Sveitarstjórnarmál - 01.06.1976, Side 29
REYNIR G. KARLSSON,
æskulýSsfulltrúi ríkisins:
AÐSTAÐA TIL FÉLAGS-
OG TÓMSTUNDA-
STARFSEMI í HÚS-
NÆÐI SKÓLANNA
Inngangur
Við undirbúning að byggingu skólahúsnæðis
hér á landi hefur til þessa verið lítil áherzla á
það lögð, að vel væri séð fyrir aðstöðu til félags-
og tómstundarstarfsemi með væntanlegum nem-
endum.
Auknar tómstundir og örar þjóðfélagsbreyting-
ar hafa þó leitt af sér brýna nauðsyn þess, að
ungu fólki sé auðveldað að finna þroskandi við-
fangsefni við sitt hæfi í tómstundum sínum.
Hljóta því eðlilega að vakna þær spurningar,
hvort ekki sé j^að bæði vænlegt til árangurs og
þjóðhagslega hagkvæmt, að skólarnir taki að sér
ýmsa þætti félags- og tómstundastarfs nemenda
sinna í mun ríkari rnæli en gert hefur verið ráð
fyrir til þessa og hafi jafnframt um það nánari
samvinnu við aðra aðila, er með unga fólkinu
starfa.
Á sama hátt er það eðlilegt, að hugur margra
beinist að húsnæði skólanna, þegar rætt er um
aðstöðu til félags- og tómstundastarfsemi almennt
fyrir íbúa viðkomandi byggðalags, og að þar sé
meðtalin félagsstarfsemi aldraðra, fullorðins-
fræðsla, kvöldskólahald o. fl.
Skólahús eru dýrar og vandaðar byggingar með
miklum salarkynnum og oftast vel í sveit settar
í byggðinni. Þau eru líka oft í langan tíma eina
húsnæðið, sem hæft er til samkomuhalds í ný-
byggðum hverfum í þéttbýlinu.
Þó að mörg skólahús séu óhentug til annars
en hinnar hefðbundnu bekkjarkennslu, liafa þau
þó flest ákveðin rými, sem vel rná nýta til æsku-
lýðsstarfs og félagsstarfs fullorðinna. Reynslan
hefur því orðið á þann veg, að víða hefur tekizt
að leysa nokkuð úr skorti á aðstöðu til félags-
starfsemi með því að fá inni fyrir hana í hús-
næði skólanna. Ber hér hæst samstarf skólanna
og íþróttahreyfingarinnar um samnýtingu
íþróttaaðstöðunnar.
Nýmæli í grunnskólalögunum
í lögum urn grunnskóla nr. 63/1974 eru ýmis
ný ákvæði um aukin félagsstörf og félagslega
þjálfun nemenda í skólum. Má því með sanni
segja, að stjórnvöld hafi með setningu þessara
laga gefið nokkra vísbendingu um vilja sinn til
að auka þennan þátt í skólastarfinu, en þeirri
viljayfirlýsingu hljóta að fylgja óskir um betri
SVF.ITARSTJÓRNARMÁL