Fréttatíminn - 23.05.2014, Síða 68
Á sýningunni Þín samsetta sjón, sem opnuð verður í Hafnarhúsinu á laugar-
dag klukkan 16, gefur að líta
úrvalsverk úr safneign Listasafns
Reykjavíkur frá árunum 1970-
2010. Um fimmtíu listamenn eiga
verk á sýningunni og margir
þeirra eru meðal þekktustu starf-
andi listamanna landsins. Þar á
meðal er Ólafur Elíasson en titill
sýningarinnar er sóttur í verk
eftir hann, Ragnar Kjartansson,
Gjörningaklúbburinn, Gabríela
Friðriksdóttir og Hreinn Frið-
finnsson.
Verkin á sýningunni eru fjöl-
breytt. Þarna er að finna stað-
bundnar innsetningar, minimal-
íska skúlptúra, hugmyndalist
í ýmsum miðlum, gjörninga-
tengda vídeólist og verk byggð
á rannsóknum. Viðfangsefnin
eru allt frá sjálfhverfri íhugun
um eðli listarinnar til þjóð-
félagsádeilu og afbyggingu
viðtekinna hugmynda um
„Norðrið“ og íslenskan menn-
ingararf. Sýningarstjóri er
Hafþór Yngvason.
Rjóminn af safnaeigin Listasafns ReykjavíkuR tiL sýnis
Úrvalsverk sýnd í
Hafnarhúsinu
KEILIR ÁSBRÚ
578 4000 keilir.net
Það er aldrei of seint að fara í háskóla. Háskólabrú Keilis, í samstarfi við
Háskóla Íslands, er viðurkennt aðfaranám fyrir nám við alla háskóla
landsins. Keilir leggur áherslu á persónulega þjónustu og er leiðandi í
speglaðri kennslu, en það þýðir m.a. að þú hefur aðgang að fyrirlestrum
hvar og hvenær sem er. Námið er sérstaklega sniðið að þörfum nemenda
sem hafa verið lengi frá námi og er lánshæft. Háskólabrú Keilis hjálpar þér
að komast í draumaháskólanámið þitt! Boðið er upp á Háskólabrú í
staðnámi á Ásbrú og á Akureyri í samstarfi við SÍMEY.
Umsóknarfrestur
í Háskólabrú er
til 10. júní.
ÞÚ ÁTT VALIÐ!
#
H
A
S
K
O
L
A
B
R
U
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
41
29
8
Ragnar Kjartansson, Guð, 2007. Eitt
verka á sýningunni Þín samsetta sjón
sem opnuð verður í Hafnarhúsinu á
laugardag.
y firlitssýningin á verk-um Sigurjóns Ólafs-sonar verður opnuð í
tveimur söfnum um helgina.
Í dag klukkan 18 verður opn-
un í Listasafni Íslands og á
morgun, laugardag, verður
opnun í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar. Í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar verða val-
in verk frá námsárum hans
í Kaupmannahöfn 1928-35,
en í Listasafni Íslands verða
lykilverk frá árunum 1936 til
1982. Sýningarstjórar eru
Birgitta Spur og Æsa Sigur-
jónsdóttir.
Sigurjón Ólafsson (1908-
1982) lærði klassíska högg-
myndagerð í Konunglega
l istaháskólanum í Kaup -
mannahöfn. Á yfirlitssýn-
ingunni í söfnunum tveimur
eru 90 verk Sigurjóns sem
sýna hvernig hann sam-
hæfði á mjög persónulegan
hátt klassíska skólun sína
við framúrstefnur 20. aldar.
Jafnframt veita verkin innsýn
inn í fjölþættar vinnuaðferðir
listamannsins og sýna þekk-
ingu hans á ólíkum birting-
arformum höggmyndalistar-
innar.
Skömmu fyrir andlát sitt
gerði Sigurjón skúlptur úr
tré, sem hann nefndi Spor
í sandinn. Í þessu verki má
f inna tilvistarlegar dýptir
og ákveðna formræna niður-
stöðu, en einnig endurtekin
stef sem minna á heildar-
hugsun Sigurjóns – trúnað-
inn við efnið – sem einkennir
feril hans.
spoR í sandi í Listasafni ísLands og Listasafni siguRjóns óLafssonaR
Æviverk Sigurjóns í tveimur söfnum
Spor í sandinn verður til sýnis á sýningu á ævi verki Sigurjóns Ólafssonar.
9. maí – 31. maí 2014
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opnunartímar
12:00-17:00 miðvikudaga til föstudaga
13:00-16:00 laugardaga
og eftir samkomulagi
Ragnar
Þórisson
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Vönduð vinna
Stofnað 1952
Mikið úrval af
fylgihlutum
Steinsmiðjan Mosaik
Legsteinar
68 menning Helgin 23.-25. maí 2014