Sveitarstjórnarmál - 01.04.1976, Qupperneq 21
HAFSTEINN ÞORVALDSSON, formaður UMFÍ og ÆRR:
ÞÁTTUR
UNGMENNAFÉLAGA
í MENNINGARMÁLUM
Við umræðu þessa um menningarmál, sem
efnt er til af Sambandi íslenzkra sveitarfélaga,
hefi ég kosið að fjalla nær eingöngu um áhrif
ungmennafélagshreyfingarinnar á fslandi á
ýmsa menningarþætti í sögu þjóðarinnar fremur
en æskulýðsmál almennt. Ekki ber þó að skilja
það svo, að hlutur annarra frjálsra félagshreyf-
inga í menningarsögunni sé ekki jafn rnerkur,
en tímans vegna yrði ekki hægt að gera slíka
allsherjarúttekt hér, og því hefi ég kosið þetta
afmarkaða svið, er ég gerst þekki.
Frá liðinni tíð höfum við íslendingar hlotið
margvíslega menningararfleifð, sem okkur ber
að virða og varðveita. Menning okkar hefur átt
sín vaxtar- og hnignunarskeið. Stundum hefur
harðæri, einangrun og örbirgð markað sín von-
leysisspor í menningarsögunni, en það birtir á
ný, einangrunin rofnar og menningin tekur að
vaxa. Menningarástandið mótast af þjóðfélags-
ástæðunum á hverjum tíma, þannig ríkir hér al-
gjör efnahagsleg stöðnun á tímum erlendra yf-
irráða, og þá er menning okkar veikust og mest
hætta búin.
Upphafið
Á fyrsta áratug þessarar aldar eru fyrstu ung-
mennafélögin stofnuð á íslandi. Hreyfingin fór
sem eldur í sinu um lar.dið allt, æskan var
vakin til meðvitundar um mátt sinn og megin
og skyldur sínar við sjálfa sig og landið. Frum-
herjarnir voru ungir hugsjónamenn, sent átt
höfðu þess kost að ferðast og fræðast meðal er-
lendra þjóða, einkum nágranna okkar á Norð-
urlöndunum og kynnast þar menningu og fram-
förum. Þeim ofbauð stöðnunin og framtaksleys-
ið hér heima.
Hvatning frumherjanna til hinnar lítt upp-
litsdjörfu æsku þessa lands var þrungin ættjarð-
arást, og boðskapurinn var sjálfstæði, aukin
menntun og líkamsrækt og varðstaða um forn-
an menningararf og betra líf undir kjörorðun-
um „íslandi allt.“
SVEITARSTJÓRNARMÁL