Fréttatíminn - 23.05.2014, Blaðsíða 48
48 fjölskyldan Helgin 23.-25. maí 2014
Til hamingju með nýgerðan kjarasamning
Ú tbrunnin kennslukona eftir átta ár í kennslu. Aðeins 35 ára gömul, hætt störfum og farin að horfa í kringum sig eftir nýjum möguleikum. Lífsplanið frá bernsku sem sagt fokið út í veður og vind og hin mánaðarlega millifærsla upp á heil 250
þúsund í heimabankanum fyrir fullt kennslustarf endanlega að baki. Hún gaf mér góð-
fúslega leyfi til að vitna í reynslu sína sem hún trúði mér fyrir í búningsklefa í ræktinni.
Erfiður unglingabekkur lagði hana endanlega að velli. Þessir ágætu einstaklingar höfðu
náð að æfa hið fullkomna agaleysi þrátt fyrir markmið í öllum opinberum plöggum um
hið gagnstæða í leik- og grunnskólum landsins og allar tilraunir til að ná tökum á hópnum
voru dæmdar til að mistakast. Unglingspiltarnir glottu bara við tönn og gerðu nákvæm-
lega það sem þeim hentaði og þar á meðal var ekki að sýna ungri kennslukonu virðingu.
Stelpurnar voru svosem þarna en gengu aðallega sjálfala, karlmennskan réði för.
Foreldrar skrifuðu æsingspósta yfir að einkunnir blessaðra ungmennanna væru
hreinlega ekki nógu góðar. Námsbækurnar virkuðu ekki fyrir stóran hluta hópsins,
sérlega ekki fyrir umrædda pilta og allar hugmyndir kennslukonunnar um að skipta
óvinsælustu greinunum út fyrir verklegt fjör í smiðjum voru andvana fæddar. „Hvað
með aðalnámskrána?,“ spurði skólastjórinn þreytulega. „Þú verður að kenna dönsk-
una til prófs.” Auðvitað gat hún ekki heldur hnikað til tímum í stundatöflunni því þá
hefði kerfi hverfisskólans með einhver hundruð nemenda hvorki meira né minna en
hrunið. Hún gafst upp fyrir páska. Efst í huga hennar var að hafa ekki haft frelsi til
að fara eigin leiðir og síðan virðingarleysið sem hún skynjaði – daglega innan skólans
og um hver mánaðarmót frá samfélaginu.
Halló, íslenska þjóð. Við verðum að bretta upp ermar og breyta um hugsun.
Kennarar á öllum skólastigum og allt annað starfsfólk skóla á eingöngu hið besta
skilið. Í harðri gagnrýni minni á öll „kerfi“ í skólamálum, gleymi ég alltof oft að tala
um fólkið sem vinnur þar innan, samherja mína sem ansi hreint margir vilja breyta
einsleitum kerfum. Við skólafólk erum öll á okkar stað af þeirri einföldu ástæðu að
við elskum börn og ungmenni. Af ástríðu viljum við sjá vellíðan og velgengni allra
barna og hugsjónir okkar eru að skapa betri heim. Þetta hljómar mögulega ein-
feldningslega en svona er þetta nú bara.
Ég get fullvissað alla um að launin voru EKKI ástæðan fyrir því að við völdum skóla
sem starfsvettvang og launin fá okkur EKKI til að mæta í vinnu að morgni. Vinnutíminn
er heldur ekki ástæðan því allir kennarar sem ég þekki, myndu þiggja með þökkum að
vera lausir allra mála eftir klukkan fjögur á daginn eftir að hafa skroppið á kaffihús með
vinunum í hádeginu eða lengt matartímann sinn til að ná ræktinni innan vinnutíma. Júní,
júlí og ágúst eru heldur EKKI ástæðan því skólar standa langt fram í júní, þá er allur frá-
gangur eftir og loks kalla skólar kennara inn snemma í ágúst á námskeið og undirbúning.
Jóla- og páskafrí eru heldur EKKI ástæðan því fjölmargir kennarar vildu fremur geta tekið
aukafrí á alvöru annatímum í vinnunni fremur en í kringum hátíðir þegar aðrir skjótast
hvort sem er úr vinnunni í jólagjafakaup eða halda jólaveislu með vinnufélögunum. Úbbs,
ég gleymdi að virðing fyrir kennurum og skólafólki eða lófatak samfélagsins er heldur
EKKI ástæðan fyrir veru okkar í skólunum. Óekkí.
Við skólafólk eigum hið besta skilið. Við eigum skilið frábær laun, virðingu samfélags-
ins og traust til að vinna vinnuna okkar, traust sem ég kalla frelsi frá ofstýrðum kerfum og
fyrirmælum að ofan og aðalnámskrám og mínútutalningum. Við eigum skilinn stuðning
foreldra þar sem við erum saman í liði, munum að börn foreldra búa líka í okkar hjörtum.
Skólasamfélögin með stórum og smáum þola ekki átök og illindi og úlfúð. Þau eiga að
snúast um gleði og jákvæðni og samstöðu. Þess vegna óska ég öllum til hamingju með
nýgerðan kjarasamning. Launahækkunin er mikilvæg en mest er um vert að Kennarasam-
bandið og Launanefnd sveitarfélaga setja núna skólaþróun og opnun á vinnuramma kenn-
ara í forgang. Nú er tækifæri fyrir okkur öll að sameinast um breytingar þar sem aukið
frelsi, nýjar leiðir og ábyrgð allra eru grunnurinn. Hver veit nema kennslukonan í upp-
hafi pistilsins eigi eftir að snúa til baka. Ég segi nú bara bravó og bravissimó fyrir okkur.
Nú er tækifæri fyrir okkur öll að sameinast um breyt-
ingar þar sem aukið frelsi, nýjar leiðir og ábyrgð allra
eru grunnurinn.
Úr vörn í sókn
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heimur barna
Skólasamfélögin
með stórum og
smáum þola ekki
átök og illindi og
úlfúð. Þau eiga
að snúast um
gleði og jákvæðni
og samstöðu.
Stóri leikskóladagurinn
er haldinn í dag, föstudag,
í Ráðhúsi Reykjavíkur
þar sem á fjórða tug leik-
skóla sýna metnaðar-
full þróunarverkefni og
annað starf sem vert er
að miðla til fagfólks og
almennings. Leikskólar
sveitarfélagsins Árborgar
eru gestir Reykjavíkur á
Stóra leikskóladeginum
og munu fimm leikskólar
þaðan sýna verkefni úr
fagstarfinu.
Meðal leikskóla sem
verða með kynningar er
Heilsuleikskólinn Árbær
í Árborg sem kynnir
starfsemi sína, leikskól-
inn Klambrar vinnur með
steinleir, Rofaborg kynnir
verkefni um þjóðsögur
og ævintýri, og Sælukot
fræðir gesti um jóga fyrir
börn og heldur hóphug-
leiðslu.
Móðurmálssamtökin
verða á staðnum og veita
fræðslu um kennslu
tvítyngi, fjölmenningu og
móðurmálskennslu tví-
tyngdra barna.
Samhliða kynningum
verða sex fagfyrirlestrar
haldnir í Iðnó, meðal ann-
ars um lýðræði í leikskóla,
leiklist og gæðastarf með
ungum börnum.
Sýningin í Ráðhúsinu
opnar klukkan hálf tíu
og þar verður sannarlega
nóg við að vera þar til
henni lýkur klukkan hálf
fimm.
LeikskóLadagur tugir LeikskóLa koma saman í ráðhÚsinu
Leikskólar kynna starfsemi sína
Frá Stóra
leikskóla-
deginum
í fyrra en
hann er
haldinn
árlega í
Ráðhúsinu.
Erla
Hlynsdóttir
erla@
frettatiminn.is
Rafræn ráðgjöf er han
á Stígamótum
Stígamót bjóða nú upp á ókeypis rafræna
ráðgjöf á heimasíðunni www.stigamot.is
Hægt er að spjalla við ráðgjafa undir nafn-
leynd, sem vonandi auðveldar fólki að leita
sér hjálpar. Aðeins þarf að smella á „Netsp-
jall“ í hægra horni að ofanverðu á síðunni
og komast þannig í samband við ráðgjafa.
Ráðgjafar eru við alla virka daga kl. 10 - 16.
Utan þess tíma er hægt að skilja eir nafn
og netfang og ráðgja hefur samband næsta
virka dag.
Við hvetjum fólk eindregið til þess að nýta
sér þessa nýju þjónustu.