heitan hvítan
sand. Það má segja að sólin í
Cannes hafi lýst upp framtíðar-
plön okkar.“
Þóra Karítas Árnadóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Vigdís Finnbogadóttir, sem hér sést með Bretadrottningu og drottningarmanni, er
fyrsti kvenkyns þjóðkjörni forseti heims. Nína Dögg FIlippusdóttir og Rakel Garðars
dóttir ætla nú að gera leikna kvikmynd sem byggir á lífi Vigdísar. Ljósmynd að ofan/
NordicPhotos/GettyImages. Ljósmynd til vinstri/Hari
20 viðtal Helgin 23.25. maí 2014