Fréttatíminn - 23.05.2014, Side 78
2 viðhald húsa Helgin 23.-25. maí 2014
Átt þú gamalt hús
sem þarf að gera við
- hvar á að byrja?
Ókeypis ráðgjöf í Árbæjarsafni miðvikudaga kl. 15 - 17
og á sama tíma í síma 411 6333.
HÚSVERNDARSTOFA
Fræðslustofa um viðhald og viðgerðir eldri húsa.
www.idan.is
íshúsið
S: 566 6000 | Smiðjuvegur 4a, 200 Kópavogur, græn gata
VIFTUR
Þessar hljóðlátu
30
ára reyns
la
198
3 - 2013
ALLUR PAKKINN!
Húseigendafélagið var stofnað árið
1923 og hefur starfað óslitið síðan.
Það er almennt hagsmunafélag
húseigenda. Félagsmenn eru um 10
þúsund og fer jafnt og þétt fjölgandi.
Mest hefur fjölgunin verið meðal
húsfélaga í fjöleignarhúsum en í
félaginu eru nú um 800 húsfélög.
Starfsemi Húseigenda
félagsins er þríþætt:
1. Almenn hagsmunagæsla fyrir
fasteignaeigendur.
2. Almenn fræðslustarfsemi og upp
lýsingamiðlun.
3. Ráðgjöf og þjónusta við félags-
menn, einkum lögfræðiaðstoð
og ráðgjöf.
Félagið nýtur engra styrkja og er
sjálfstætt og óháð í einu og öllu.
Það eru félagsgjöldin sem standa
að langmestu leyti undir starfsemi
félagsins. Árgjaldið hefur verið
óbreytt í 6 ár.
Hæst hefur borið í almennu hags-
munabaráttu félagsins að stuðla
að réttarbótum fyrir fasteignaeig-
endur. Hefur félaginu orðið verulega
ágengt í því efni öllum húseigendum
til hags og heilla. Má nefna gildandi
fjöleignarhúsalög og húsaleigulög
og löggjöf um fasteignakaup og
fasteignasala.
Lögræðiaðstoð
Húseigendafélagið rekur sérhæfða
lögfræðiþjónustu fyrir félagsmenn
sína á þeim réttarsviðum, sem varða
fasteignir og eigendur þeirra. Það
eru aðallega eftirtaldir málaflokkar
koma til kasta lögfræðiþjónust-
unnar:
1. Mál sem snerta fjöleignarhús og
eigendur þeirra.
2. Mál vegna vanefnda í fasteigna-
viðskiptum, einkum gallamál.
3. Húsaleigumál.
4. Mál vegna vanefnda byggingar-
aðila og verktaka.
5. Mál gagnvart byggingaryfir-
völdum og öðrum stjórnvöldum.
6. Grenndarmál af ýmsum toga.
Í húsfundaþjónustu félagins felst
alhliða lögfræðileg ráðgjöf og
aðstoð við fundarboð, tillögur
og gagnaöflun. Lögmaður með
sérþekkingu annast fundarstjórn
og ritun fundagerðar er í höndum
laganema.
Húseigendafélagið býður
leigusölum upp á húsaleiguþjónustu,
sem tryggir öryggi í leiguviðskiptum
og dregur úr fjárhagslegri áhættu
og armæðu vegna leiguvanskila og
skemmda á leiguhúsnæði. Félagið
gerir leigusamninga og gefur ráð og
upplýsingar um réttindi og skyldur
aðila, lagaatriði og ráðstafanir, s.s.
tryggingar o.fl. Þá aðstoðar félagið
leigusala þegar vandamál koma upp
á leigutímanum eða við lok hans,
t.d. við vanskil á húsaleigu, riftanir,
uppsagnir o.fl.
Skrifstofa Húseigendafélagsins
er í Reykjavík að Síðumúla 29, Sími:
588-9567. Netfang: postur@hus-
eigendafelagid.is. Þar eru veittar
nánari upplýsingar um félagið, starf-
semi þess og þjónustu. Á heimasíðu
félagsins er m.a. yfirlit yfir fjölda
greina sem lögfræðingar félagsins
hafa ritað og félagsmenn geta fengi
endurgjaldslaust. Slóðin er: www.
huseigendafelagid.is.
Öflug hagsmunagæsla fyrir húseigendur
Rennur
Hreinsið lauf og annað rusl úr rennum og
niðurföllum og skolið vel á eftir með köldu
vatni. Þetta er gert til að forðast að upp úr flæði
í haustrigningu vegna stíflu í niðurfallsrörum
eða niðurfalli á rennu. Til að kanna hvort
niðurfallsrör séu stífluð er gott að
banka í þau alveg við jörðu.
Ef rennan lekur þarf að taka
hana í sundur sem getur verið
snúið mál ef hátt er í hana. Þá eru
rennuböndin losuð af og rennan
losuð. Því næst eru rennustykkin
þrifin, skipt um gúmmíþéttingar á
þeim og þetta svo sett saman aftur.
Það er mun auðveldara að losa
niðurfallsrör af veggjum. Byrjað
er á að losa festinguna í sundur en
ekki af veggnum. Algengasta gerð
niðurfallsröra er með fleyg sem
sleginn er upp eða niður til að losa
festinguna. Önnur algeng tegund
er með skrúfu og ró. Þegar búið er
að losa festingar í sundur eru rörin
toguð í sundur. Það getur reynst erfitt en þar
þarf meiri lagni en kraft.
Gluggar
Þvoið gler og glugga og notið
tækifærið til að grannskoða
ástand á timbri og málningu
að innan og utan. Þetta er viss
ástandsskoðun í framhaldinu er
gott að gera áætlun um fram-
kvæmdir.
Ein besta leiðin til að viðhalda
ytra byrði timburglugga er að
rífa gömlu málninguna upp með
vírbursta. Því næst er skafið létt
yfir með karbítsköfu til að ná
allri lausri málningu af. Þá er öllu
ryki sópað af og málað. Þó svo
að þetta sé ekki gert rétt að öllu
leyti, eða ekki jafn vel og fagmað-
ur myndi gera, er í langflestum
tilfellum betra að gera þetta í stað
þess að gera ekki neitt.
Skoðið opnanleg fög og reynið að muna
hvort það hafi lekið vatn eða loft inn með
opnanlega faginu. Þetta er gert til að átta sig
á því hvaða hlutir eru í
ólagi. Það getur verið að
einn búnaður sé að trufla
annan.
Ef fag lekur vatni er
best að fá fagmann til
verksins, þar sem það get-
ur verið all flókið og tíma-
frekt að gera við fagið. Ef
hinsvegar fagið lekur lofti
þá má kaupa þéttiborða og
líma inn í falsið á faginu.
Til eru margar gerðir af
krækjum og búnaði til að
opna og loka fögum. Ef
þessi búnaður er brotinn
eða bilaður er best að
skipta um hann svo glugg-
inn virki rétt og skemmist
síður.
Útidyr
Skoðið útihurðalamir og
læsingar og smyrjið eftir
þörfum með þunnri olíu.
Það er líka gott að setja
smá olíu inn í skráargatið. Þetta er gert til að
auka liðleika þeirra hluta sem hreyfast.
Vorið er rétti tíminn til að sinna viðhaldi húsa og um
að gera að nýta sólina þessa dagana til að nauðsyn
legra útiverka. Páll Hólm Sigurðsson húsasmíðameist
ari gefur góð um árlegt viðhald.
Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages
Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages
Ljósmynd/Nordic
Photo/GettyImages
3góð ráð fyrir húsið í vor
Páll Hólm Sigurðsson húsasmíðameistari gefur
góð um viðhald hússins. Mikilvægt er að hreinsa
lauf og annað rusl úr rennum og niðurföllum og
skola vel á eftir með köldu vatni svo ekki flæði
upp úr í rigningunni. Ljósmynd/Hari